Æskan - 01.07.1988, Side 26
Sjónvarpsstjarnan Alf heillar
áhorfendur um allan heim. Hann er
svo einstaklega vinalegur - þó að út-
litið sé ekki venjulegt. Það er ekki að
furða að hann skeri sig úr fjöldanum
- við getum ekki ætlast til þess að
íbúar plánetunnar Melmac líti út eins
og við!
Tommi heitir sá sem „lánar“ Alf
rödd sína svo að þýskir sjónvarps-
áhorfendur skilji hann. Hann segist
meta mest heiðarleika Alfs og hár-
beitt - óvægið - skopskyn hans.
„Alf er í rauninni mjög ráðvandur
- þó að hann svindli stundum. . .“
Alf er umsetinn blaðamönnum
sem vilja ólmir ræða við geimálfinn
loðna, eftirlæti fólks. Hér á eftir fer
nýlegt viðtal við stórstjörnuna - og
Alf er afar hreinskilinn eins og vant
er!
Blm.: Ef þér finnst of persónulega
spurt verður þú að segja til.
Alf : Ekkert er of persónulegt. Líf
mitt er eins og opin bók.
Blm.: Er það satt að þú hafi komist
sofandi á efsta tind frægðarinnar?
Alf : Það er alveg fráleitt! Ég fæ mér
að vísu stundum smáblund. . . - Það
er kannski ekki nógu sterkt til orða
tekið: Mér þykir óhemju gott að
sofa. . .
Blm.: Heldurðu að þú töfrir konur
enn meir eftir að þú varðst frægur?
Alf : Konur hafa alltaf dáð mig og
flykkst um mig. Ég hygg að það sé
ekki síst vegna þess hve feldur minn
gljáir.
Blm.: Áttir þú vinkonu á Melmac?
Alf : Rhondu! (Djúpt andvarp)
Blm.: Voruð þið „á föstu“?
Alf : Kynni okkar voru allnáin.
Blm.: Er venja að heilsa vinkonu á
ákveðinn hátt á þínum fornu slóð-
um?
Alf : Á fyrsta fundi nuddar fólk trýn-
um saman.
Blm.: Áttir þú heima hjá foreldrum
þínum á Melmac?
Alf: Já, - og höfðu þeir af því miklar
áhyggjur. En svo varð ég sérstakur
varðmaður reikistjörnunnar og hún
sprakk í loft upp - að því er við telj-
um. Við erum ekki alveg viss í okkar
sök.
Blm.: Hvernig þótti þér að vera Mel-
mac-búi? Hvað um stjórnarfar?
Alf : Það var dul-lýðveldis, fámælis-,
stjórnsemis-fótlaga einveldi. Af til-
viljun var konungur vor kvæntur
konu að nafni Díana. . .
Blm.: Hver var manna hyggnastur á
Melmac?
Alf: Það var Bob hinn mikli. Rithöf-
undur, stjórnskörungur og uppgötv-
ari trýniskoddanna og kattakremjar-
ans. Því miður lést Bob í þrumu-
veðri. Dreki steig ofan á höfuðið á
honum.
Blm.: Hver er ljúfasta endurminning
þín frá bernskudögum?
Alf : Þegar farið var að selja mjólk-
ursúkkulaði-hristing.
Blm.: Hver er besta leiðin til tungls-
ins?
Alf : Svo ótrúlega vill til að mér er
ekki fullkunnugt um það en þangað
má eflaust komast eftir stjarnleiðinni
39Z sem þér þekkið, vænti ég . . .
Blm.: Verða þér oft á mistök?
Alf : Afar sjaldan. En mesta skyssa
mín var að henda eggjum á reiki'
stjörnuna Zarsus. Fólk, sem hana
byggir, hefur alls ekkert skopskyn-
Blm.: Fyrir hvað virða vinir þínir þ1?
mest?
Alf : Aðdáun þeirra mun einkui11
sprottin af því hve ákaflega stórbrot-
in persóna ég er.
Blm.: En hvað er sagt þér til lasts?
Alf : Á bak mér mun nefnt að ég se
„billegur“.
Blm.: Hvaða ósk áttu þér helsta?
Alf : Mér yrði sannarlega mestut
fengur í að finna loks íþróttasko 1
réttri stærð!
Á þá leið var samtalið og Alf held'
ur ímynd sinni sem forhertur en
fyndinn og ómótstæðilegur . . •
Að lokum skal þess getið að frétttf
frá Bandaríkjunum herma að fleirl
hafi þekkt Alf á mynd en Dukakis>
forsetaefni Demókrataflokksins-
Hálfu öðru hundraði manna á kosn-
ingaaldri voru sýndar myndir 3
þeim kumpánum. 86 af hundrað1
gátu nefnt Alf með nafni - en 65°/“
vissu nafn mannsins sem ef til V1
verður næsti forseti Bandaríkjanna-
Þetta er glöggt dæmi um vinsældir
geimálfsins vinar okkar meðal fólks a
öllum aldri. . .
Þess má vænta að Alf birtist aftur 3
skjánum - en ekki fyrir áramót. • •
(KH endursagði lauslega eftír þýska blaðinu Bra
vo)
ÆSKA*