Æskan - 01.11.1976, Page 53
Hvað veistu?
L
Enn fara Æskan og Flugleiðir af stað með spurninga-
keppni og nú er ekki til lítils að vinna. Ferð fyrir tvo fyrstu
vinningshafa til Chicago ásamt gistingu og skoðunar-
ferðum um þessa miklu verslunar- og iðnaðarborg.
Chicago, sem stendur við Michigan vatnið, er mesta
stáliðnaðarborg Bandaríkjanna og hún er mikilvæg mið-
stöð verslunar og viðskipta. í menningarlegu tilliti er
borgin einnig mjög markverð. í Oakpark, skammt vestan
Chicago, fæddist rithöfundurinn Ernest Hemingway,
sem gerði garðinn frægan með skáldsögum sínum, m.a.
sögunni ,,Vopnin kvödd” sem gerist í fyrri heimsstyrjöld.
Samskipti Islands og Bandaríkjanna eru orðin löng og
góð. Á 1000 ára afmæli Alþingis, árið 1930, gáfu
Bandaríkjamenn (slendingum minnismerki um Leif
heppna, sem nú stendur á Skólavörðuhæð í Reykjavík.
Flestir (slendingar sem til Ameríku fara stíga á land í New
York, en þangað hófu Loftleiðir flug árið 1948. Félagið
hóf svo flug til Chicago vorið 1972. Skip Eimskipafélags
íslands og fleiri skipafélaga hafa siglt til New York, bæði í
heimsstyrjöldinni 1914—18 og þótt siglingartil Ameríku
legðust að mestu niöur um hríð hófust þær aftur við
upphaf síðari heimsstyrjaldar og hafa staðið síðan, enda
eru Bandaríkin eitt aðalviðskiptaland íslendinga. Árið
1976 héldu Bandaríkjamenn upp á 200 ára afmæli sjálf-
stæðisyfirlýsingar sinnar. Þá var mikið um dýrðir, m. a.
sigling seglskipa, sem á engan sinn líka.
í hallæri á íslandi seint á 19. öld, fluttu margir ís-
lendingar til Vesturheims, þ. á m. til Bandaríkjanna. Þótt
erfiðleikar væru næstum óyfirstíganlegir í fyrstu, komust
flestir vel af og íslenska þjóðarbrotið í Kanada og
Bandaríkjunum er virt og nýtur álits. Einn þeirra sem
gerðu garðinn frægan var Vilhjálmur Stefánsson land-
könnuður, sem kannaði norðurslóðir og hefur ritað um
þau ferðalög og rannsóknir margar merkar bækur.
Segja má að flugið sé ferðamáti nútímans. Vagga
flugsins stóð í Ameríku, því enda þótt Evrópumenn hefðu
gert margar merkar tilraunir með flugvélar urðu það
Wright-bræður sem fyrstir smíðuðu nothæfa flugvél og
flugu í vélknúnu farartæki. Bæði Flugfélag íslands og
Loftleiðir nota amerískar flugvélar til millilandaflugs.
Loftleiðir Douglas DC-8-63 og Flugfélag íslands Boeing
727-C. Meginuppistaða flugflota heimsins eru banda-
rískar flugvélar og að öðrum gerðum ólöstuðum hafa
þær reynst frábærlega vel. Bandaríkjamenn hafa átt
marga ágæta flugmenn og allir minnast hnattflugsins
sem farið var árið 1924 með viðkomu á fslandi. Það var
líka Bandaríkjamaður, Charles A. Lindbergh, sem fyrstur
varð til þess að fljúga einn síns liðs frá New York til
Parísar.
Eins og margir vita eiga Flugleiðir hf. félögin Loftleiðir
og Flugfélag fslands. En Flugleiðir reka einnig þriðja
flugfélagið, International Air Bahama, sem flýgur milli
Nassau á Bahama-eyjum og Luxemborgar. Má því segja
að flugvélar og áhafnir tengdar félaginu hafi viðkomu allt
frá nyrstu byggðum Grænlands til hlýjunnar í Karíbahaf-
inu. Stjórn Flugleiða er skipuð 11 mönnum, en for-
stjórar eru þeir Örn Ó. Johnson, Alfreð Elíasson og
Sigurður Helgason.
Um nálægt 20 ára skeið hafa Æskan og Flugfélag fs-
lands og nú síðar Flugleiðir efnt til verðlaunasamkeppni.
Að sjálfsögðu er þetta aðeins einn þáttur í starfi
Æskunnar fyrir íslenskan æskulýð. fslendingar eiga
þessu þlaði mikið gott að gjalda því allt frá fyrstu blöð-
unum undir ritstjórn Sigurðar Júl. Jóhannessonar til nú-
verandi útgáfu undir frábærri stjórn Gríms Engilberts
ritstjóra hefur Æskan haldið uppi merki bindindissemi,
hófsemi og baráttu fyrir bættu mannlífi á landi voru. Það
er Flugleiðum hf. mikil ánægja að hafa samskipti við slíkt
ágætisblað.
Sveinn Sæmundsson
blaðafulltrúi.
12. Bandaríkjamaður af íslensku bergi brotinn kannaði
lifnaðarhætti eskimóa og nyrstu byggðir Ameríku. Hvað
hét hann?
a) Vilhjálmur Stefánsson
b) Jón Ólafsson
c) Sveinbjörn Egilsson
13. Bandaríkjamaður varð fyrstur til þess að fljúga einn
síns liðs frá New York til Parísar. Hvar var það?
a) Frank Caldwell
b) Charles A. Lindbergh
c) Sidney Webster
14. Hver var fyrsti ritstjóri Æskunnar?
a) Margrét Jónsdóttir
b) Sigurður Júl. Jóhannesson
c) Friðrik Friðriksson
15. Hverjir eru forstjórar Flugleiða hf.
a) Örn Ó. Johnson, Alfreð Elíasson, Sigurður
Helgason
b) Gunnar Sigurðsson, Sigurður Jónsson, Ingimar
Sveinbjörnsson
c) Einar Guðmundsson, Ásgeir Gunnarsson,
Guðmundur Jónsson.
51