Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1971, Síða 14

Æskan - 01.05.1971, Síða 14
Lítil aðstoð til sjáltshjálpar fyrlr foreldra jfveti<5 getur færzt niður í lungun, og þá fylgir því hósti, jafnvel hiti og sogandi ^ andardráttur. Það heyrist sog og hrygla í lungunum, og þá verður að sækja lækni. Lungnaslím verður að lækna um leið og það byrjar, annars getur það orðið að nokkurs konar astma, sem kemur ( Ijós í hvert skipti, sem barnið fær kvef. Það er þreytandi og erfitt, bæði fyrir börnin og foreldrana. Þessi tegund af astma er þó tiltölulega saklaus og hverf- ur yfirleitt með tímanum. Öðru máli gegnir um reglulegan ofnæmisastma, sem þarf að rannsaka nákvæmlega og Þ® verður að leita til sérfræðings. Ef barni með kvef og hósta versnar skyndilega og hitinn vex mikið, ef til vill með hitakrampa, örum andardrætti, rauðu andliti og þurrum hósta, er sennilegt, að lungnabólg3 sé í uppsiglingu. Þá er enginn vafi á, að um alvarlegan sjúkdóm er að ræða, og þá verður að ná strax í lækni. Með nútímalyfjum tekst venjulega fljótt að ná valdi a sjúkdómnum. Mikilvægustu varnir okkar gegn sýklum eru nefkirtlar og hálseitlar, og einkum reynir á þá á barnsárunum. Þess vegna verða þeir oft mjög stórir. Ef nefkirtlarnir verða svo stórir, að þeir hindri rennsli úr nefi, en því fylgir oft eyrnaverkur, er bezt að taka þá- Þá eru þeir til ills eins. Á sama hátt getur farið um hálseitlana, að þeir stækki svo og skemmist af sífelldum bólgum, að þeir verði, í sta® þess að vera til varnar, að viðvarandi aðsetri sýkla. Þá er auðvitað bezt að losna við þá líka. Fái barn þannig hálsbólgu með hita oftar en tvisvar á ári hverju, grípa menn því oft tíl þess ráðs að láta fjarlægJ3 eitlana. Að lokum nokkur ráð við öndunarfærasjúkdómum: Kennið barninu eins snemma og hægt er að snýta sér rétt, þ. e. a. s. aðra nösina í einu og mjög varlega. ♦ * 14

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.