Æskan - 01.07.1988, Page 16
^Poppþáttur
Poö^hólf/
ÞungaroKKið
Kæra Popphólf!
Getur þú bent mér á hverjir semja
við útlendar hljómsveitir sem hafa
spilað hér? Ég ætla að biðja þá um að
hafa fleiri hljómleika og aðallega
þungarokkhl j ómleika.
Kær kveðja,
Smári Jósepsson, Patreksfirði.
Svar:
Það yrði langur listi sem á væru
nöfn þeirra sem staðið hafa fyrir
hljómleikum erlendra skemmtikrafta
hérlendis. En þú gætir byrjað á að
hafa samband við Reiðhöllina, Splitt,
Grammið, Hollywood og Hótel ís-
land.
Madonna
Halló, Popphólf!
Hvert er heimilisfang aðdáenda-
klúbbs Madonnu? Á hvaða tungu-
máli þarf að skrifa henni?
Helga.
Svar:
Þú skalt skrifa á ensku til:
Madonna
PO Box 1400, New York
NY 10020, U.S.A.
Pet 5hop Boys
David Sylvian
Hæ, Popphólf!
Gætirðu sagt mér eitthvað um
David Sylvian. Hann er gasalega sæt-
ur.
Dagga Sylvian, Vestmannaeyjum.
Svar:
Don Johnson
Kæra Popphólf! . ..
Ég myndi gjarnan vilja vita heint'
isfang Dons Johnsons.
Ein norðlensk.
Svar:
Don Johnson Club DJ
PO Box 1863, Encino,
California 91426, U.S.A
WhitesnaKe
(Dýrabúðardrengirnir)
Kæra Popphólf!
Getur þú frætt mig um Pet Shop
Boys?
Halla.
Svar:
Tölvupoppararnir Chris Lowe og
Neil Tennant hittust eitt sinn í raf-
magnsvöruverslun. Þeir tóku tal sam-
an og komust að því að músíksmekk-
ur þeirra var sá sami, þ.e. þeir hrifust
báðir mest af svokölluðu evrópsku
tölvudiskói. Þeir fengu ítalska upp-
tökustjórann Bobby O til að sjá um
upptöku á laginu „Vesturbæjarstúlk-
ur“ (West End Girls). Það náði feiki-
vinsældum í Frakklandi. Þá var allt
lagt undir til að sigra afganginn af
hinum vestræna léttpoppmarkaði.
Það tókst með lögunum „It’s A Sin“
og „Always On My Mind“.
Davíð Sylvian stofnaði hljómsveit-
ina Japan í Englandi fyrir 14 árum. í
upphafi var Japan frekar ómerkileg
glansrokksveit í anda New York
Dolls, Kiss og Alice Coopers. í ár-
anna rás færði Japan sig yfir í nýróm-
antíska diskó-tölvupoppið og endaði
loks feril sinn fyrir nokkrum árum
sem metnaðarfull og leitandi tækni-
poppsveit undir áhrifum frá Brian
Eno. Nokkru áður en Japan hætti var
Davíð Sylvían kominn með annan
fótinn yfir í japanska popp- og þjóð-
lagamúsík. Til viðbótar fer ekki á
milli mála að Davíð hlustar æ nánar á
söngstíl Bryans Ferrys og Davíðs
Bowies. Áhugi Davíðs Sylvians á
austurlenskri músík og samvinna
hans við austurlenska músíkanta
(Sakamoto, Sandii & The Sunsetz,
Masami Tsuchiya o.fl.) hefur tryggt
plötum hans meiri ferskleika en síð-
ustu plötum söngstílsfyrirmyndanna.
Kæra Popphólf! -
Vilt þú birta upplýsingar u
Whitesnake, veggmynd af þeim
límmiða?
Gerða.
Svar:
■dale>
37 ára drengur, Davíð Cover
frá Yorkshire (Jórvíkur-skíri) á .
landi stofnaði Whitesnake (Hvltsna -t
fyrir 10 árum. Þá hafði hljómsU ^
hans, Deep Purple, hætt skömmu .
ur. Með Whitesnake hefur p
sungið svipað þungarokk og
gerði með Deep Purple. I - ,
komst gamalt Whitesnake-lag> » a
I Go Again", ofarlega á vinsaelda
á Islandi eftir að hafa verið sett á 1
lenda safnplötu. Ef margir biðja
límmiða og veggmynd af Whitea^
er líklegt að orðið verði við P
bón. .