Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1989, Síða 63

Æskan - 01.12.1989, Síða 63
F R A ÝM SUM H L I Ð U M Ólafur Ólafsson landlaeknir: Mlannvernd í nútíma þjóðfélagi - Að þessu sinni höfðar efni þáttarins einkum til fullorðinna og stálpaðra les- enda blaðsins. Það er tekið úr upphafs- kafla og niðurlagi bæklings með sama heiti og fyrirsögn þessarar greinar. - / Ur inngangi „Okkur veitist hægara að berjast fyrir meginreglum en lifa samkvæmt þeim.“ Stöðugt fara fram umræður um náttúruvernd, landvernd, hvalavernd, húsavernd o.fl. sem er af hinu góða, en fáir ræða um mannhelgi. Áður fyrr var heimilið þungamiðja mannlífs og þar deildu foreldrar og börn fjölskyldulífi og starfi. Nú hafa tekið við kynslóðir sem vinna utan heimilis einn lengsta vinnudag í Evrópu og sem sjaldan eru heima. Verulegur hluti barna geng- ur sjálfala á daginn og upplausn heimila og fjöl- skyldna er vaxandi vandamál, fjölskyldutengsl hafa rofnað í vaxandi mæli. Margir ræða um að barnalán sé vandfundið í dag en oftar en ekki væri nær að tala um að börnin búi ekki við for- eldralán. Vandræði hafa af hlotist og kallað er á aðstoð æ fleiri sérfræðinga og stofnana. Vand- ann ber þó frekar að leysa með að treysta fjöl- skylduböndin. Börnin þarfnast öryggis, hlýju og leiðandi handa. Samantekt Gerbreyttar þjóðfélagsaðstæður hafa dregið úr samvistum foreldra og barna. Atvinnuþátt- taka kvenna utan heimilis, aðallega giftra kvenna, meir en fjórfaldaðist á tímabilinu 1960- 1985. Jafnréttisbaráttan hefur fært konum meiri menntun og sjálfstæði en jafnframt mun lengri vinnutíma. Kjarnafjölskyldan riðar til falls því að hjónaskilnuðum hefur fjölgað gífurlega. Ungu fólki í sambúð með börn úr fyrri hjóna- böndum hefur fjölgað mikið og er þetta að verða ein algengasta fjölskyldugerðin. Einstæð- um foreldrum fjölgar einnig mikið, en þeir eru nú um 24% af barnafjölskyldum. Erfiðleikar foreldra, hjónaskilnaðir og minnkandi fjölskyldufesta auka á óöryggi og þar með vanlíðan margra barna. Börnum sem koma frá sundruðum heimilum fer fjölgandi. Vegna mikils vinnuálags, ekki sist á mæðrum, eru tengsl foreldra og barna mun minni en áð- ur. Börnin verða oft útundan vegna strangrar lífsbaráttu eða vegna óska um aukna velmegun. Einstæðir foreldrar eiga við mesta erfiðleika að etja þar eð afkoma heimilis krefst nú tveggja fyrirvinnandi aðila. Stjórnvöld veita þessum fjölskyldum ekki nægilega aðstoð. Verulegur fjöldi barna gengur nær sjálfala á daginn og skortir leiðandi hönd og dagvistun. Börn verða sjálfstæð yngri en fyrr, og í um- brotum gelgjuskeiðsins týna sum þessara barna áttum. Börn eru mjög háð foreldrum sínum og heimilum. Þeim börnum sem lítil tengsl hafa við foreldra er mun hættara við t.d. vímuefna- neyslu en hinum sem góð tengsl hafa. „Á mis- jöfnu þrífast börnin best,“ er í raun mótsögn. Góðar gáfur einar sér virðast ekki duga mörgum unglingum til þess að ná góðu tak- marki. Léleg hjúskaparaðlögun foreldra, lítil umhyggja og hlýja, ósamræmi foreldra í upp- eldi tengjast andlegri vanlíðan, lélegum náms- árangri og slæmum lífsstíl barna og unglinga. Börn sem koma frá sundruðum heimilum verða frekar sjúkdómum að bráð og vistast mun meira á stofnunum en þau börn sem eiga trausta að. Nú fer fæðingum fækkandi og er svo komið að íslendingum er hætt að fjölga. í mörgum til- fellum endurspeglar þessi staðreynd erfiða lífs- baráttu foreldra en í öðrum tilfellum auknar menntunarkröfur, vaxandi kröfur um velmeg- un og/eða tísku. Fleiri ástæður geta legið að baki þessari þróun. Hér er verðugt rannsókn- arefni fyrir stjórnvöld. Samfara miklu vinnuálagi hefur vinnustreita aukist gífurlega og margs konar sjúkdóms- ástand ( t.a.m. háþrýstingur, magabólgur og gigt) fylgir í kjölfarið. Þar eð stéttarfélögin virðast ekki hafa bolmagn til aðgerða gegn þessu sýnist mér hér vera verkefni fyrir t.d. foreldrafélögin í landinu. Skólinn verður að sinna mun meira fræðslu um uppeldi, mannvernd og um kosti trausts fjölskyldulífs. Margir ungir foreldrar virðast ekki þekkja grundvallaratriði í uppeldis- og fjölskyldumálum. Uppeldismál eru háð efnahags- og félagsmál- um og engu auðleystari. Fagna ber því sem vel er gert svo sem tillögum Félagsmálaráðuneyt- isins um lausn húsnæðisvandans fyrir þá verst settu. Upplausn heimila er vaxandi vandamál og ungt fólk óttast að það verði enn stærra vandamál í náinni framtíð. Við leysum ekki vandamál fjölskyldunnar með lengingu vinnutímans. Við leysum ekki unglingavandamál með stofnanabyggingu „úr alfaraleið". Við hömlum ekki gegn vaxandi upplausn heimila með því eingöngu að fjölga sérfræð- ingum í sálar-, uppeldis- og læknisfræði. Börn og unglingar þarfnast öryggis, hlýju og leiðandi handar. Við leysum þessi vandamál frekar með að- gerðum er styrkja fjölskyldu og heimili. Ung börn og unglingar sem eru í skóla verða að eiga öruggan samastað. Auðveldara er að fá fjárstuðning til þess að byggja eða reka með- ferðarstofnanir fyrir unglinga og gamalt fólk en að fá fjárstuðning eða aðra aðstoð við fjöl- skyldur sem er vitaskuld mannúðlegri og ódýr- ari leið. Við búum nú við meira stofnanarými en nokkur önnur Evrópuþjóð. Leiðrétta verður misrétti í þjóðfélaginu; tengt húsnæðisvandamálum ungs fólks - launamun karla og kvenna - efnahags- og félagsstöðu einstæðra foreldra - hag smá- barnaforeldra - og dagvistunarmálum. Stjórnmálamenn verða að huga betur að þessum málum en hingað til. Ef ekki verður breyting á verður í framtíðinni að gera ráð fyr- ir stofnanarýmum vegna sjúkdóma og vanlíð- unar. Æskan 63
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.