Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.12.1989, Qupperneq 16

Æskan - 01.12.1989, Qupperneq 16
sem lífnaði víð Ríkisútvarpið tekur bráðlega til sýningar sjö nýja þætti um pappastrákinn Pappírs-Pésa. Æskan hitti að máli þrjá krakka sem fara með mikil hlutverk í þáttunum. Texti: Elísabet Elín 14 ára. Myndir: Guðmundur Viðarsson. Á annan í jólum ætlar Ríkissjónvarpið að endursýna myndina um Pappírs- Pésa, pappírsstrákinn sem lifnar við. Hún var sýnd í sjónvarpinu á nýársdag 1989 og margir krakkar urðu hrifnir af þessum sniðuga pappastrák. Það verða því áreið- anlega margir ánægðir að heyra að eftir áramótin verða sýndar fleiri myndir um Pappírs-Pésa. Fyrsta myndin um hann var tekin sumarið 1988. Myndin um Pappírs-Pésa er byggð á leikriti Herdísar Egilsdóttur. Ari Kristins- son skrifaði handritið að myndinni og var líka leikstjóri. Nú hefur Ari skrifað hand- rit að sjö nýjum myndum um Pappírs-Pésa og félaga hans. Fimm af þessum myndum voru teknar í Reykjavík, Hafnarfirði og víðar í sumar og tvær þeirra verða teknar eftir áramótin. Kvikmyndatöku annaðist Svíinn Tony Forsberg, sá sami og annaðist töku á hinum vinsælu þáttum um Nonna og Manna. Myndirnar verða sýndar á næsta ári bæði í íslenska og þýska sjón- varpinu. Bók um Pappírs-Pésa að koma út Fyrir jólin kemur út fyrsta bókin í flokki um Pappírs-Pésa. Það er Mál og Menning sem gefur hana út. Næsta bók kemur síðan út snemma á næsta ári. Bæk- ur þessar eru gerðar eftir myndunum sem kvikmyndagerðarfélagið Hrif hf. framleið- ir. Það er „mamma" Pappírs-Pésa, Herdís Egilsdóttir, barnakennari og rithöfundur, sem skrifar textann í fyrstu bókina. Fjöldi teikninga verður í bókunum og eru þær unnar af Þjóðverjanum Bernd Ogrodnik sem stjórnar hreyfingum Pappírs-Pésa í myndunum. í myndunum um Pappírs-Pésa koma margir við sögu, ungir, gamlir og meira að segja hundur sem er þar í einu aðalhlut- verkanna. Mest mæðir þó á Pappírs-Pésa sjálfum og þremur krökkum. ÆSKAN ræddi við þessar þrjár tilvonandi sjón- varpsstjörnur en þær heita Högni Snær | Hauksson, 9 ára, Kristmann Óskarsson, 10 ára og Rannveig Jónsdóttir, II ára. Öll eiga þau gælunöfn. Kristmann er til dæmis alltaf kallaður Manni, Rannveig Gagga og Högni segist vera eins og kötturinn Högni hrekkvísi. Högni og Gagga eru bæði í Varmárskóla í Mosfellsbæ, Högni í 3. bekk og Gagga í 5. bekk, en Manni er í 4. bekk í Digranesskóla í Kópavogi. Skemmtilegra að leika í sjónvarps- mynd en auglýsingum Ég spurði þau fyrst hvort þau hefðu leikið eitthvað áður en þau byrjuðu í Pappírs-Pésa: „Já, ég hafði leikið í auglýsingum," segir Högni. „Það voru bæði blaða- og sjón- varpsauglýsingar. Ein auglýsing var um ís- lendingasögurnar, önnur um Kringluna, ein Kornflöguauglýsing og ein bílaauglýs- ing.“ „Ég hafði aldrei leikið áður,“ segir Manni. 16 Æskaji
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.