Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.12.1989, Qupperneq 27

Æskan - 01.12.1989, Qupperneq 27
Æskumöppur Góða Æska! Getur þú látið útbúa möppur fyrir Æskuna? Viltu birta veggmynd af Mikjáli J.? Ég hef verið áskrifandi í fimm eða sex ár. Þúsund þakkir fyrir gott blað. Guðný Kristín Bjarnadóttir, Eyrargötu 6, 400 ísafirði. Möppur merktar Æskunni hafa lengi verið til og munu fást í bóka- verslunum. Fyrirspurn um veggmynd var svar- að í 9. tbl. Um leikara Æskupóstur! Þakka þér afar vel fyrir allar upp- lýsingar um Tom Hulce (4. tbl. 1989). Mig langar til að biðja þá sem lesa þetta og vita eitthvað um hann að segja frá því í Æskupóstinum. Ekki væri amalegt, kæra Æska, að fá lím- miða eða veggmynd af honum. Ég væri líka fegin ef ég fengi eitt- hvað að vita um leikarann Ron Hud- son. Selma. Vonandi getur einhver lesandi sagt frá umrœddum leikara. . . Kvalinn hvalur... Kæri Æskupóstur! Ég þakka afar gott blað. Ég hef verið áskrifandi þó nokkuð lengi og hef skrifað einu sinni áður en þá var bréfið ekki birt. Mig langar til að biðja um vegg- mynd af Eddie Murphy, Michael J. Fox og Bruce Lee. Ég læt eina skrýdu fylgja: Vitið þið hvað hvalsunginn sagði við mömmu sína úti á miðju Atlants- hafi? „Mamma, ég er þyrstur.“ Gísli Óskar Ólafsson. Bréf frá Japan Kæri ritstjóri! Ég mæti það mjög mikils ef þú verðir litlu einu af dýrmætum tíma þínum til að kynna þér beiðni mína. Ég hef lengi haft mikinn hug á að eiga bréfaskipti við íslendinga og komast þannig í góð kynni við þá. Ungt fólk í Japan vill mjög gjarna eiga vinsamleg samskipti við fólk í öðrum löndum. Ég hef einkum afar mikinn áhuga á góðum tengslum við fólk í föðurlandi þínu. Mér væri mikil þökk í að þú læsir þessa málaleitan og gleddist mjög ef þú birtir bréfið í blaði þínu og ég kæmist þannig í kynni við lesendur þess. Ég er kennari, 29 ára að aldri, og hef áhuga á tónlist, listum, frímerkja- söfnun og tölvuleikjum. I bréfaskipt- um rita ég á ensku. Nafn mitt er Masako IKEDA, og heimilisfangið er: 164-8, Kamekuma, Makabe-Machi, Ibaraki, 300-44, JAPAN. Japanir rita kurteisleg bréf. Þó að bréfritari sé eldri en fiestir lesendur Æskunnar kunnum við ekki við ann- að en birta það - svo vel var þess beð- ið. Þið mœttuð vekja athygli fullorð- inna á bréfinu - þeirra sem þið teljið að hafi áhuga á að eignast pennavin í fjarlœgu landi. Danskir pennavinir Kæra Æska! Mig langar til að eignast danska pennavini á aldrinum 12-14 ára. Áhugamál mín eru dýr, dans og tón- list. Getur þú birt heimilisfang danskra barnablaða? Iris Huld Guðmundsdóttir, Karfavogi 19, 104 Reykjavík. Danska sendiráðið hefur ekki getað útvegað okkur heimilisfang dansks barnablaðs og telur að slíkt sé ekki gefið út. . . I unglingablaðinu Vi unge er pennavinadálkur. Póstfang þess er: Postbox 128, 2900 Hellerup, Dan- mark. Neðst í vinstra horn umslagsins á að rita: Modestedet. Birting bréfs í því blaði kostar tíu danskar krónur. Gjald á að senda í frímerkjum. (Vœntanlega er heppilegast að kaupa alþjóðleg svarfrímerki í pósthúsi. . .) - Blaðið fœst víða í bókaverslunum. I 8. tbl. birtum við póstföng nokk- urra erlendra pennavinaklúbba. Þeir geta eflaust útvegað þér danska pennavini. Ef til vill geta einhverjir lesenda blaðsins líka greitt götu þína. Veggmyndir af Duran-Duran Kæra Æska! Mér finnst þú mjög gott blað og hressandi. Frænka mín var áskrifandi þegar hún var ung og hún gaf okkur blöð frá 1970-1980. Fjölskyldan er oft saman á kvöldin að leita að felu- myndum. Mig langar til að fá veggmyndir af Duran-Duran og get sent myndir af Madonnu, Mikjáli J. og mörgum öðr- um í staðinn. Ég vil líka gjarna eign- ast pennavini. Guðrún Lilja Óladóttir, Álfaheiði 14, 200 Kópavogi. Æskan 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.