Valsblaðið - 11.05.1961, Page 15

Valsblaðið - 11.05.1961, Page 15
VALSBLAÐIÐ 13 sín í KFUM, og fluttu hann þar erindi um leikinn og lagði hann mikla áherzlu á drenglyndi og samleik. Júlíus Hafstein síðar sýslumaður á Húsavík mun hafa verið fyrsti þjálfari félagsins, og virðist hann hafa, fyrir beiðni séra Friðriks, en þeir voru góðir vinir, annast tilsögn vorið sem félagið er stofnað. líinnig kom hann á fundi í KFUM og flutti erindi um knattspyrnu, sem voru hin fróðlegustu. Júlíus Ilafstein hafði kynnst knattspvrnunni í Kaupmannahöfn, leikið með Akademisk Boldklub, þekkti enska knattspyrnu og megin- landsknattspyrnu og muninn á þeim leikstíl. Hann var og kunnugur knattspyrnunni á Norðurlöndum. Lýsti hann tækni leiksins, og lagði áherzlu á góðar staðsetningar og samleik, og knattmeðferð. Hann lagði líka áherzlu á að menn reyndu að þjálfa líkama sinn með ýmsum æfingum, það væri góður undirbún- ingur og minni hætta á meiðslum. Hann ræddi það einnig að flokkur- inn ætti að æfa með það fyrir augum að fara í keppnisför til Noregs, þar væru knattspyrnumenn ekki sérlega sterkir. Mun þetta fyrsta hugmyndin um að senda knattspyrnumenn utan til keppni. Þess má til gamans geta að á 30 ára afmæli Vals kom skeyti frá Húsavík, með árnaðaróskum og undirritað af: „Fyrsta þjálfara Vals“. Júlíus lét síðar syni sína o. fl. stofna Völsung á Húsavík, og þykir nafnið benda til áhrifa frá Val og kynni Júlíusar af félaginu. — Jafnframt þessu reyndu drengirnir að leita sér þekkingar á leikn- um hvar sem þeir gátu. Eftir æfingar var oft haldið upp í KFUM, fyrstu árin á meðan séra Friðrik var heima og voru þá rædd félagsmálin og var samheldni mikil. Sérstaklega minntust stofnendurnir fundanna með séra Frið- rik sumarið 1911, þegar hann var að yrkja kvæðið: Sumarlíf í KFUM. Er það í 10 köflum og í hverjum kafla 10 erindi. Las hann þá ýmist allan kaflann, eða helming af þeim, eftir því sem andinn hafði inn- blásið honum. Efni kvæðisins hreif mjög drengina, og var þeim hvatn- ing til dáða. Kvæði þetta er hið merkilegasta og fegursta, og ekki að undra þótt það hrifi hina ungu sveina: Fyrsta erindið í fyrsta kafla hljóðar svo: Kveða skal urn fremd, svo felist félags-sögn í bragargögnum. Ungir sveinar margt svo muna inegi, er kættar sálir bætti. Ljóði.n ciga, ef þau duga yngissveinum veg að heina, svo með orku’ í orði og verki iðki dyggð og bræðra-tryggðir. Fremsti stafur ljóðlínanna myndar orðin KFUM LÝSI. Fyrsti kappleikurinn 1914. Liðin voru rösklega þrjú ár og enn er félagið ekki farið að keppa við hin ,,stærri“ félög. Þó ganga æfingar mjög vel, margir æfa og leika sér og félagslífið er með miklum blóma. Þáverandi gjaldkeri, Hallur Þorleifsson, segir þó að þá hafi ríkt eins og nú, erfiðleikar um fjáröflun og stundum gengið illa að safna fyrir knetti. Tekjustofn- ar voru engir, nema árgjöld félaganna, sem voru lág. Engir leikir til tekjuöflunar. Þess vegna voru góð ráð dýr að fá fé og þess vegna hafði komið Gísli Halldórsson, form. í. B. R. Mér er tjúft að senda ICnattspyrnu- félaginu Val beztu kveðjur og árnað- aróskir í tilefni 50 ára afmælis félags- ins. Langt er nú síðan Valur varð eitt af forystufélögum bæjarins í þeirri íþrótt, sem félagið var stofnað um, knatt- spyrnunni, en síðan hefur félagið hasl- að sér völl á öðrum sviðum íþróttanna, í skíðaþróttinni og handknattleiknum. Þetta hefur verið gert með miklu og fórnfúsu starfi allt frá stofnun félags- ins, svo sem glöggt má sjá á því að stofnendur hófust strax handa um að skapa félagi sínu betri aðstöðu til knattspyrnuiðkunar en tíðkaðist, með því að byggja sinn eigin knattspyrnu- völl. Með slíku framtaki efldist félagslífið strax í upphafi, en það hefur einmitt verið eitt af markmiðum Vals að hafa grózkumikið félagslegt starf samhliða þróttmiklu íþróttalífi. Marga stóra sigra hefur félagið unnið á íþróttavöll- unum og má telja þann merkastan, er Valur bar sigur úr býtum í fyrsta sinn í Knattspyrnumóti íslands árið 1930. En Valsmenn hafa ávalt verið sannir íþróttamenn, sem ekki hafa miklast af sigrum sinum, heldur litið á þá sem á- fanga að markinu: að efla gildi iþrótt- anna og glæða áhuga fjöldans á þeim. Á þennan hátt hafa þeir verið mörgum öðrum til fyrirmyndar og bent upp- vaxandi æsku á hinn sanna íþróttaanda. Starf íþróttafélaganna er ábyrgðar- starf í þjóðfélaginu. Á íþróttavellinpm
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.