Æskan - 01.11.1976, Blaðsíða 47
,,Ó hjálp, hjálp, hjálpið þið mér,
égfasturer," _
og harin grætur, hljóóar og hrín,
,,Ó mamma, mamma mín.“
Mamma Bóla heyrir hljóóin
inni í sínum bæ,
heyrir hann Góla sinn
gráta sí og æ
og hleypur út og hrópar
,,Bóli, Óli og Vóli
ætlið þið ekki að hjálpa litla Góli
og bráðum komin jól
og ég er önnum kafin
af verkum mörgum hlaðin.
Ég baka, elda og þvæ
og Róli pabbi þarf að fara niðrí bæ
aö kaupa jólavarninginn
hann þarf að fara í kaupstaðinn.
Kaupir hann þar rúsínur, súkkulaói og kex
og ótal margt fleira sem engum má segja.
Og svo þarf hann að fara langt inn í dal
sem þú færð ei séð
að höggva jólatréð."
Og strákarnir allir og stelpurnar líka
ætla að hjálpa öll til
að skreyta jólatréð
og hengja á það kerti og kúlur
og allskyns gylltar súlur
og poka með sælgæti góðu
og eplin sætu og rjóöu.
Bóla og Róli og krakkarnir allir —
Þau halda öll gleðileg jól —
þau fá gjafir og gott —
og graut úr Grýlupott.
en einu ég gleymdi
það er gleðileg jól!
frá honum litla Gól!
Kettlinqarnir
Þrír litlir kettlingar sitja rólegir við gat, sem er á
gólfinu í þeirri von, að músin, sem þar á heima,
komi upp svo þeir geti étið hana.
Músin kemur ekki og þeir verða leiðir og vita
ekki að músin er komin og situr fyrir aftan þá og
bíður þess að þeir fari burt svo hún geti farið í
holuna sína og komist heim.
ÆSKAN — í bókaskrá blaðsins er boðið
upp á mörg hundruð bóka
45