Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1989, Blaðsíða 34

Æskan - 01.12.1989, Blaðsíða 34
Þessari ferð mun ég aldrei gleyma. Afi lagði af stað með mig og systur g mína í gamla skrjóðnum sínum til að j fara í kirkju með okkur á jólanótt. Bær- i inn okkar var afskekktur lengst inni á \ heiði og úti var mikið frost og snjófjúk. I Við vorum í fínustu fötunum okkar og 'i afi líka. Þegar við ókum úr hlaði sung- i um við af kæti og Trýna gelti hressilega á eftir okkur. jl En þegar við lögðum á háheiðina ij kámaði nú gamanið. Það var svo niða- •: dimmt að hvorki sáust tungl né stjörnur j og jafnvel ekki norðurljós. Snjófjúkið r þyrlaðist fyrir framan bílinn eins og fj hvítar, dansandi vofur og ómögulegt ‘i var að greina veginn. Við vorum ekki komin langt þegar við fórum að sjá eft- í ir því að hafa lagt út í þetta. Jafnvel f söngurinn og kertaljósin í Heiðavatns- ij kirkju freistuðu okkar ekki lengur en j það var engin leið að snúa við. Við j urðum að halda áfram. { Eg sat frammi í hjá afa og ég sá því ij betur en systir mín sem sat aftur í ii hversu hætt við vorum komin. Eg var ;j farin að gráta. 1 „Stansaðu, stansaðu, afi!“ sagði ég grátandi. Og ekki bætti úr skák þegar ; við vógum eitt andartak salt á vegar- f; brúninni með bratta fjallshlíðina fyrir í; neðan. En afi hélt áfram löturhægt. *! Allt í einu lýstu ljósin á bílnum á litla, p hvíta rjúpu sem hnipraði sig óttaslegin saman á miðjum veginum. Hvíta jóla- > rjúpu. Mikið var hún falleg. En það var \ of seint að nema staðar. Hún var rétt £ fyrir framan hjólin. Ég rak upp skað- ;! ræðisvein og tók fyrir augun. Bíllinn j rann áfram. Eg gat ekki gert mér grein j fyrir hvort hann rann yfir eitthvað r mjúkt eða ekki því snjórinn var svo j mikill á veginum. j Systir mín hágrét. Afi stöðvaði bíl- | inn. Lá hvíta, mjúka rjúpan kannski í j blóði sínu á veginum, hún sem hafði ;j horft eitt andartak á okkur himinbláum j augum þegar ljósin lýstu á hana? En >í hún hafði ekki bifast. Hnipraði sig að- j eins saman eins og mjúkur himneskur j snjóhnoðri. ; Eg og systir mín rukum bæði út úr ij bílnum. i „Bíðið þið, bíðið þið,“ kallaði afi. ? Fjúkið fyllti vit okkar og kuldinn nísti • okkur en við fundum það ekki, svo mjög kom það okkur á óvart sem við ij sáum. Eg segi sem við sáum, en ég veit j raunar ekki hvort systir mín sá það líka j því að við vorum bæði orðlaus og við i höfum aldrei síðan minnst á þetta. En | ég veit í hjarta mínu að systir mín sá n þetta líka, ég fann það og við stóðum bæði agndofa. Fyrir aftan bílinn lá rjúpan ómeidd og horfði á okkur vitru, óræðu augna- ráði eins og hún væri manneskja sem þekkti okkur vel. Mér fannst ég jafnvel kannast við augnaráð hennar. Nú var hún skyndilega ekki óttaslegin lengur heldur tíguleg og þó hafði hún ekkert hreyfst. Fyrir aftan hana stóð fannhvít kona, alveg eins og hún væri úr himn- eskri mjöll, með himinblá augu og vindurinn togaði í hvítar slæður henn- ar. Ég vissi strax að þetta hlaut að vera huldukona en ég trúði bara ekki á huldufólk. En hvað gat þetta verið ann- að? Hún var með fangið fullt af mjall- hvítum, mjúkum rjúpum sem allar sátu hreyfingarlausar í fangi hennar með himinblá augu þó að vindurinn blési og þyrlaði snjónum. Þær sátu líka á höndum hennar og handleggjum og öxlum og ein kúrði í hálsakoti hennar. Stór stjarna sást skyndilega á himnum og hún var svo neðarlega að hún virtist sitja á hæstu fjallsegginni. Hún var svo stór og skær að ég deplaði augunum. Samt skildi hún ekki eftir sig neina ljós- rák niðri á hjarninu. Jólastjarnan kom mér strax í hug, náttúrulega af því að það voru jól og af engu öðru. 34 Æskan J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.