Æskan - 01.11.1976, Blaðsíða 80
FRA UNGL1NGAREGLUNNI
Mér finnst gaman að starfa í barnastúku, við lærum að
koma fram, að stjórna fundum og lesa upp. Einnig er
mjög gaman í ferðalögum stúkunnar, en hún fer í dags-
ferðalag þegar starfi lýkur á vorin.
Þessari spurningu svaraði Klara Siguróladóttir; hún er
æðsti templar í Barnastúkunni Sakleysið nr. 3 á Akureyri-
Eins og sagði í septemberblaóinu var Hilmar Jónsson
endurkjörinn stórgæslumaður á síðasta Stórstúkuþingi. Af því
tilefni lögðum við fyrir hann nokkrar spurningar.
— Hvað er að frétta af útbreiðslumálum, Hilmar?
— í haust fóru Kristinn Vilhjálmsson og Arnfinnur Arnfinns-
soin til Vestfjarða og töluðu við gæslumenn og annað bind-
indisfólk. Standa vonir til að barnastúkan á Flateyri hefji starf í
vetur auk þeirra 3—4 sem þar störfuðu í fyrra.
« Nokkru síðar fóru Kristinn, Ari Gíslason og Stefán Halldórs-
son upp á Snæfellsnes og um Borgarfjörð í sömu erindagjörð-
um. Á einum til tveim stöðum verða gerðar tilraunir til aó
endurvekja barnastúkur er lengi hafa legið niðri.
Stórtemplar Indriði Indriðason hefur ásamt fleirum átt ferð
um Siglufjörð og rætt þar við bindindismenn. Ennfremur hefur
hann talað við gæslumenn barnastúkunnar á Húsavík og fleiri
stöðum.
Fleiri trúboðsferðir mætti tíunda, verður þeirra ef til vill getið
síðar.
— Nokkrar nýjungar á döfinni?
— Þegar þetta viðtal birtist hafa gæslumenn vonandi fengið
bréf frá stórgæslumanni, þar sem verkefni framundan verða
kynnt. Á fyrsta stjórnarfundi í Unglingareglunni var samþy
að láta fjölrita ný þekkingarbréf.
— Hvernig heppnuðust vor- og sumarmótin? |i(<a
Bæöi vormót barnastúkanna tókust sérlega vel. Þau v°rU^un
mun fjölmennari en í fyrra og dagskrá suöurlandsmótsins
vandaðri en árið áður. .g.
Bindindismótið í Galtalækjarskógi um Verslunarmanna
ina fór líka vel fram. Hins vegar er ég mjög óánægður yfir
fréttum sem borist hafa um skátamótið um Verslunar
helgina, Rauðhettu. Þar virðist hafa verið mikil óregla-
— Ertu bjartsýnn á framtíðina? jjs_
Ég hef alltaf verið bjartsýnn þrátt fyrir að staða bin in
manni virðist versna með hverju árinu sem líður.
Kjörorðið er: ÆSKAIM FYRIR ÆSKUNA
78