Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 82
BIFREIÐIN
I fyrstu var meiri gróska í bifreiðaiönaði
Bandaríkjanna í norðausturhluta þeirra,
þar sem iðnþróunin var meiri. Margir bíla-
smiöanna komu úr reiðhjólaiðnaðinum og
notfæröu sér ýmislegt úr þeim iðnaði, svo
sem loftfylltar slöngur og hjólbarða, svo og
teinahjól. Aðrir komu úr hinum langreyndu
hestvagna- og léttivagnasmiðjum, og það
skýrir, hvers vegna bílarnir líktust svo mjög
hestvögnum.
Smátt og smátt varð borgin Detroit í
Michigan í Bandaríkjunum miðstöð þessa
iönaöar á frumstigi hans — og er litið á þá
borg sem háborg bifreiöaiðnaðarins í
heiminum. Þar var stutt aö sækja járngrýti
og timbur, og vélsmiðjur voru í hundraða-
tali, er höfðu í þjónustu sinni starfsmenn
með reynslu í smíði skipavéla og viögerð-
um á þeim, sem notaöar voru í skip, er
sigldu á Stöðuvötnunum Miklu í grennd-
inni (the Great Lakes). Af 2.900 gerðum af
bifreiðum, sem framleiddar hafa verið
gegnum árin, héldu aðeins fáeinar velli, en
allar lögöu þær dýrmætan skerf til þessa
iðnaðar.
Fyrstu bifreiðaframleiðendurnir, sem
höföu lítið rekstrarfé, fengu ýmsa bílahluta
frá smiðjum, sem höfðu útbúnað til að
smíða þá. Framleiðandinn sá bara um
samsetningu bifreiðarinnar. Af þessu
lærðu þeir að staðla stærð og lögun bif-
reiðahlutanna. Hugmyndin var ekki ný.
Hundrað árum áður hafði Eli Whitney, sá
er fann upp baömullartínsluvélina, smíðað
þúsundir músketta fyrir her Bandaríkj-
anna, svo og staðlaða hluta fyrir þessar
byssur, sem skipta mátti um eftir vild.
Maður að nafni R. E. Olds var sennilega
sá fyrsti, er byrjaði að nota færibanda-
fyrirkomulag í bifreiðaiönaðinum. Árið
1901 keypti hann hús á bílana úr einum
stað, hreyfla úr öðrum og hjól úr þeim
þriðja og rak samsetningarverksmiðju.
Honum tókst að fjöldaframleiða rúmlega
12.000 bíla á fjórum árum á lægsta verði,
sem nokkru sinni hafði þekkst. Þessi
rennilegi bíll, sem Olds framleiddi, náði á
svipstundu vinsældum, og í útbreiddu
sönglagi var hann kallaður „My Merry
Oldsmobile" (Káti Oldsmóinn minn).
Henry Ford smíðaði fyrsta bíl sinn árið
1896. Ford varð kunnur fyrir tilraunastarf-
semi og sem kappakstursbílstjóri. Árið
1903 stofnaði hann fyrirtækið Ford Motor
Co. og hóf framleiðslu á bifreiöum, sem
voru svo dýrar, að einungis auðmönnum
var kleift að kaupa þær. Eins og R. E. Olds
hafði Ford trú á fjöldaframleiddum bílum á
hæfilegu verði. Hann hafði teikningar af
bílum, en gat ekki lækkað framleiðslu-
kostnaðinn, eins og hann óskaði.
Eftir nokkurra ára vinnu og rannsóknir
hóf Ford framleiðslu á hinni frægu bíl-
tegund „Model T" Ford. Þetta var
íburðarlaust ökutæki. Þessi bíll var nægi-
lega sterkur til að þola vonda vegi, og við-
hald á honum var tiltölulega auðvelt. Ford
framleiddi Model T-bíla — rúmlega 15
milljónir — um átján ára skeið og gat aldrei
fullnægt eftirspurninni. Mönnum þótti
vænt um þennan bíl og kölluðu hann
gælunöfnum, enda stuðlaði hann að því,
að þjóðin varð „á hjólum".
J
ÆSKAN er stærsta og fjölbreyttasta barna- og unglingablað á íslandi í dag.
78