Æskan - 01.05.1971, Síða 15
Baðfata-
pokinn
Við skulum vona, a3 þetta sumar verði sólrikt sumar og
að þið getið farið oft í sjóinn og sundlaugarnar. Pokann
undir baðfötin getið þið búið til úr baðmullarpjötlu, poka-
striga eða einhverju sterku efni — bara ef það litar ekki
frá sér, þegar það vöknar. Lengdin er 84 cm en breiddin
30 cm. — Og svo þurfið þið tvo tréprjóna eða mjóa lista
28 cm langa og bendil eða kantaband til að falda „hand-
fangið". — Klippið fyrst tvo jafnstóra hálfhringi úr efninu
7 cm frá hvorum enda (sjá mynd 2) þeir verða að vera
svo stórir, að hægt sé að stinga fingrinum gegnum gatið,
þegar þið berið pokann. Þið faldið götin svo með kanta-
bandinu. Svo saumið þið hliðarsaumana þannig, að 10 cm
verði eftir hvorum megin og leggið jaðarinn að ofan tvöfald-
an og saumið hann þannig, að hægt sé að stinga trélistan-
um i gegnum brotið. Saumið síðan stafina ykkar f aðra
hlið pokans.
Ef maður gerir það með miklu afli, sendir maður um
leið hópa af sýklum upp í eyrun. Ef nefið er stoppað, er
9°tt að nota nefdropa. Þeir bæta líðanina og hjálpa til að
'°sa. En notið þá þó varlega og aðeins að læknisráði. Of-
n°tkun getur sært slimhimnuna og þannig gert með tíman-
UrT| meiri skaða en gagn.
Venjið börn á að þvo sér um hendurnar, einkum ef þau
eru með kvef, og alltaf eftir að þau hafa snýtt sér.
N°tið aðeins pappírsþurrkur. Að nota léreftsklúta, þegar
ttaður hefur kvef, er hreint og beint sóðaskapur.
Lofið börnunum að ráða dálitlu um, hvort þau liggja í
ruminu eða ekki, þegar þau eru kvefuð. Það skaðar minna
a® iofa þeim að hlaupa um vel klædd í hlýju húsi, en að
reyna að halda þeim í rúminu, hvað sem það kostar, ef
uau hlaupa svo samt um berfætt um leið og við snúum
bakinu við þeim.
Að lokum: Meðan kvefið gengur yfir, engar heimsóknir
f^iaganna!
Kannski hefði barnið yðar ekki fengið kvefið síðast, ef
a®tir hefðu farið eftir þeirri reglu.
Þóra M. Stefánsdóttir þýddi.
15