Heima er bezt - 01.12.1965, Page 11
Var kona send á undan í baðstofuna með ljós og setti
þar gangbert, og gekk síðan fram aftur, en herinn
þrengdist innar. Sá hinn grimmi gekk undan og veik
fyrst að Pétri, greiddi honum keppshöggið, hjó strax
síðan eftir með exinni ofan í andlitið yfir um þvert, í
því hann vaknaði og brá augunum að sagt var, var síð-
an lagður fyrir brjóstið með sleddu, og lét hann svo
líf sitt. Sá stóð þá í dyrunum, sem sá upp á og sagði frá.
Fylgjari hans á gólfinu raknaði við, eftir sitt rothögg,
og vildi á fætur færast, hlupu þá á hann þeir, sem til
veru og að komu, og höfðu allir nóg.
Þá voru hinir þrír í smiðjuhúss kofa, er þeir höfðu
inni á hlaðinu. Þar var bartskerinn, ungur maður, og
reykjarþrællinn og þvottapilturinn. Þeir hermenn rufu
strax yfir þeim, en hinir vörðust vonum betur, þó urðu
þeir fyrir liðsmun að lúta, sem von var á um síðir. Eft-
ir það voru þeir öllum klæðum flettir, og allsnaktir
kropparnir á börur lagðir og bornir yfir á björg, bundn-
ir síðan saman og steypt ofan fyrir í djúpið.“
Jón lærði orti einnig um þenna atburð í svokallaðri
„Ævidrápu“ sinni. Þar kveður Jón:
„Hafði í Æðey
hús sér fengið
Pétur sá gamli
pílot franski,
Hrœddur lundi i greip Æðeyjar-bónda. En lundanum var
engin hretta búin. Hann öðlaðist frelsið fljótlega aftur.
Æðey er flatlend og vogskorin, en þó með smáhólum og hœð-
um, eins og sjá má á myndinni. Þar er paradis fuglanna, enda
ómar hún öll af fuglakliði á vorin.
hans þénari
hraustur Lazarus,
bartskeri velvís
með báðum sveinum.
Eftir kvöldlestur
út af sofnaði
Pétur á pallbekk,
áður písl tæki,
en Lazarus
lá á gólfi,
dyggðugur sveinn hans
dormaði líka.
Heimilskona
hélt á ljósi,
setti á pallstokk,
svo fram skundar,
skall handkeppur
í höfuð Lazaró,
síðan Péturs
setti í enni
en urn andlit þvert
fyrir augu neðan
stórri skeggöxi
strax var höggvið,
nærri hjartastað
niður í hrygg stungið,
hann sofnaði veginn
svo á nóttu.
Haus var og klofinn
hans á sveini,
og hnésbætur
höggnar allar,
þeirra félagar
þrír í húsi
Heima er bezt 435