Æskan - 01.11.1976, Side 62
Þegar hann opnaði augum, varð hann hissa á því að vera
enn lifandi. Hann lá fram á lappir sínar og horfði á hann.
Hrollur fór um Kavíri og hann lokaði aftur augunum til
þess að bíða dauða síns.
Hann leit aftur upp innan skamms, er engar klær læstust í
hann. Fyrir framan pardusdýrið kraup hvíti risinn, er hafði
lagt hann.
Maðurinn reri, og að baki hans reru sumir hermenn
Kaviris. En bak við þá sá hann hina loðnu apa.
Er Tarzan sá, að höfðinginn var raknaður við, talaði hann
til hans.
„Hermenn þínir segja mér, að þú sért höfðingi fjölmennrar
þjóðar og heitir Kavíri,“ mælti hann.
, Já,“ ansaði surtur.
„Hví réðst þú á mig? Eg kom með friði.“
„Annar hvítur maður kom með friði fyrir þremur tungl-
um,“ svaraði Kavíri, „og eftir að við höfðurn fært honum
gjafir, geit og brauð og mjólk, réðst hann á okkur með byssum
og drap menn mína en rændi fénaði mínum og mörgum
ungum körlum og konum.“
„Ég er ekki eins og þessi hvíti maður,“ sváraði Tarzan. „Eg
hefði ekki gert þér mein, hefðir þú ekki ráðist á mig. Segðu
mér: Hvernig var andlit þessa hvíta manns? Eg leita manns,
er hefur gert mér illt. Ef til vill er það þessi.“
„Hann var svipljótur, með mikið, svar/ skegg, og hann var
voða, voða-vondur; — já, voða-vondur.“
„Var lítið hvitt barn nteð honum?“ svaraði Tarzan og
stansaði hjartað því nær í brjósti hans, meðan hann beið eftir
svari.
„Nei, herra!“ svaraði Kaviri; , hvíta barnið var ekki með i
flokki þessa manns; — það var með hinum.“
„Hinum!“ hrópaði Tarzan. „Hvaða hinum?“
„Með hinum, sem vondi, hvíti maðurinn elti. Það var
hvitur maður, kona og barn og sex Mosula-burðarmenn. Þau
fóru upp ána þremur dögum á undan fjarska vonda mannin-
um. Ég held þau hafi verið að strjúka frá honum.“
Hvitur maður, kona og barn^Tarzan var í vandræðum.
Barnið hlaut að vera Jack litli, en hver gat konan verið — og
maðurinn? Gat það verið, að einn af mönnum Rokoffs hefði
gert samsæri með einhverri konu — til þess að stela barninti
frá honum?
Ef þessu var svo varið, hefðu þau eflaust ákvarðað að fara til
siðaðra manna með barnið og krefjast hárrar upphæðar >
lausnargjald eða krefjast þóknunar fyrir björgunina.
En fyrst Rokoff hafði heppnast að reka þau upp með ann>,
var lítill vafi á, að hann hlaut um siðir að ná þeim, ef þau ekk>
áður hefðu fallið í hendur mannætanna fram með Ugambi-
Tarzan þóttist viss um, að ætlun Rokoffs hefði verið að skilja
barnið eftir hjá þessum mannætum.
Meðan hann talaði við Kavíri, hafði bátunum verið róið
hratt upp ána til þorps svertingjanna. Hermenn Kaviris rern
þremur bátunum og gutu hornaugum til farþega sinna. Þrir
apar höfðu fallið, en eftir voru átta og Shita, pardusdýrið, °S
Tarzan og Mugambi.
Hermennirnir héldu, að aldrei hefðu þeir áður séð jaf'l0S
urlega áhöfn. Á hverri stundu bjuggust þeir við að vera rif'lir
sundur af óvættum þessum. Og satt að segja gekk Tarzan
hálf-illa að halda urrandi dýrunum i skefjum.
Tarzan dvaldi aðeins í þorpi Kavíris, meðan hann át þanl
mat, er honum var borinn. Hjá höfðingjanum átti hann að
tólf menn til þess að róa bátnum.
Kavíri var fús til þess að uppfylla allar óskir apamannsm
þvi hann vildi sem fyrst losna við hin hræðilegu dýr. En han
komst að raun um, að auðveldara var að lofa mönnum til I36
að ferðast með villidýrunum en að fá fnenn, því að þegar Pe\
sem ekki voru flúnir til skógar, heyrðu ætlun hans, flýðn Þe
hið bráðasta, svo hann sá, að enginn var eftir af mönnum
i þorpinu nema hann einn, er hann ætlaði að útnefna men
ina.
Tarzan gat ekki varist brosi. „
„Svo er að sjá, sem þeir séu ekki sólgnir i að fylgj3
sagði hann „en bíddu bara rólegur, Kaviri, og innan skam
munu menn þínir hópast til þín.“
Apamaðurinn stóð á fætur, og sagði Mugamba að veia ^
Kavíri, en lagði sjálfur af stað i skóginn með dýr sin á eftn
í hálfa stund heyrðist ekkert óvenjulegt hljóð í skógi'11
Kaviri og Mugambi sátu hljóðir í víggirtu þorpinu:
Skyndilega heyrðist ógurlegt öskur úr fjarlægð. M°ga
mb>
ÆSKAN — Myndasagan um Bjössa bollu hefur komið í blaðinu í 27 ár
60