Vorið - 01.03.1970, Síða 52
Hegðun og framkoma flestra þeirra
sem neyta áfengis 'breytist. Þeir verða í
fyrstu fjörugir, ófeimnir og málgefnir.
Sumir verða fullir stórmennsku og sóa
eignum um efni fram. Algengt er að
drukknir menn valdi tjóni og slysum.
Sú hætta vofir yfir öllum sem neyta þess
að áfengisneyzlan verði að ástríðu sem
þeir ráða ekki við. Þegar svo er komið
nota menn öll tádkifæri til að drekka.
Sá sem neytir áfengis í öhófi, skaðar
ekki aðeins sjálfan sig heldur fjölskyldu
sína og þjóðfélagið. Ofdrykkjumaður
vanrækir störf sín eða hættir algerlega
að vinna, enda verður hann oft ófær lil
allrar vinnu. Eina örugga ráðið er að
bragða aldrei áfengi.
Þuríður Einarsdóttir, 12 ára,
V illingaholtsskóla.
— Hvers vegna er sagt, að Karl tólfti
hafi verið einvaldur? spurði kennarinn.
— Af því að hann átti enga drottningu,
svaraði Hans.
Óli og Pétur höfðu verið óvinir, en dag
nokkurn sagði Óli við Pétur:
— Ef að þú hættir að segja lygasögur
af mér, þá skal ég hætta að segja sannleik-
ann um þig!
Kona nokkur ætlaði að hringja í Silkihús-
ð, en hringdi í annað númer, og samtal
hennar við það var eftirfarandi:
— Afsakið — er þetta Silkihúsið?
— Nei, þetta er venjulegt steinhús.
— Það er ekki að undra, að kvenfólkið
;é hart. Það var gert úr beinum, sagði mað-
ur nokkur.
ondarungornír
Litlu andarungarnir
allir synda vel.
Höfuð hneigja í djúpið
og hreyfa lítið stél.
Litlu andarungarnir
ætla út á haf.
Fyrst í fjarlægð skima
og fara svo í kaf.
Börnin frísk og fjörug
fara allt um kring.
Lófum saman smella
og hlaupa svo í hring.
Eiríkur Sigurðsson.
Þetta litla kvæSi birtist í Voi'-
inu 1942, 2. hefti. SíSar var það
birt nafnlaust f Leshókum barna-
skólanna. Þess vegna er það birt
hér aftur með höfundarnafni.
48 VORIÐ