Æskan - 01.12.1989, Qupperneq 65
að eiga þar heima á sumrin. Mér fannst
sumarveðrið ferskt og gott. Hér í North-
port verður svo rosalega heitt á sumrin
að við krakkarnir getum ekki verið mikið
úti við.
Á Islandi heimsótti ég marga ættingja
mína. í Reykjavík dvöldumst við hjá
ömmusystur okkar, Herdísi Jónsdóttur,
og manni hennar Gunnari Biering. Við
heimsóttum líka ættingja okkar á Akur-
eyri, Rönnu Ingvarsdóttur og Eirík Sveins-
son. Við eigum rúmlega 20 nána íslenska
ættingja.
Við ferðuðumst dálítið um landið, fór- 1
um til Mývatns, í Námaskarð og á Þing- 1
velli. Ég fór á hestbak og fannst það mjög l
gaman. Einnig var gaman að koma í úti- I
sundlaugarnar. Ég verð aftur á móti að |
segja að mér fannst mjög dýrt að versla á i
íslandi." (Það er mjög ódýrt að versla í i
Alabama. Innskot blm.)
- Hefur amma ykkar sagt ykkur mikið
frá íslandi?
„Aðeins lítillega. Mamma hefur sagt i
okkur meira.“ i
Kristína bætti við að heima hjá ömmu |
hennar í Minnesóta væri regla að þau syst- §
kinin segðu „takk fyrir matinn!" á ís- f
lensku. Þau kunna ekki mörg fleiri íslensk f
orð. Hún getur líka sagt: „Nei, já, ekki, i
einn, tveir, þrír, amma, mamma, afi“ á ís- f
lensku. 1
En finnst Kristínu tungumálin ólík? f
„Nei. Þau hljóma svipað í mínum eyr- f
um þó að ég skilji ekkert í öðru málinu,“ i
svarar hún. |
Kristína fær 3ja mánaða sumarleyfi frá f
skólanum - eins og íslensk skólabörn. f
Hún sinnir þá áhugamálunum mikið, synd- f
ir talsvert og fer í ferðalög með fjölskyldu |
sinni. í fyrra fór hún til New Orleans i
(stórborg í næsta fylki við Alabama), einn- |
ig í Disneyland á Florída. Auk sunds og f
ferðalaga hefur hún mikinn áhuga á steina- f
söfnun. Á sumrin er boðið upp á nám- f
skeið í skólanum þar sem nemendur geta i
gert margt skemmtilegt. í fyrra valdi |
Kristína að læra um steinasöfnun og f
landafræði. Skólinn hefst á nýjar>4eik á f
haustin. í fyrra var hún með 23 til 32 f
nemendum í bekk - eftir því um hvaða f
námsgreinar var að ræða. Hún er ekki i
enn búin að gera upp hug sinn um fram- i
tíðarstarf, segist hafa nógan tíma til þess. i
Áður en ég sneri mér að bróður henn- 1
ar spurði ég hana hvort hún héldi að ís- f
iensk og bandarísk börn væru ólík.
„Nei, ekki held ég það,“ svaraði hún. f
„Ég býst við að við höfum svipuð áhuga- f
mál þó að við tölum sitt tungumálið hvor. f
Svo erum við kristinnar trúar!" i
Vill verða vísindamaður
Páll Jón Visscher fæddist 24. apríl 1979
í Tuscaloosa (bæirnir Tuscaloosa og
Northport liggja saman, svipað og Reykja-
vík-Kópavogur) og hann hefur því átt
heima á þessum slóðum frá fæðingu. Aðal-
áhugamál hans eru söfnun mynda af körfu-
knattleiksliðum, körfuboltaleikur og
skátastarf. Einnig finnst honum gaman að
synda og vera í sumarskólanum. Þar gefst
honum tækifæri til að kynna sér betur
ýmis áhugasvið undir leiðsögn kennara. í
fyrra fór hann með bekknum sínum til
Japans til að læra teikningu. Honum fannst
það stórkostleg ferð. Páll Jón getur hugs-
að sér að verða „einhvers konar“ vísinda-
maður í framtíðinni enda finnst honum
skemmtilegast að læra um slíka hluti í skól-
anum. Sagnfræðin heillar hann líka. Eink-
anlega hefur hann gaman af því að fræðast
um Indíána og landkönnuði.
íslandsferð fjölskyldunnar berst í tal.
Hvað fannst honum um hana?
„Mér fannst gaman að koma þangað,“
svarar hann að bragði. „Ég hafði ekki
fremur en Kristína séð íslenska ættingja
mína áður. Ég var mjög hrifinn af landslag-
inu, það er stórbrotið og fallegt. Við fór-
um að sjá Goðafoss og húsið Höfða þar
sem Reagan, forseti minn, og Gorbasjov
hittust. Áður en ég kom til landsins vissi
ég að víkingar hefðu numið þar land og
líka að þar væri mjög kalt.“
Kvöldið leið hratt og það var mikið
spjallað. Foreldrarnir tóku annað veifið
þátt í umræðunni. Þegar blaðamaður hafði
spurt börnin í þaula og talið sig hafa feng-
ið nóg í stutta grein slíðraði hann penn-
ann. Því næst var honum boðið upp á
glæsilegar veitingar á heimilinu. Hann
mætti bandarískri (og íslenskri ?) gestrisni
eins og hún gerist best. Heimsókn þessi
varð vísir að nánari kynnum við fjölskyld-
una. Hann átti eftir að koma nokkrum
sinnum til hennar og þiggja góðgerðir á
meðan hann dvaldist í Northport.
En áður en hann kvaddi þetta kvöld
spurði hann þau Kristínu og Pál að því
hvort þeim fyndist þau vera íslendingar að
einhverju leyti.
„Já, svolítið - vegna þess að mamma
okkar fæddist þar og amrna," svöruðu þau
um hæl.
Og þegar blaðamaður ók frá húsinu
stuttu seinna og inn í heitt kvöldmyrkrið
ómaði þetta svar enn í höfði hans. Honum
fannst hann hafa dottið niður á góð loka-
orð - og því mál að skrifum linni.
- Eðvarð Ingólfsson
Frá Northport - í nágrenni viö heimiii Páls Jóns og Kristínu Maríu.
Æskan 65