Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1976, Side 84

Æskan - 01.11.1976, Side 84
Fyrir 21 ári voru þessi drengur og hundurinn hans heimsfrægir. Sveita- strákurinn Jeff og fjárhundurinn Lassie heilluðu milljónir kvikmynda- húsagesta um allan heim. Hann er 33 ára, kvæntur söngkon- unni Darlene Poetwood og þau eiga tvo syni, Thomas, tveggja ára og Dean sex mánaða. Sem barn græddi Tommy Rettig milljónir á Lassie-myndunum, en þegar hann var orðinn of gamall til að leika drenginn gleymdist hann alveg. Síðan hefur hann lagt stund á margs konar störf, framleitt hljómplötur, selt fasteignir og verið sölumaður, en alltaf gengið laklega. Það var kvikmyndajöfurinn Sam heitinn Goldwyn, sem fyrir mörgum árum sagði hin fleygu orð: — Ég hef aðeins borið virðingu fyrir einum leik- ara. Hann kann alltaf hlutverk sitt, kemur stundvíslega, er ánægður með launin, drekkur sig aldrei fullan og veldur aldrei hneyksli. Það er Lassie. Hundurinn, sem bæði börnum og fullorðnum þykir vænt um, hefur verið á tindi frægarðinnar í 33 ár, en þetta er auðvitað ekki alltaf sami hundur- inn. Sú Lassie, sem nú er að leika í sjónvarpsþáttum í Bandaríkjunum, er sú 22 í röðinni og eigandi hennar, Bud Red Weatherwax, hefur tvo aðra hunda tilbúna, sem geta hlaupið í skarðið, ef eitthvað kemur fyrir. Bud Red hefur grætt milljónir dollara á hundum sínum, sem geta leikið ótrú- legustu listir, næstum allt nema talað. En þeir skilja svo til allt, sem sagt er við þá. Lassie lifir góðu lífi hjá eiganda sínum. Hún hefur stórt eigið herbergi og sérstakan garð. Á hverjum degi fær hún besta nautakjöt, nýjan fisk og undanrennu og á hverjum morgni er hún böðuð burstuð og greidd. Alls munu vera til um 200 Lassie- myndir síðan 1942, en sú fyrsta nefndist „Lassie komdu heinT'. í henni lék 10 ára stúlka sitt fyrsta hlut- verk, en ekki síðasta. Hún heitir Elizabeth Taylor. Verðlaunakrossgáta Æskunnar n. 3. Er dregið var úr réttum lausnum, komu upp nöfn eftirtalinna lesenda: Björg Elín Pálsdóttir, Hraunbæ 70, Reykjavík, Ingibjörg Hannesdóttir, Blönduhlíð 18, Reykjavík, Friðrik Rúnar Friðriks- son, Grundarfirði, Guðrún Óskarsdóttir, Sléttu- hrauni 25, Hafnarfirði, Rósa Jónsdóttir, Stekkjar- gerði 8, Akureyri, Helena Þ. Karlsdóttir, Öre- sundskollegiet 8, L. 207, 2300 Köbenhavn, Danmörku, Áslaug Kristinsdóttir, Hjallastræti 19, Bolungarvík, Guðfinna Sigurjónsdóttir, Miðtúni 19, ísafirði, Jón Gunnar Stefánsson, Meðalbraut 20, Kópavogi, og Marteinn S. Þórðarson, Byggðarholti 13, Mosfellssveit. KROSSGÁTA NR. 3. ? APA- TfWf/D kejr! T" Á . F/ETi NflPsr a cFTlé I WRKul T ’P 0 K I /' ¥ E R SkKiFa L 5TÓI2 K _ / fuóiue' FERÐ^- s N R R iwaðT TVtíft. *INÍ H R —r- ♦ R E Kj Nl 'I u 'B LAND'Á Vt\TU|t- aloa HflLM i h N ! G u t íb Q «■* i T X I Ni Siw/i U L'flTNU vt HliERFA — ‘A i 'fi -Mj— R ‘R 5 LEritf^T FR-k * * —*— * 5 T Holl- EMSWuC B'Tl .6 ft öj R b u B Félfttx, AKKKNftl Bff R ft 5TÓR TuiVfYA Tveie * 'R m R fi F I 'flVfXTií —r— R N i ■ R N ft For- FflölR. ft NÚWfl" ’ N 0 S*\Á- PeNlNírA U R ft ÆSKAN — Blaðið er nú orðið 77 ára gamalt og er alltaf ferskt og nýtt 82

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.