Æskan

Volume

Æskan - 01.02.1974, Page 27

Æskan - 01.02.1974, Page 27
fKlPASTIGARNIR 1 trollhattan í'eir óku .áfram og lögðu bílnum við „slúsurnar", eins og Sviar ^alla skipastigann. Þeir héldu að Pastiganum og gengu yfir brú, eða réttara sagt eitt hliðið, sem lokar fyrir l’atnið. Ýmsir, sem verið hafa í út- ^ndum, hafa séð skipastiga. Þeir fé- ‘ Sarnir Óskar og Þormar voru hins ^eSar í sinni fyrstu utanlandsreisu. ^eirn var þetta- því mjög nýstárlegt. euin, sem var £yrrum sjós> ut- • ni fyrir þeim, hvernig skip færu PP og niður þessa stiga. Þegar skip ur siglandi upp ána, upp að fyrsta repinu, er því siglt inn í hólf, sem r nokkru stærra en skipið. Hlið lok- st aftan við það, en síðan er vatni ueypt í hólfið, unz yfirborð vatnsins , jafnhátt vatninu í næsta 1« fyrir framan. Þá opnast hliðið aman við skipið og það siglir inn í næsta hólf. Síðan koll af kolli. Hlið lokast aftan við skipið, og nú er vatni hleypt inn í þetta hólf, unz það er orðið jafnhátt vatninu í næsta hólfi ofan.við. Svona gengur þetta, og við hvert þrep færist skipið marga metra upp á við, unz síðasta þrepið er að baki og skipið siglir út á ána ofan við fossana og gljúfrin í Trollháttan. Allt umhverfi Trollháttan er aðdá- anlega fagurt. Farvegur árinnar, skóg- urinn í kring og grænir garðar. Bygg- ingarnar spilla síður en svo umhverf- inu. Við hlið nýjasta skipastigans, því þeir eru þarna margir og frá ýmsum tímum, hittu þeir sænska menn. Þetta voru feðgar, sem voru að bíða eftir ættingjum. Þeir spjölluðu við þessa menn, og þegar þeir fréttu, að þarna væru íslendingar á ferð, tóku þeir að segja gestunum um Trollháttan,skipa- stigana og rafstöðvarnar. Nafnið Trollháttan finnst fyrst í skattaskrá Eiríks konungs af Pomm- ern árið 1413. Langt er síðan farið var að nota vatnið í Trollháttan og fall- hæð þess til þess að létta mönnum störfin við alls konar framleiðslu. Þarna voru reknar kvarnir og sögun- arverksmiðjur á 16. og 17. öld. Á eyj- unum í Gautelfinni þarna við Troll- háttan hafa hins vegar fundizt minjar um mannabústaði allt að sjö þúsund ára, gamlar. Árið 1730 er talið, að stór- iðnaður hafi byrjað á þessum slóðum, og árið 1847 voru vélaverkstæði NOHAB stofnuð þarna. Nú eru mörg og stór atvinnufyrirtæki við Troll- háttan. Fyrir utan NOHAB má nefna SAAB Scania og Volvo, sem fram- leiða þarna flugvélahreyfla o. fl. Ráða- gerðir um skipastiga, sem gert gætu Gautelfina skipgenga upp á vötnin miklu, kom snemma til umræðu. Sagt er, að Gústaf Vasa konungur hafi ver- ið sá fyrsti, sem gerði áætlanir um skipastiga upp yfir fossana miklu. Það var hins vegar ekki fyrr en um 1800, 25

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.