Æskan - 01.11.1976, Side 71
í lítilli kompu í búð einni voru mörg
iólatré af öllum stærðum og gerðum.
Og alltaf var kaupmaðurinn að koma
ir>n og sækja jólatré, þangað til eitt
jólatré var eftir.
Það var dimmt og hljótt í búðinni og
jólatréð vissi að nú var búið að loka
óúðinni. Jólatrénu leiddist og það var
hraett. En þá heyrði það brothljóð og
hávaða við dyrnar. Jólatréð skalf allt
af hræðslu. Og svo opnuðust dyrnar.
þarna voru tveir illilegir menn. Þeir
tóku jólatréð ásamt öðrum munum og
fóru með það út í skott á bíl og
roaðurinn ók af staö. Jólatréð hopp-
aði til og frá í skottinu. Það verkjaði í
allar greinarnár og ein greinin brotn-
aöi. En loksins nam bíllinn staðar.
Jólatrénu var hent yfir háa
girðingu; þar tók maður við því og fór
með það inn í litla og óþrifalega kjall-
araíbúð. Jólatréð var sett í sprungna
fötu með smá sandi til stuðnings.
Síðan var það sett í lítið og Ijótt her-
bergi. Jólatréð vissi að því hafói verið
stolið og var því mjög hryggt. Það fór
að litast um. Allt var óþrifalegt í
kringum það, rykugir stólar með rifnu
áklæði voru í hverju horni herbergis-
ins og stórt borð á milli þeirra. Á
borðipu voru tómar flöskur, glös og
troðfullur öskubaki af sígarettu- og
vindlastubbum, rifin gluggatjöld
héngu fyrir glugganum sem var svo
óhrelnn að varla sást út. Tættur og
rifinn dregill var á miðju gólfi og undir
glugganum var eitt rúm og var teppi
breitt yfir með nokkrum götum hér og
þar, en undir teppinu lá lömuð stúlka,
sem fékk lítinn og vondan mat. Jóla-
tréð hrökk við þegar óþrifalegur karl
kom meðnokkrarbrotnarjólakúlurog
hengdi þær á jólatréð. En þegar litla
stúlkan vaknaði varð hún svo ham-
ingjusöm því í mörg ár hafði ekkert
jólatré verið á heimilinu. Þegar jóla-
tréð sá hvað stúlkan var hamingju-
söm, varð það ánægt og stolt yfir að
hafa getað glatt litlu stúlkuna á jólun-
um.
Helga Grímsdóttir
Fagurhól 2
Grundarfirði.
Útvegsbanki íslands hefur í ár staðið fjórum sinn-
UIT> fyrir getraunasamkeppni meðal lesenda
Æskunnar.
Á myndinni sjáum við starfsstúlku úr sparisjóðs-
deild bankans draga úr þrem fyrstu réttu lausn-
unum.
Skilafrestur á fjórðu getrauninni, sem birtist í
októberblaðinu, er til 15. desember.
Vinningar verða afhentir í Útvegsbankanum fyrir
jól, og mun starfsfólk bankans hafa samband við
þau börn, sem hrepptu vinningana.
^ið birtum í næsta blaði nöfn þeirra barna sem
höfðu heppnina með sér.