Heima er bezt - 01.12.1965, Page 26

Heima er bezt - 01.12.1965, Page 26
Kiðjabergssystkinin. nefndarmaður. Þurfti hann því oft að heiman og marg- ir áttu erindi við hann. Hvíldi bústjórnin fyrir það, því enn nieir á móður minni. Faðir minn þótti halda sér vel, bæði andlega og lík- amlega. Arið 1911, 15. maí, átti hann sextugsafmæli. Var honum þá haldið samsæti og sýndur margs konar sómi. Séra \’aldcmar Briem orti fagurt kvæði til foreldra minna er hljóðar þannig: Þrir eettliðir: Soffia Skúladóttir, Guðrún og Soffia dóttir hennar. Fögur stendur bygð að bergi bakka Hvítár á. Nafn af bergi ber með rentu bærinn mæti sá: Hjón þar búa góð og göfug, gnæfa hátt í bygð. Þeirra rausn er bygð á bjargi, bjargföst þeirra trygð. Áin þar við bergið brunar bökkum grænum hjá. Stafar sólin gullnum geislum Gljáan spegil á. Hjer var enginn ofsi á ferðum alt var rótt og milt. Fræg er orðin förin ykkar, ferð þó gengi stilt. Hafðu þakkir, heiðursmaður, hollvin þinni sveit. Hafðu þakkir, heiðurskona, hlífin blómgum reit. Hafið þakkir, hjónin bæði hreinni reynd að dygð. 450 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.