Æskan - 01.12.1973, Side 65
KERTASTJAKI
Þessi kertastjaki er gerður úr harðviðl,
t. d. teak eða mahoní. Málin eru þessl I
stórum dráttum: Fótstykki: 12,5x7,5x1,6 cm.
Miðstykki: 11x2,6x2,6 cm. Hliðarstykki: 5x
2,6x2,6 cm. 2 stk. messingrör, lengd 16
cm.
Stjakinn er heflaður fyrst í lengdinnl 22
cm, og þegar hann er 2,6 cm á hvern veg,
eru sagaðir af honum tveir kubbar, efnið
f litlu stjakana tii hliðar, og verður þá
eftir miðstjakinn, u. þ. b. 11 cm á lengd.
Götin eða holurnar fyrlr kertin eru boruð
niður i endana og er það gert með 12
mm bor. Einnig þarf að bora götin fyrir
rörunum, en þau eru 4 mm í þvermál. f
stað röra mætti líka nota koparvfr af sama
sverleika.
Kertahaldara úr máimi þarf að setja f
götin að ofan vegna Ikvelkjuhættu. Stjak-
inn er festur þannlg á fótstykkið, að borað
er fyrir tveim skrúfum, sem eru um 2 cm
á lengd, og svo er borið griplím á stjaka-
endann um leið og hann er skrúfaður fast-
ur neðanfrá, upp f gegnum fótstykkið. At-
huga þarf, að stjakinn standi þá sem næst
miðju á fótstykkinu. Að síðustu mættl
bera teakoiíu á stjakann allan, nema botn-
inn, en á hann mætti líma grænan þerri-
pappir eða fllt.
MYNDIR NEGLDAR Á TRÉ
Efnið er þykk spónaplata eða krossviðarplata. — Fyrst er mynd sú, sem gera skal,
telknuð á plötuna með blýanti. Síðan veiur þú naglana, og lengd þeirra þarf að fara
eftir þvl, hve platan er þykk, því að ekkl er gott að oddar naglanna standi út úr bak-
hliðinni. Tii þess að negla I krossvið, værl e. t. v. bezt að nota blásaum, en I 20 mm
spónaplötu mætti nota stutta nagia með „dúkkuðum" haus.
---------------------------------------------------—
KERTIÐ A FLOTI
Þetta er mjög skemmtilegur leikur.
Þú leggur kerti ofan I skál með vatni,
og vitanlega flýtur það ofan á. Nú á
að reyna að ná þessu kerti upp úr skál-
inni með munninum, og það er nærri því
þess vert að heita verðlaunum fyrir að
gera það, því að það er mjög erfitt. En
áhorfendurnir skemmta sér vel, því að
gaman er að sjá andlitið á þeim, sem
reynir, í hvert sinn sem hann kemur upp
úr vatninu aftur, án þess að hafa náð I
kertið.
Munið að skiþta um vatn I skálinni I
hvert skipti sem nýr maður gerir til-
raunina.
>-----------------------------------------------------—-------------------------------------------------------------------------^
63