Æskan - 01.12.1989, Síða 51
„Ætlarðu ekki að koma niður og
borða og taka upp gjafimar með okkur
mömmu?“
„Jú, jú, ég ætla bara að klæða mig
fyrst.“
Sjana fór út og Oddný klæddi sig í
spariföt. Hún fór fram á bað og greiddi
sér. Þá heyrði hún dillandi hlátur
Sjönu og einnig hlátur mömmu. Skyldi
Sjana vera búin að jafna sig?
Þegar hún kom inn í stofuna sá hún
hvar mæðgumar sátu á gólfinu fyrir
framan jólatréð og voru að spila.
„Ó, ertu komin, elskan, þá skulum
við fara að borða.“ Oddnýju fannst
hryllilegt að þær vom bara þrjár við
matarborðið og þrjár að taka upp gjaf-
irnar en hún lét samt til leiðast og sat
hjá þeim.
O, hún þoldi ekki Sjönu að taka
þessu svona létt. Hún vissi að hún var
búin að missa pabba sinn en samt var
hún svona kát.
Bráðum yrði pabbi, pabbi hennar,
búinn að fá aðra konu og mörg böm
og þá yrði pabbi hennar einnig pabbi
þeirra.
Eftir svolitla stund sátu þær þrjár fyrir
framan jólatréð og mamma þeirra lét
þær skiptast á að lesa utan á pakkana.
Hún reyndi eftir bestu getu að
skemmta þeim en þá þoldi Oddný ekki
lengur við. Hún hljóp inn í herbergi.
Þegar hún hafði legið þar dálitla
stund kom Sjana inn.
„Oddný, finnst þér ekki að við ætt-
um að vera betri við mömmu. Henni
líður líka illa, kannski verr en okkur.
Hún reynir þó að hjálpa okkur. Oddný,
þessu verður ekki breytt. Við verðum
að sætta okkur við þetta. Við fáum þó
að sjá pabba. Sumir feður deyja og
bömin sjá þá aldrei framar.“
„Allt í lagi.“
Allt í einu þótti henni svo vænt um
Sjönu fyrir að segja henni sannleikann.
Þó hafði hún vitað hann allan tímann
en vildi ekki trúa. Hún VILDI fá föður
sinn til baka.
Systumar leiddust fram. Það var
auðsýnilegt að mamma hafði grátið.
„Ó, mamma. Ég elska þig. Ekki
gráta, ég skal bæta mig eins mikið og
ég get. Ég skal gera mitt besta.“
„ÞAKKA ÞÉR FYRIR.“
Eftir um það bil ár hafði Oddný sætt
sig við þetta. Mamma hennar gifti sig
aftur og einnig faðir hennar.
(Sagan hlaut aukaverðlaun í samkeppni Æsk-
unnar og Bamaútvarpsins 1988)
Hvað
sá
hann?
Gummi er að æfa
sig fyrir skautamót.
Allt í einu hrekkur
hann íkút og
starstansar. Hvað
sérhann?
Skrifaðu heiti þess
sem Gummi sér og
sendu Æskunni,
pósthólf 523, 121
Reykjauík. Prír ungir
lesendur hljóta
verðlaun.
Allt
hafði
ruglast
Sigga litla gerði við
brúðumar sínarfyrir
jólin. En hún flýtti sér of
mikið og ruglaðist þegar
hún setti höfuð á þær
aftur. Getur þú hjálpað
henni. Ritaðu þá á blað
hvaða tölu- og bókstafir
eiga saman. Prenn
verðlaun. Mundu að
geta um aldur.
Æskan 51