Æskan - 01.05.1971, Side 33
Þegar RIP, RAP og RUP ætluðu í bíó
að var verið að sýna mjög skemmtilega kvikmynd
í Andabæjarbíói. Hún hét Hefnd kúrekans, og þessa
mynd vildu andarstrákarnir endilega sjá. Það átti
lika aðeins að sýna hana einu sinni — klukkan 7
Þá um kvöldið.
—• Við spyrjum Andrés, hvort hann vilji ekki gefa okkur
Peninga fyrir miðum. Hann hefur sjálfur sagt, að við mætt-
urn biðja hann um slikt, sagði Rip.
Andrés hafði skroppið í bæinn á bílnum sínum, en
skömmu síðar heyrðu strákarnir í bílflautu hans. Þeir þustu
ut að bílnum og hrópuðu samtímis:
'— Frændi, við viljum sjá mynd, sem heitir Hefnd kúrek-
ans- Viltu nú ekki gefa okkur peninga fyrir miðum.
En Andrés var þungur á brún, þegar hann ók bílnum
'nn i bílskúrinn. Það var ekki fyrr en hann hafði tekið
Sultukrukku úr skottinu, að hann sagði:
— Ef þið ætlið í bíó, þá verðið þið að útvega ykkur
Peninga til þess upp á eigin spýtur. Þið megið reiða ykkur
^ t>að, að hjá mér fáið þið ekki eyri. Þið hafið verið í öllum
Sultukrukkunum, sem amma gaf mér I sumar. Þið stingið
fingrunum niður i krukkurnar, þrátt fyrir það að ég er
stöðugt að segja ykkur, að ef þið viljið fá sultu, eigið þið
að nota hreinar skeiðar. Og svo á ekki að opna nema eina
kmkkuna.
"— Hvað ætlar þú að gera við alla hina sultuna? spurði
^aP dálítið undrandi.
Ég astla að nota hana á búsýslusýningunni — og
et til vill fa= ég þá verðlaun, það er að minnsta kosti mögu-
iegt.
~~ Já, en þetta er ekki þin sulta, frændi, svo að þú
9etur ekki. ..
Víst er það sultan mín. Amma hefur gefið mér hana,
°9 í auglýsingunni stendur: „Komið með sultu yðar og
^átið okkur sjá, hvort þér getið ekki aflað yður verðlauna."
~~ Já, en hugsunin bak við þetta er sú, að maður á sjálf-
Ur að búa sultuna til og . ..
' Allt í lagi, og haldið nú munnum ykkar saman —
a"'r þrír, sagði Andrés og skellti bílskúrshurðinni harka-
le9a aftur.
Strákarnir fóru inn og rannsökuðu peningaeign sína.
eim tókst að skrapa það miklum peningum saman, að þá
skorti nú 1 kr. og 85 aura, ef þeir á annað borð áttu allir
a3 komast í bíó.
þeir gengu út þungt hugsi og fóru niður götuna. Þeir
9engu fyrIr næsta götuhorn og að lítilli búð, þar sem Ijósa-
hólf voru framan við. í eitt þessara hólfa hafði Rup einu
sinni glatað tfeyringi. Honum kom þvi nú í hug, að ef til
vill gæti hann veitt tíeyringinn upp úr hólfinu. í næsta garði
komst hann yfir prik og eftir að hafa ýtt bréfi til hliðar sá
hann, að f hólfinu var hvorki meira né minna en tveggja
króna peningur.
En hvernig átti nú að ná honum? Ristin yfir Ijóshólfinu
var alltof þröng fyrir strákana.
Rip kafaði svo djúpt með aðra hönd sina niður í hólfið,
að andlit hans var alveg komið niður á ristina, og hann
var næstum því búinn að tapa jórturleðrinu sínu, gat rétt
klófest það með fingrunum. En þegar hann stóð með jórtur-
leðrið á milli handanna, fékk hann allt í einu góða hugmynd.
— Strákar, látið mig hafa jórturleðrin ykkar, sagði hann
og leit svo spekingslega út, að þeir hlýddu honum orðalaust.
Rip tók upp seglgarnsspotta og kom jórturleðrunum
þremur vel fyrir á öðrum enda hans, síðan lét hann spott-
ann síga hægt niður í Ijóshólfið. Rap og Rup skildu þegar,
hvað bróðir þeirra var að gera. Rap stakk prikinu niður í
hólfið og reyndi með því að ýta jórturleðrinu að tveggja
króna peningnum.
Skömmu síðár tókst þeim að láta peninginn hanga fast-
an, og Rip dró spottann varlega upp. En þegar peningurinn
var kominn langleiðina upp, losnaði hann og datt aftur niður
á botn hólfsins. Þetta endurtók sig 26 sinnum. Að lokum
tókst Rip að draga peninginn alveg upp að ristinni. En nú
var hann í vandræðum með, hvernig hann ætti að koma
peningnum upp um ristina.
Allt í einu hvarf Rup, en kom skömmu siðar aftur með
litlu frímerkjatöngina hans Andrésar, og með henni tókst
þeim að veiða peninginn upp um ristina. Nú gátu þeir allir
þrír farið í bíó. Þeir burstuðu af sér rykið, því að sannarlega
litu þeir ekki vel út eftir þetta allt saman. En þá komu
þeir auga á gamla bílinn hennar ömmu.
— Gott kvöld, börnin mín, sagði amma. — Er hann
Andrés frændi ykkar heima. Ég vil gjarnan líta rétt sem
snöggvast inn til hans. Ég var nefnilega að kom_i úr bíó.
Sá hina skemmtilegu mynd Hefnd kúrekans og ...
— Hvar segist þú hafa verið, amma? Og hvað er klukkan?
— Klukkan er korter yfir 9, og það er sannarlega kom-
inn háttatimi fyrir litla drengi. Komið upp í bilinn, ég skai
aka ykkur þennan spöl heim til ykkar.
Það voru mjög þögulir og niðurbeygðir litlir drengir, sem
klifruðu upp í gamla bílinn hennar ömmu andar.
E. B. þýddi.