Æskan - 01.07.1988, Side 23
Á fórnum vegi
QunnlaU9.°?
á AKureyr*
^Úrþáttur hefur nú göngu sína. Við
°K.um tali börn og unglinga sem
tð hittum á förnum vegi — og
SrrxeUum mynd af þeim. Við stefn-
að því að hitta þannig að máli
rakka um allt land. Alltaf er
. ^tta á því að í blöðum, sem unn-
Ellen
eru á höfuðborgarsvæðinu og
afa fámennt staifslið, sé meira
JaUað um það sem gerist þar um
°ðir en annars staðar á landinu.
lð viljum reyna að víkka sjón-
eUdarhring okkar og lesenda með
Pessum þætti. Að þessu sinni er
aan aðeins á einni síðu en í
na?stu tölublöðum helgum við hon-
Urn meira rými.
Stundum er Ijósmyndarinn einn
aferð — þá hringjum við til þeirra
^771 hann hittir og tekur mynd
Gunnlaug Hinriksdóttir var á gangi
11111 Akureyri með blaðatöskuna sína
Pegar Heimi ljósmyndara bar þar að.
,°num fannst tilvalið að taka mynd af
j-'num úr hópi blaðbera - en við blað-
Urð starfa margir krakkar.
”Eg ber Morgunblaðið til fólks við
u°kkrar götur,“ sagði Gunnlaug. „Það
gengur vel. Ég byrjaði í sumar. Blaðið
Crtlur til mín um tíuleytið á morgnana
°S þá þarf ég að hraða mér með það til
askrifenda.“
^Unnlaug er 11 ára, verður 12 í des-
entber. Hún á heima að Steinahlíð 5A á
kureyri og er í Glerárskóla. Henni líkar
Vc^.1 skólanum og segir að stærðfræði sé
tirlaetis námsgrein sín.
hefur haft fleira fyrir stafni í
SlUnar. Hún gætti um tíma eins árs
r$nku sinnar, Katrínar.
^Unnlaug á þrjá bræður, tveir þeirra
eru 16 ára en sá þriðji þriggja ára.
>>Það er ágætt að eiga bara bræður.
Kkur kemur vel saman,“ segir hún
^egar ég forvitnast um hvernig henni líki
Vera eina stúlkan í systkinahópnum.
^unnlaug segir að skauta- og skíða-
Gunnlaug Hinriksdóttir - Ljósm.: HÓ
ferðir séu helsta áhugamál sitt. Hún fari
með vinum sínum á skíði í Hlíðarfjalli
ofan við bæinn og renni sér á skautum á
Þórsvellinum.
(Hér má geta þess að í Hlíðarfjalli er
ljómandi góð aðstaða til að stunda skíða-
íþróttir. Þangað er aðeins 10-15 mínútna
akstur úr bænum og fjöldi fólks notar sér
þetta ágæta svæði. Akureyringar hafa
líka löngum reimað á sig skauta í stilltu
frostveðri og svifið um á Pollinum,
innsta hluta Eyjafjarðar, eða á völlum
sem vatni hefur verið sprautað á. Nú
hefur verið útbúið ágætt svæði þar sem
vélfrysta má svell og hægt er að una
löngum stundum á skautum.)
Gunnlaug segir okkur að veður hafi
verið ágætt á Akureyri í sumar og stund-
um hafi hún fengið sér sundsprett í laug-
inni.
Hún fór til Reykjavíkur í sumar og
hitti þar skyldfólk sitt. Lengst segist hún
hafa farið til Keflavíkur.
Ætlar að æfa
knattspyrnu
**KANi
Ellen Jónína Sæmundsdóttir er líka ell-
efu ára. Hún verður tólf í janúar á næsta
ári og er því ári á eftir Gunnlaugu í Gler-
árskóla þó að aðeins sé mánuður á milli
þeirra. Hún á heima í Steinahlíð 5E.
„Ég fæddist á Akureyri en fluttist til
Raufarhafnar með foreldrum mínum
þegar ég var sex mánaða. Ég var þar til
Ellen Jónína Sæmundsdóttir - Ljósm. HÓ
þriggja ára aldurs og eignaðist góða vin-
konu sem ég held alltaf sambandi við.
Hún heitir Rakel. Ég heimsæki hana á
sumrin og hún mig. Við erum oftast
viku hvor hjá annarri. Þá leikum við
okkur á hjólaskautum, förum í sund og
spjöllum saman. Á milli skrifumst við á.
- En bestu vinkonur mínar hér eru
Eydís og Sigurbjörg,“ segir Ellen.
- Áttu fleiri pennavini?
„Já, stelpu sem heitir Jóhanna og á
heima í Kópavogi. Ég sá nafn hennar í
Barna-DV og skrifaði henni. Það var
núna í sumar. Ég hef ekki séð hana - en
við höfum skipst á myndum.“
Ellen segist hafa haft það hlutverk í
sumar að gæta Sæmundar frænda síns.
Hann er átta mánuða - var nýársbarn á
Akureyri í vetur, þ.e. fæddist fyrstur
barna þar á nýju ári.
Hún á þrjú systkini, tvítuga systur, 12
og 18 ára bræður. Sævar heitir sá sem er
12 ára - verður 13 í október. Ellen segir
að þau fari oft saman í knattspyrnu á
kvöldin, með mörgum öðrum krökkum.
Þeim systkinunum komi oft vel saman -
en ekki alltaf!
„Ég hef áhuga á íþróttum og ætla að
æfa fótbolta í vetur með Knattspyrnufé-
laginu Þór. Það eru margar stelpur í fót-
bolta.“
Hún segir að strákarnir séu alveg sáttir
við að þær taki þátt í leiknum með þeim
en þeir séu dálítið harðir, ýti oft við
stelpunum.
Ellen fór til Reykjavíkur í sumar með
foreldrum sínum og Sævari - og til
Keflavíkur og í Hveragerði. í fyrra fór
hún í siglingu með skipinu Sveinborgu
frá Siglufirði, (nú Þorsteinn frá Akur-
eyri). Pabbi hennar var kokkur á skipinu
og fjölskyldan fór til Englands, var þar í
fjóra daga, en síðan var siglt til Færeyja.
Þaðan flugu þau til íslands.
Við óskum viðmælendum okkar góðs
gengis.
123