Æskan - 01.01.1984, Blaðsíða 38
FJOLSKYLDUÞATTUR
umsjá Kirkjumálanefndar Bandalags kvenna í Reykjavík.
Enn eitt ár á enda er, áfram heldur tíminn. vigdís Einarsdóttir.
Ekki er stans né staldraö viö þótt áramót
komi á tímatali okkar.
„Því einn kemur þá annar fer“. Nýtt ár er
tekið við af því fyrra og hefur göngu sína
meö líkum hætti og önnur er á undan hafa
gengið. Við slík tímamót er hugur manna
óráðinn. Hvað ber nýtt ár í skauti sínu hverj-
um og einum til handa ?
Við rifjum upp, atburði er áttu sér stað,
sorg og gleði skiptast á, við dveljum löngum
við endurminningar frá slíkum stundum.
GLEÐILEGT ÁR 1984
LIFUM LÍFINU FYRIR ÍSLAND
Bæn okkar og von haldast í hendur um
betri tíð, jafnvel þótt allt leiki í lyndi, því ekki
er minni vandi að lifa lífinu farsæilega þegar
ekkert bjátar á heldur en þegar mótlæti og
erfiðleikar steðja að.
Biðjum þann máttuga lífsins föður að efla
með okkur réttlæti til orðs og æðis og blessa
okkar æskufólk og varðveita frá hættum
þeim er flæða yfir heiminn, og bíða færis að
eyðileggja hvert ungmennið á fætur öðru,
spyrnum við fótum gegn vímuefnum, njótum
lífsins heilbrigð á sál og líkama.
íslensk æska býr við mikið lán að vera
ekki skylduð til herþjónustu, eða að eiga á
hættu að láta lífið fyrir fósturjörðina af þeim
sökum, eins og það heitir á fagmáli stórþjóð-
anna, þegar kallið kemur á vígvöllinn. Æsku-
fólk margra þjóða deyr fyrir föðurlandið.
En við íslenskt æskufólk vil ég segja: Lifið
fyrir ísland, verið fyrirmynd annara þjóða í
öllu framferði og framgöngu, látið ekki leiða
ykkur út í spillingu, sýnið metnað ykkar og
sjálfstæði með því að standast freistingar
tískufyrirbrigða, sem leiða til glötunar dýr-
mætra eiginleika manndómsáranna.
Lifum lífinu fyrir ísland
Gleðilegt nýtt ár.
Vigdís Einarsdóttir.
38