Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1989, Síða 67

Æskan - 01.12.1989, Síða 67
„Æ, ó,“ stundi hann milli hóstakvið- anna. „Ég flnn svo mikið til. Slepptu mér, slepptu mér, hænuskratti.“ Þarna hékk hann í lausu lofti og grenjaði og öskraði. „Mamma, mamma, hjálpaðu mér, ó, ó!“ En ópin báru engan árangur. Hann sveiflaðist bara hraðar og hraðar í goggnum á hænunni. Skyndilega fann Snepill að hann hlunkaðist niður á gólfið. Síðan vissi hann ekki af sér. Þarna lá vesalings Snepill og vissi hvorki í þennan heim né annan. Hæn- urnar höfðu safnast saman til að skoða þetta undur. Þær ýttu með goggnum í litla músadrenginn en síðan gengu þær burtu og gögguðu ofurlítið um leið. Snepill kom ekki til meðvitundar fyrr en eftir langa stund. Hann skildi ekkert hvar hann var niður kominn. Þegar hann ætlaði að skríða af stað áleiðis heim gat hann ekki hreyft sig því að hann fann svo mikið til í skott- inu. Um leið mundi hann allt. Aumingja Snepill hneig niður há- grátandi. Hann grét svo að tárin runnu niður litla músavangana. „Æ, mamma, komdu nú og hjálpaðu mér!“ En inni í músaholunni var músa- mamma að koma börnum sínum í ró. Hún strauk þreytulega um ennið um leið og hún sagði: „Nú skuluð þið fá að eta en síðan farið þið beint í háttinn.“ Ró færðist yfir músahópinn. Þau settust í kringum borðið og tóku hraustlega til matar síns. „Æi, hvar er nú Snepill?“ spurði músamamma. „Ég hef ekki séð hann!“ kvað við úr öllum litlu músamunnunum. Músamamma gekk inn og gáði í hvern krók og kima en sá Snepil litla hvergi. „Nú skuluð þið borða og fara svo beint í rúmið. Ég ætla að fara og athuga hvort hann hefur ekki laumast til pabba síns. Munið að þið eigið að vera stillt og góð.“ Músamamma fór rakleiðis að hol- unni þar sem nýja heimilið þeirra átti að vera. En þar hafði enginn séð til ferða Snepils. Þau fóru þá í halarófu fram göngin og út í hænsnakofann. Ekki leið á löngu þar til Fúsi kom auga á Snepil þar sem hann lá grátbólginn og örmagna. „Pabbi, mamma,“ stundi Snepill og reyndi að hjúfra sig upp í fangið á þeim. En við minnstu hreyfingu fann hann svo mikið til í skottinu að tárin byrjuðu óðar að renna niður litlu músa- vangana. Pabbi og Fúsi tóku Snepil varlega á milli sín og báru hann inn í holuna hans Fúsa. í marga daga lá Snepill litli fárveikur og illa farinn. Þegar músafjölskyldan fluttist í nýju húsakynnin var hann skilinn eftir hjá Fúsa. Þar átti hann að vera meðan honum væri að batna. Reyndar var hann feginn þegar systkini hans fóru. Þau voru alltaf að hoppa og hamast í kringum hann svo að hann varð stundum dauðþreyttur á öllum látunum. Fúsi annaðist músadrenginn vel og mamma hans kom líka á hverjum degi og hlúði að honum eins vel og hún gat. Dag nokkurn, þegar Snepill var orð- inn sæmilega hress og tölti um í hol- unni, rann upp fyrir honum ógnvekj- andi staðreynd. Hann hringsnerist á gólfinu. Þetta var ægilegt. Hann hafði verið svo veikur að hann hafði ekki veitt því athygli að mikill hluti af skotti hans var horfinn. Hann var orðinn kófsveittur af angist og ótta þegar mamma hans birtist allt í einu. „Hvað gengur eiginlega á fyrir þér, væni minn?“ spurði hún áhyggjufull. „Þa. . þa. . það va. . vantar á mig skottið,“ sagði Snepill og leit tárvotum augum á mömmu sína. Músamamma tók drenginn sinn í fangið og hughreysti hann. En Snepill grét sárt uns hann sofnaði í fanginu á henni. Eftir þetta atvik hðu margir dagar þangað til Snepih fékkst til að fara úr rúminu aftur. Smám saman sætti hann sig við orð- inn hlut og eftir þetta gætti hann þess að gera aldrei það sem hann vissi að hann mátti ekki gera. Hann fluttist heim til músafjölskyldunnar og eftir skamman tíma tók enginn eftir því að það vantaði hluta af skottinu hans Snepils. Mýsnar bjuggu í holunni í hænsna- kofanum það sem þær áttu ólifað. Þar sást kötturinn aldrei og eftir atvikið með Snepil litla létu hænumar þær allt- af í friði. Þeim leið því mjög vel og undu þær hag sínum hið besta. Æskan 67
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.