Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1989, Page 54

Æskan - 01.12.1989, Page 54
Hlakkar Pétur sjónvarpsfréttamaður til jóla? Hvers helst á helgri hátíð? Já, maður lifandi, Pétur hlakkar mikið til jól- anna, einkum og sér í lagi til hvíldarinnar. Pét- ur er mikill vinnuþjarkur og sefur ekki heilu næturnar vegna vinnu sinnar, eins og reyndar má sjá á honum stundum. Hann ætlar að hafa það náðugt um jólin og safna kröftum fyrir átökin á komandi ári, borða mikið og lesa nýj- ar matreiðslubækur því að hann á von á Kristj- áni Ólafssyni í mat milli jóla og nýárs. Hverjir eru eftirlætis-jólasveinar hans? Ríkisstjórnin. Hvað hefur þú leikið í mörgum kvik- myndum? Þær munu vera sex. Hverri fyrst? Fyrst lék ég í „Útlaganum", en þar fór ég með hlutverk Ingjaldsfíflsins. Hefur þér og Spaugstofumönnum ekki flogið í hug að framleiða og leika saman í kvikmynd? Jú, jú, okkur flýgur margt í hug og þar á meðal þetta. Reyndar er ég með kvikmyndahandrit í tölvunni hjá mér. Við höfum verið að föndra við það annað veifið í nokkur ár og oft látum við okkur dreyma um að þessi draumur okkar verði einhvern tíma að veruleika. En kvik- myndir eru gríðarlega fjárfrek fyrirtæki svo að við verðum líklega að bíða þangað til spari- baukarnir okkar þyngjast svolítið meira. Hverja mynduð þið velja í kvenhlutverk ef af slíku yrði? Allar bestu leikkonur landsins og sennilega nokkrar útlendar líka. Kemur kvenfólk aldrei verulega við sögu í skemmtiþáttum ykkar? Jú, það kemur fyrir. En við höfum tekið þá stefnu að leika flestar kvenpersónur sjálfir. Hvað veldur? Bæði það að við höfum ekki efni á að ráða leikkonur til okkar og borga þeim kaup - og hitt að okkur finnst svo ofboðslega gaman að leika að við viljum helst gera allt sjálfir. Hverjir eru eftirlætisleikarar þínir? Ég verð líklega að segja strákarnir í Spaugstof- unni; annars verð ég laminn. En leikkonur? Strákarnir í Spaugstofunni þegar þeir leika kvenhlutverk. En erlendir? Strákarnir í Spaugstofunni þegar þeir leika út- lendinga. - Nú get ég verið alveg öruggur! Hvers konar tónlist fellur þér best? Það fer allt eftir því í hvernig skapi ég er. Stundum finnst mér gott að hlusta á Tchai- kovsky eða Rachmaninoff, stundum Bítlana, stundum Bing Crosby - eða bara sjálfan mig. Hefur þú stundað íþróttir? Ég hef aldrei keppt af neinni alvöru í íþróttum en ég hef stundað bæði knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Hefur þú dálæti á einhverri íþrótta- grein? Ég fylgist sáralítið með íþróttum en hef gaman af að skreppa á skíði, í veggtennis eða sund. Hver eru helstu áhugamál þín - auk starfsins? Ég hef áhuga á skíðaiðkun, barnauppeldi, mat- argerð, góðum bókum, góðri tónlist og góð- um kvikmyndum. . . Já, og líklega miklu fleiru - en þetta er þokkalegur listi í bili. Ertu kvæntur? Já, ég bý með yndislegri konu sem heitir Ásdís Olsen og er kennari. Áttu börn? Ég á einn strák frá fyrra hjónabandi. Hann er átta ára, heitir Eyvindur, og er einhver besti náungi sem ég hef kynnst. Auk þess á konan mín tvær telpur, Bergþóru sex ára og Valgerði þriggja ára. Áttu - eða hefur þú átt gæludýr? Á hvaða dýrum hefur þú mest dálæti? Ég hef átt hunda, ketti og gullfiska en á ekkert slíkt eins og er. Sem barn var ég óskaplega hræddur við hunda. Ég vann bug á þeirri hræðslu og síðan kann ég einna best við þá af öllum dýrum sem ég umgengst. Hver er eftirlætisréttur þinn? Hæstiréttur. . . Nei, í alvöru, ja. . . á ég ekki bara að segja saltkjöt og baunir. Annars finnst mér yfirleitt svo óskaplega gott að borða að ég á erfitt með að gera upp á milli rétta. Hvað metur þú mest í fari fólks? Umburðarlyndi, blíðu, heiðarleika - og ekki er verra að það hafi skopskyn. Hverjir finnst þér hvimleiðustu gallar manna? Geðvonska og andstæðurnar við það sem ég nefndi áðan. Viltu ekki segja eitthvað spaklegt að lokum. . .? Ætli ég láti mér ekki nægja að óska fólki gleði- legra jóla og biðji það að brosa sem mest á komandi ári. 54 Æskan

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.