Æskan - 01.07.1988, Qupperneq 12
Draugahúsið
Krakkarnir í Krílagötu
í Krílagötu stóð gamalt hús.
Það var í stórum garði
með mörgum trjám og runnum.
í þessu húsi bjó enginn
en samt var það fullt af dóti.
Þess vegna kölluðu krakkarnir
það draugahúsið.
Þau hafa aldrei komið inn
en oft klifrað upp á þak.
Einn góðan veðurdag
flutti fólkið í burtu
og kom ekki aftur til að eiga
þar heima.
Konan sem áttið húsið
hét Nikkólína.
Hún kom einstaka sinnum
og sótti eitthvað.
En hún stoppaði aldrei lengi.
- Af hverju
býrðu ekki í húsinu?
spurði Elli einu sinni
þegar Nikkólína kom í heimsókn.
- Ég ætla að selja, sagði konan.
Veistu um einhvern
sem vill kaupa hús?
Elli svaraði engu.
Hann vissi um einn
sem vildu kaupa.
Það var hann sjálfur.
Hann dauðlangaði
í draugahúsið.
Elli hafði heyrt
að í kjallaranum
væri flársjóður.
En hann átti bara enga peninga.
Hann fór til Viggu.
- Áttu peninga? spurði hann.
Nikkólína sagðist
ætla að selja draugahúsið.
- Við verðum að eiga hús
þegar við erum gift,
hélt Elli áfram.
Þetta fannst Viggu
heillaráð.
Hún sótti bankabókina sína
sem mamma hennar
geymdi niðri í skúffu.
- Ég á 365 krónur, sagði hún.
- Fínt, sagði Elli.
- Við tökum þær.
Svo sel ég geislabyssuna,
Hímen-höllina
og Hímen-karlana mína.
Þá hljótum við að eiga nóg!
-Mikið ertu góður, sagði Vigga.
Ætlarðu að selja allt
dótið þitt?
- Iss, ég má hvort sem er
ekkert vera að því að leika mér
þegar ég er farinn að búa,
sagði Elli.
- Förum og kíkjum á húsið!
sagði Vigga.
Svo þrömmuðu þau af stað.
En Nikkólína stoppaði aldrei
lengi og nú var hún farin aftur.
Þau gengu í kringum húsið,
börðu og lömdu.
En allt var harðlæst.
í garðinum var mikil óreiða.
Tré og runnar uxu út um allt
og blómabeðin voru
á kafi í grasi.
í garðinum var gamall
gosbrunnur.
Hann var falinn í grasinu.
Þar settust krakkarnir niður
og horfðu á gamla húsið.
Það var að koma kvöld
og farið að rökkva.
- Húsið er ferlega
ljótt og lélegt,
sagði Vigga alvarleg.
- Við verðum að mála,
sagði Elli spekingslega.
Ég fæ gamla málningu hjá pabba-
Hann á afgang frá því í fyrra
þegar hann málaði húsið okkar-
- Garðurinn er flottur.
Eins og í sögunni af Þyrnirós,
sagði Vigga dreymin.
- Við verðum að skoða húsið.
annars getum við ekki keypt Þaö’
Elli stóð ákveðinn upp.
- Kjallaraglugginn er opinn.
Við kíkjum inn!
- Já, sagði Vigga.
Kannski finnum við
fjársjóðinn.
Þau tróðu sér í gegnum
pínulítinn glugga
og komu inn í dimman kjallara-
- Það væri kannski betra
að hafa geislabyssuna með,
sagði Elli.