Æskan - 01.12.1989, Blaðsíða 26
Nöfn bifreidategunda
Kæra Æska!
Eg sendi þér tvær þrautir:
Þekkið þið nöfn þriggja bílateg-
unda sem byrja á F og tveggja sem
byrja á M og T?
Reynið að finna lausn á þessu:
XOIX.
Ég vil líka gjarna eignast stúlkur að
pennavinum.
Atli Kristjánsson 11 ára,
Furugrund 28, 200 Kópavogi.
Þakka þér fyrir þrautirnar, Atli.
Þegar lesendur hafa reynt að leysa
úr þeim geta þeir litið á bls. 78 til að
athuga hvort svarið sé rétt.
Kæra Æska!
Ég er mikill aðdáandi Madonnu og
yrði fegin ef veggmynd eða límmiði
með mynd af henni fylgdi Æskunni
á næstunni.
Ég sendi líka þrjár gátur:
1. Hvað er hægt að finna í tómum
vasa?
2. Hvort eru páskar fyrir eða eftir jól?
3. Hvað getur mús dregið jafnauð-
veldlega og fíll?
Dísa.
Svör við gátum eru birt á bls. 78.
Líkur aukast á því að veggmynd af
Madonnu berist aðdáendum - og
öðrum áskrifendum Æskunnar
- snemma á nœsta ári.
Bréf frá Kalifomíu
Kæra Æska!
Ég heiti Hulda María Stefánsdóttir
og á heima í Kaliformu. Ég fluttist
þangað frá Grindavík fyrir tveimur
og hálfu ári. Hér er ágætt að vera,
heitt í veðri og rignir sjaldan. Mig
langar samt alltaf meira til þess að
vera á íslandi þar sem allir vinirnir og
skyldfólkið eru.
Ég á bandaríska vinkonu sem lang-
ar til þess að eignast að pennavinum
íslenska stráka á aldrinum 13-14 ára.
Póstfang hennar er:
Heather Swansson,
400 Montclair Rd.,
Los Gatos, Ca. 95030, U.S.A.
Heather (Heiður) er 13 ára. Áhuga-
mál hennar eru hafnabolti, hestar,
skíðaferðir á vatni og í snjó, strand-
ferðir og margt fleira.
Sjálfa langar mig til að skrifast á
við stráka á aldrinum 13-15 ára.
Áhugamál mín eru skíðaferðir, ferða-
lög, tungumál, langhlaup og margt
fleira. Ég er að verða 14 ára.
Þökk fyrir gott blað.
Hulda María Stefánsdóttir,
225 E. Wood, Ct.,
Los Gatos, CA. 95030, U.S.A.
Flogið með bréf
til útlanda
Kæra Æska!
Mig langar til að spyrja þig nokk-
urs:
1. Hvernig á að skrifa erlend heimil-
isföng?
2. Hvað kostar undir bréf til útlanda?
3. I hvaða skóla þarf að fara til að
geta orðið flugfreyja?
Með fyrirfram þökk,
Anna.
Svar:
1. Eins og Hulda María gerir. (1
pennaviitadálkum eru einnig ýmis
dœmi um póstáritun)
2. Gjöld fyrir bréf til Norðurlanda eru
þau sömu og hér innanlands. Ollu
meira þarf að greiða fyrir bréf til ann-
arra Evrópulanda og enn meira fyrif
bréf er lengra fara. Á pósthúsum er til
skrá yfir burðargjöld.
3. Þeir sem ráðnir eru til flugfreyju-
og flugþjónsstarfa - eftir að hafa tek-
ið inngöngupróf og verið reyndir i
viðtali af nefnd sem kannar hœfm
umsœkjenda - fara í námskeið sem
flugfélög efna til. Góð, almeiin
menntun er nauðsynleg til að fá þeda
starf. •
26 Æskan
Ljósmynd: Guðmundur Viðarsson