Heima er bezt - 01.12.1965, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.12.1965, Blaðsíða 12
Nokkru innan við Æðey, norðanmegin Djúpsins, er djdsn Vestfjarða: Kaldalón. Þar nær gróðurlendið inn að jökulrótum, og andstæður m’klar jafnt í litum sem gróðurfari. hlutu líf láta og lengi vörðust. Naktir blóðkroppar næst voru dregnir og bylt í brimólgur fyrir björg ofan. U Þannig orti Jón um Spánverjana, og má finna það bæði í frásögn hans og Ijóði, að Jón hefur haft samúð með þeim og fundist ómannúðlega og ódrengilega að þeim vegið. Þessari afstöðu Jóns reiddist Ari sýslumað- ur í Ögri, svo að Jóni varð ekki lengur vært í sýslunni og flýði suður á Snæfellsnes. Sagði Ari síðar, „að sagð- ur Jón Guðmundsson málari sé slægur maður og óholl- ur og hafi þaðan úr sveitum runnið fyrir ósteit, lygar, óráðvendni og sakbitna samvizku, af því að farið hefði með buldur oftlega og mas, rugl og vondar ræður, og aukið svo sundurþykkju og tvídrægni manna á meðal.“ Til er annað kvæði samtíðarmanns um Spánverja- vígin. Það orti Ólafur prestur Jónsson að Söndum í Dýrafirði. Skáld var hann öllu betra en Jón lærði, en leit hinsvegar allt öðrum augum á málið og taldi Spán- verja illþýði hið mesta, óalandi og réttdræpa varga og samdi þessvegna einskonar siguróð um þessi miskunn- arlausu víg. Séra Ólafur kvað: „Burgeis ríkur bjó sig þá, bæði af dyggð og hreysti, undirgefnum frelsi að fá, fólk svo úr vanda leysti, tilsjá guðs hann treysti. Veglegan flokk sér valdi hann, vasklega svo með allan þann til Æðeyjar reisti. Á Sandeyri sagt var mér, að sum ránsþjóðin væri. Sýslumaður og sveinarner sátu ei af sér færi, mjög þó myrkt þá væri, greitt sér tóku gang á hönd, svo greindum bæ á Snæfjallaströnd þá brátt á bæri. Dauðasvefn féll drengi á, dúrinn kom þeim að meini. sjálfur guð mun svæft hafa þá, svo þeir hryggð með kveini rétt strax þar þá reyni. Hermenn stríddu á hús og dyr, hinir ei kendu skaðans fyr en skall í beini. í Æðey urðu og einnig þar átján dauða að líða. __ U Þessa voðanótt í Æðey og á Sandeyri var ofsalegt veður, þannig að eldingum laust í fjöll, og taldi Jón lærði það reiðiteikn frá guði gegn Ára, en Ari taldi þetta vera eldsverð æðri máttar og fyrirboði um sigur sinn yfir spönskum. Á þann hátt eggjaði hann menn sína til framgöngu. Um lík Spánverjanna, sem kastað var fyrir björg í 436 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.