Vorið - 01.12.1969, Page 48
Þjónarnir hennar Sigríðar litlu
Sigríður litla átti ástúcflega móður,
sem annaðist hana.vel. Þú munt því ef til
vill furða þig á því, að hún átti líka svo
marga þjóna. Nú skal ég lýsa fyrir þér
fáeinum þeirra, og svo geturðu beðið
mömmu þína að segja þér frá hinum,
því að þú átt sams konar þjóna og Sig-
ríður.
Þegar hún fæddist, vissi hún ekki, til
hvers þeir voru hafðir, eða hvar þeir
voru. Þeir vissu það ekki heldur, og því
voru þeir gagnslausir. Tveir voru svart-
ir og svo líkir, að þú mundir ekki hafa
getað þekkt þá sundur, og hún lét þá
nærri því aldrei sjást. Og þegar móður-
systur hennar og frændkonur heimsóttu
hana, sögðu þær: „Hví lofar Sigríður
engum að sjá þá?“ og fóru óánægðar í
burtu.
Þessir svörtu þjónar voru skínandi
litlar stjörnur, sem lærðu skjótt að
skemmta Sigríði. Eitt hið fyrsta, sem
þeir gerðu fyrir hana var að sýna henni
eldinn, og henni þótti hann mjög falleg-
ur. Sigríður átti tvo aðra þjóna, sem
voru tvíburar. Þeir vissu svo lítið hvað
þeir áttu að gera, að þeir klóruðu og
lömdu hana í framan. Og móðir hennar
sagði, að hún yrði að hinda þá, ef þeir
létu þannig. En þó að þeir vissu ekki
hvernig þeir áttu að haga sér, þá voru
þeir mjög fallegir, líkir rósablööum, eða
einhverju öðru rauðu og mjúku. Sigríð-
ur átti ennþá tvo þjóna, sem hún veitti
enga eftirtekt nokkra mánuði. Þeir vissu
heldur ekki eins fljótt og sumir af hin-
um, hvernig þeir áttu að þjóna lienni.
Þeir voru feitir og voru á sífelldu iði og
kunnu ekki annað, en að stinga holur t
sokkana hennar.
Sigríður átti ennþá þjóna, sem vorU
tvíburar og mjög nytsamir, því að an
þeirra hefði hún aldrei heyrt móður sína
syngja eða föður sinn blístra, eða heyrt
kisu segja mjá eða hundinn segja vá, va.
Og hún átti ennþá einn lítinn þjón, sem
hún lét engan sjá, og hið eina, sem hann
gerði lengi vel, var að hjálpa henni til
að fá á hverjum degi margan góðan mið'
degisverð, kvöldverð og morgunverð. En
smátt og smátt hjálpaði hann henni 1
fleiru.
Ef ég held þannig áfram lengi, er eg
hrædd um, að þú verðir hlessa. Ef þu
vilt svo geta upp á nöfnunum á þessum
þjónum Sigríðar litlu, ætla ég að leggj3
fyrir þig þrjár spurningar, og ef þú get'
ur ekki rétt í þriðja sinn, þá verðuröu
að horfa í spegilinn, og þar muntu sja
flesta af þessum þjónurn, sem ég hef tol'
að um. „Tibrá“■
Vorid W áta
Me3 útkomu þcsso keftis hefur Vor-
ið komið út i 35 ór. Þcssara tímamóta
var ekki minnzt nú, en það verður
væntanlega gert í fyrsta hefti næsta
úrs. — Vorið þakkar útsölumönnum
sínum og lcsendum fyrir tryggð og
hollustu undanfarin ór, og vonar oð
góð samvinna verði með þeim og blað-
inu í framtíðinni.
190 VORIÐ