Æskan - 01.11.1976, Side 42
Sá yðar
sem ...
eftir Einar Loga Einarsson
r* essi saga, sem hérna birtist, er byggö á sönnum at-
burðum, en það að saga sé byggð á sönnum atburðum,
þýðir aö hún hefur gerst í alvöru, kannski ekki alveg
eins, en í meginatriðum. Þessi saga er af þeirri tegund,
að hún er alltaf að gerast aftur og aftur. Fyrsta sagan
gerðist fyrir löngu. Það er ekki eitt ár síðan, ekki tvö eða
þrjú, heldur ekki tíu, tuttugu eða þrjátíu. Jafnvel þótt við
færum okkur hundruð ára aftur í tímann, er lengra
síöan sagan gerðist. Það eru nefnilega næstum því tvö
þúsund ár síðan hún gerðist. En þessa sögu, sem þið nú
fáið að heyra, læt ég gerast í dag, eða kannski í gær, eða
kannski gerist hún á morgun. Hver veit? Við skulum láta
söguna gerast í barnaskóla, og auðvitað gæti hún þá
gerst í hvaóa barnaskóla sem er á landinu. í þessum
skóla voru mörg börn, bæði stúlkur og drengir. Sum
börnin voru prakkarar og ærslabelgir, en það er nú ekki
svo alvarlegur hlutur, ef prakkarastrikin eru góð, og
valda ekki skaða, enda held ég að flest ef ekki öll börn
séu ærslabelgir, þegar skoðað er niður í kjölinn. Strák-
unum í skólanum fannst þeir vera ansi kaldir karlar, eða
eins og stundum er sagt, karlar í krapinu. Og stelpurnar
létu oft ekki sitt eftir liggja. Þetta voru nú bestu krakkar
svona inn við beinið, og meintu sennilega ekkert illt með
uppátækjum sínum.
Stundum fóru börnin að rífast. Það gat verið út af ein-
hverju nauðaómerkilegu, svo ómerkilegu, að það tók því
varla að vera að rífast um það. Þegar tveir og tveir voru
að rífast, má segja að það hafi bara verið eðlilegur hlutur.
Mennirnir eru nú því miður einu sinni þannig gerðir, að
það er eins og þeir þurfi alltaf aó vera að rífast út af
einhverju. Ef þeir hugleiddu, hvaö þeim myndi líða miklu
betur, ef þeir væru ekki alltaf að þessu rifrildi, mundu þeir
kannski hætta því. Verra var þegar fleiri en tveir voru að
rífast, því þá vildu málin oft snúast þannig, að það voru
kannski allir á móti einum, og það er ekki drengilegt. Það
er nefnilega ódrengskapur að ráðast á garðinn, þar sem
hann er lægstur. Meirihlutinn þóttist auðvitað hafa á
réttu að standa, og taldi sig vera sjálfskipaðan dómara,
en það var mesti misskilningur. Meirihlutinn getur alveg
eins haft rangt fyrir sér og minnihlutinn.
Sagan byrjar einn vordag. Veðrið var einstaklega gott.
Sólin skein af heiðum himni og lognið var svo mikið, að
það bærðist varla hár á höfði. Kennari eins bekkjarins i
skólanum, við getum kallaó bekkinn A-bekk, leyfði
krökkunum að leika sér úti hálfa kennslustund, af því að
veðrið var svo gott. Þegar tími var til kominn að kalla á
börnin inn, gekk kennarinn út. Þá sá hann að öll börnin
voru í einum hópi úti á leikvanginum. Hann gekk nser til
að forvitnast um, hvað væri á seyði. Þegar hann kom til
barnanna, sá hann að þau höfðu myndað hring um litla
stúlku. Þau hreyttu ókvæðisorðum að henni, og einhver
heyrðist segja, að réttast væri að lemja hana.
,,Hvað gengur hér á?“ spurði kennarinn og var
höstugur í málrómnum. Einn frakkasti drengurinn varð
fyrir svörum.
,,Hún Stína svindlar, og svo kleip hún hana Siggu“.
Fleiri börn tóku nú undir, og ýmislegt var borið á aum-
ingja Stínu, sem stóð þarna í miðjum hringnum. Það var
komin skeifa á munninn á henni, en hún harkaði af sérog
grét ekki.
,,Þetta er Ijótt að heyra,“ sagði kennarinn.
Þetta virtist ýta undir börnin, og fleiri ásakarnr
heyrðust. Þá datt kennaranum dálítið í hug.
,,Nú skulum við koma inn í kennslustofu, og þá getum
við komið í nokkurs konar leik, sem sýnir, hvernig full'
orðið fólk hefði brugðist við slíku."
Við þessi orð urðu börnin forvitin. Þau flykktust að
skólanum og gengu svo í röð inn. Þegar þau voru kornm
inn í kennslustofuna og kennarinn hafði boðið þeim sasti.
sat hann dálitla stund þegjandi, meðan ró var að færast
yfir börnin. Þegar þögn var komin á, tók hann að tala-
Hann sagði:
,,Þið vitið það eflaust, að alls staðar í heiminum eru
menn, sem eru að brjóta eitthvað af sér. Þeir gera eitt-
hvað, sem ekki má gera, t. d. að stela, brjótast inn, berja
fólk og jafnvel drepa. Þegar næst í þessa menn, eru Þeir
dregnir fyrir dómstóla, og dómari dæmir þá. Auðvitað fer
það eftir því hversu alvarlegt brotið er, hver refsingm
verður. Stundum eru menn settir í fangelsi, eða þeir erU
látnir borga sekt. En öll vitið þið sjálfsagt að borga sekt
þýðir að borga peninga til að bæta fyrir brotið.“
ÆSKAN — Vinnið öll að því að útvega blaðinu nýja kaupendur strax í dag