Vorið - 01.03.1970, Síða 30
LISTIR:
Ahrifamikið listaverk
Nýlega var listaverkið „Útilegumað-
urinn“ eftir Einar Jónsson afhjúpað á
Suður-Brekkunni á Akureyri. Ekkja
listamannsins, frú Anna Jónsson, hafði
gefið Akureyrarbæ þessa merku högg-
mynd. Hún er úr eir.
Myndin er af útilegumanni á leið til
byggða með konu sína látna á bakinu
til að koma henni í vígðan reit. 1 fang-
inu ber hann barn sitt, en hundurinn
hleypur við hlið honum.
Flestar myndir Einars Jónssonar eru
táknrænar. Ég ætla að skýra hér frá,
hvaða tákn ég sé í þessari mynd. Aðrir
sjá þar ef til vill allt annað, og er það
jafn réttmætt.
Útilegumaðurinn vill koma 'konu
sinni látinni í vígðan reit. Með því vill
listamaðurinn undirstrika, að trúin er
flestum mönnum í blóð b'orin, og þeir
leita þar buggunar á raunastund.
Útilegumaðurinn er íslenzka þjóðin,
sem hefur orðið að þola margvíslega
erfiðleika á liðnum öldum. Hin látna
kona hans 'bendir á fortíðina en barnið
til framtíðarinnar.
En hvað táknar hundurinn? Það er
erfitt að segja. Hundurinn er þekktur
fyrir tryggð. Ef til vill gæti hann tákn-
að tryggð þjóðarinnar við eðli sitt og
upplag.
Akureyri befur eignazt óhrifamikið
listaverk og er í mikilli þakkarskuld við
ékkju listamannsins fyrir þessa veglegu
gjöf, sem mun minna á þjóðararfinn u®
ókominn tíma. E. Sig•
26 VORIÐ