Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1989, Blaðsíða 53

Æskan - 01.12.1989, Blaðsíða 53
húsið sýndi og hét „Valborg og bekkurinn", en þar lék ég bekkinn. Annars vil ég helst nefna öll hluverkin mín en þá þ/rftuð þið að bæta síðum í blaðið svo að ég sleppi því. Hvar lærðir þú að leika. . . . í hvaða skóla? Ég var í fjögur ár við nám í Leiklistarskóla ís- lands en annars hef ég lært best að leika með því að fylgjast með fólki og reyna að skilja bæði það og sjálfan mig. Lærðir þú leikstjórn þar líka? Nei. Ég hef aldrei lært leikstjórn heldur hef ég reynt að notfæra mér reynslu mína sem leikari og höfundur þegar ég hef stjórnað leikritum. Leikstjórn er ekki kennd í Leiklistarskólanum. Ég hefði raunar örugglega ekki tekið þá stefnu, þótt í boði hefði verið, þar sem ég ætlaði mér aldrei að verða leikstjóri. Hefur þú stundað nám í tónlistarskóla? Já, ji Ég lærði á trompet í fimm ár í Tón- listarskóla Mosfellssveitar, og ein þrjú ár á píanó. Hverju þakkar þú að þér er lagið jafnt að leika, semja texta og lög og færa leikrit á svið. . .? Ja, nú gerið þið mig heimaskítsmát. . . Ætli ég geti þetta ekki sæmilega af því að ég trúi sjálf- ur að ég geti það. Ég held að það sem maður ætlar sér takist á endanum ef maður trúir statt og stöðugt að maður geti það - sama hve vonlaust það virðist í byrjun. Er listfengt fólk í ættum sem að þér liggja? Já, mikil ósköp. Ég er skyldur mörgum ágætum hagyrðingum og hannyrðafólki. Munurinn er bara sá að ég er sá eini í fjölskyldunni sem eitt- hvað hefur látið á sér bera. Hinir eru allir svo hógværir. Fékkstu við að semja vísur og lög á barns- og unglingsaldri? Manstu vísu eft- ir þig frá þeim tíma? Ég orti heilmikið sem barn en því miður man ég ekki neitt af þeim kveðskap. Það sem ég orti á unglingsárum voru oftast háðvísur um nafngreinda menn - svo að ég verð eiginlega að segja pass við þessari spurningu. Hefur þú leikið í hljómsveit? Á hvaða hljóðfæri? Ég starfaði með Skólahljómsveit Mosfellssveit- ar í mörg ár, en það er lúðrasveit. Einnig stofnaði ég einhvers konar unglingahljómsveit ásamt skólafélögum mínum þegar ég var 16 ára. Þar lék ég á trompet. Sú hljómsveit varð ekki langlíf og lifði reyndar ekki nógu lengi til að hljóta nafn. Hver eru helstu leikverk sem þú hefur þýtt og samið? Þau eru orðin býsna mörg og ég veit ekki hver ég á að telja helst af þeim. Af þýddum verkum dettur mér helst í hug að nefna „Vatzlav", „Járnhörpuná', „Maraþondansinn", „Hremm- ingu“, „Af illri rót“, og „Ofurefli", en það sem ég hef samið, eða tekið þátt í að semja, eru yf- irleitt þættir fyrir útvarp eða sjónvarp. Ég skal þó minnast á útvarpsþættina „Sama og þegið", svakamálaleikritin „Með öðrum morðum", ^ y* ‘ \ i m v V „Eftirlætisjólasveinar Péturs? - Ríkisstjórnin. 1 áramótaskaup Sjónvarpsins 1985 og 1986, sjónvarpsþættina „Spaugstofan" og „ ’89 á Stðinni” og söngdagskrána „Allt er fertugum fært“, sem var leikin á Arnarhóli 17. júní 1984. Og svo man ég áreiðanlega eftir einhverju sem mér finnst miklu merkilegra þegar blaðið er komið út. Eru gamanhlutverk þín fleiri en hlut- verk í leikritum alvarlegs eðlis? Kanntu því vel? Ég hef í rauninni aldrei leikið hreinræktað gamanhlutverk á leiksviði. Það hef ég hins veg- ar gert í sjónvarpi og kvikmyndum og þau verk sjá miklu fleiri en þeir sem sjá mig á svið- inu. Þess vegna er ég kannski einkum þekktur sem gamanleikari. Sennilega hef ég þó leikið fleiri „alvarleg" hlutverk ef allt er talið og mér þykir ekki síður skemmtilegt að fást við þau. Hefur þú oft leikið jólasvein? Nei, ekki oft, en ég hef þó prófað það. , Finnur þú til skyldleika við nokkurn hinna 9 eða 13 íslensku jólasveina? Ljósmynd: Jóhannes Long Það er þá helst Stúfur. . . Ég veit ekki alveg hvers vegna. . . Hvaða hugmyndir gerðir þú þér um jólasveina þegar þú varst barn? Ég vissi að jólasveinarnir voru 14. Þessir þrett- án sem nafngreindir eru í þulunni - og svo einn í viðbót sem hét Ómar Ragnarsson. Hvað manstu best frá bernskujólum? Ég man best hvað mér þótti fullorðna fólkið óþolandi lengi að borða á aðfangadagskvöld. Ég hlakkaði svo til að opna pakkana að líklega hef ég hvað eftir annað sett heimsmet í hrað- áti. Hvað er þér minnisstæðast frá vetrar- leikjum á árum áður? Mér eru mjög minnisstæðir gömlu skíðasleð- arnir, eða sparksleðarnir. Þeir voru stór- skemmtileg farartæki en höfðu reyndar þann ókost að það var illmögulegt að renna sér á þeim annars staðar en á götunni. Sennilega er það þess vegna sem þeir hafa ekki sést hér í fjölmörg ár. Æskan 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.