Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1971, Síða 7

Æskan - 01.05.1971, Síða 7
^úsis nötraði og hurðin á fangelsi Páls og Maríu kastaðist UPP> múrsteinn féll úr loftinu og kalk og köngulóavefir féllu yfir þau. .. Mexikó, var ráðizt á skip þeirra á Karíbahafi af sjóræn- ingjum. Systkinin voru síðan flutt til Port Royal, og var ætlun sjóræningjanna að fá hátt lausnargjald fyrir þau hjá föður þeirra. Faðir Pipin hafði einnig verið tekinn fastur á skipi systkinanna og fluttur til Port Royal. En meðan hann fékk að ganga laus um sjóræningjaþorpið, urðu systkinin að hima inni í litlum og dimmum klefa, sem var beint yfir drykkjustofunni í einni af hinum mörgu sjóræningjakrám. Sjóræningjahreiður! Já, Port Royal var svo sannarlega sjóræningjahreiður árið 1692. Þar var rammlega víggirt sjó- ræningjahöfn, og alls staðar voru sjóræningjar á verði gegn þeim, sem vildu hrekja þá í burtu. Hvernig var hægt að flýja frá svona stað? Þótt Páll létist vera vongóður um undankomu, er hann talaði við systur sína, var hann langt frá því að vera bjart- sýnn. — Sannarlega mun faðir Pipin koma okkur undan. Hann er sá maður, sem guð aðstoðar, sagði Páll hvað eftir annað við systur sína til þess að hughreysta hana. Allt í einu heyrðust miklar drunur, og þær fengu jafnvel sjóræningjana til þess að verða hljóðir sem gröfin. — Hvað .. . hvað er þetta? hrópaði María yfir sig hrædd. — Jarðskjálfti, sagði Páll rólegur. — Þú veizt, að jarð- skjálftar hafa orðið hér undanfarið. Drunurnar hljóðnuðu, en það var aðeins andartak. Aftur heyrðust drunur og nú miklu hærri en áður. Húsið skalf, og hurðin á fangelsi þeirra hentist úr dyrunum. Múrsteinn féll úr loftinu, og kalk og köngulóavefir féllu yfir börnin. Allt lék á reiðiskjálfi. Flúttinn írá sjóræningjahreiðrinu áll las boðskapinn af upprúlluðum pappírum i hálfum hljóðum fyrir Maríu systur sína. Faðir Pipin hafði komið þessum boðskap til hans á leynilegan hátt. TAKIÐ EFTIR: VERIÐ REIÐUBÚ- IN AÐ FLÝJA, stendur hér, sagði Páll. — Heyrðu, ar'a, þessi góði faðir vinnur að þvi að koma okkur úr Prisundinni. ^aría andvarpaði. Já, en hvernig tekst það? Hér í sjóræningjaþorpinu, ar sem við erum umkringd hópi af vondum mönnum, og 1 aS baeta gráu ofan á svart erum við læst inni, sagði hún v°nleysisiega. páil klappaði henni hughreystandi á axlirnar. . Faðir Pipin er vitur maður, og sem kirkjunnar maður ný'ur hann virðingar, meira að segja hjá ruddalegum sjó- *n'n9jum. Hann mun örugglega finna undankomuleið fyrir kur, sagði hann við systur sína. Prá stofunni fyrir neðan heyrðist hávaði upp til systkin- ®nna, staupaglamur, formælingar og drykkjusöngvar. María '^a skalf af hræðslu. ... þeitta gengur aldrei vel, umlaði hún. ^ystkinin tvö voru fangar í sjóræningjaþorpinu Port Royal f..^art|aica. Á ferðalagi frá föðurlandi þeirra, Frakklandi, til Ur þeirra, er var aðalsmaður, sem nú átti stórt land í — Komum okkur út, hrópaði Páll. — Leiðin stendur okkur opin, við erum frjáls. En út með okkur, eins fljótt og við komumst, annars verðum við grafin i rústum krárinnar. Þau hlupu nú eins hratt og þeim var framast unnt niður þrepin og voru brátt komin í hóp flýjandi og felmtri sleginna sjóræningja. Jörðin gekk i bylgjum og allur sjóræningja- bærinn nötraði. Alls staðar var ringulreið. Allt í einu hljóp maður í munkakufli til barnanna — faðir Pipin. — Þessa leið! hrópaði hann. — Guð hjálpaði okkur um síðir. Börnin fylgdu honum fast eftir. — Ég hef bát reiðubúinn á huldum stað, hrópaði faðir Pipin, — og nú um borð og af stað. Við megum engan tíma missa. Nokkrum mínútum siðar sigldu þau þrjú örugg af stað út á hafið á bátnum litla. Það síðasta, sem þau sáu af Port Royal, voru hrynjandi hús og eldsbjarmar. Þennan júlídag árið 1692 var sjóræningjahreiðrið Port Royal þurrkað út í miklum jarðskjálftum. — En Páll, María og faðir Pipin sluppu á hamingjuríkan hátt. Franskt her- skip fann þau degi seinna — og skömmu síðar voru þau komin heilu og höldnu á ákvörðunarstað.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.