Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 16
14
VALSBLAÐIÐ
Jmótast æskumaðuriTin og þar lærir
hann drengskap. Friðþjófur Nansen
sagði eitt sinn: „Það er æskunnar að
skapa framtíðina og gera heiminn betri
en hann er.“ Þetta mun ávalt vera
hlutverk æskumanna og kvenna, í
fimmtíu ár hefur Valur búið sína fé-
lagsmenn undir þetta hlutverk með
þróttmiklu æskulýðsstarfi.
Valsmenn hafa ávallt verið samhent-
ir til stórra átaka og allt frá stofnun
félagsins hafa þeir unnið að byggingar-
framkvæmdum til þess að tryggja ört
vaxandi starfsemi félagsins nægilegt
svigrúm. Síðustu árin hafa verið byggð-
ir vellir og reistar byggingar af miklum
dugnaði að Hlíðarenda, en þar eru nú
fullgerðir malar- og grasvellir, félags-
heimili og eitt stærsta iþróttahús lands-
ins. Þær framkvæmdir munu lengi
standa sem óbrotgjarn minnisvarði um
það mikla starf, sem forystumenn fé-
lagsins hafa innt af hendi á undanförn-
um árum í þágu æskunnar í bænum.
Knattspyrnufélagið Valur er eitt af
stofnfélögum í. B. R. Allt frá upphafi
hefur félagið styrkt þessi heildarsam-
tök íþróttamanna bæjarins eftir mætti
og m. a. hafa hinir ágætu fulltrúar fé-
lagsins ávallt átt sæti í framkvæmda-
stjórn bandalagsins. Fyrir þann stuðn-
ing ber að þakka og vona ég að Valur
muni ávallt vera einn af styrkum hiekkj-
um bandalagsins í framtíðinni.
Megi heill og hamingja fylgja fé-
laginu um ókomin ár.
Gísli Halldórsson,
form. í. B. R.
□
Þegar litið er yfir hálfrar aldar æfi-
skeið Knattspyrnufélagsins Vals, má
vissulega sjá margan góðan sigur fé-
lagsins í drengilegri knattspyrnukeppni.
Að sjálfsögðu hafa hjá Val, eins og
öðrum félögum, myndast tímabil deyfð-
ar og örðugleika, þar sem afrekaskrá
félagsins hefur verið með minni glæsi-
brag en í annan tíma. En á framlagi
félagsins til íþróttamála Reykjavíkur
og þá landsins alls, hefur aldrei verið
neitt lát í þessi 50 ár.
Valur hefir beitt sér fyrir uppeldi
æskufólks höfuðstaðarins og íþrótta-
þjálfun þess. Félagið hefur af ótrúlegri
fram sú hugmynd að leika kappleik við Fram til fjáröflunar. Voru
Framarar vinsamlegir og tóku þessari málaleitan vel, segir Hallur.
En félagið var bundið af ákvörðun um að leika ekki við lið utan KFUM,
og nú var séra Friðrik ekki í landinu til þess að veita leyfi, en án
leyfis er ekki unnt að leika við Fram. Fóru þá þrír ábyrgir félagar
til síra Bjarna Jónssonar og tjáðu honum vandræði sín og þær hug-
myndir, sem þeir hefðu til fjáröflunar.
Tók séra Bjami .þeim vel og málaleitan þeirra. Gaf hann þeim
síðan leyfi til leiksins, og kvaðst mundu svara ífyrir það við séra
Friðrik, ef til þess kæmi.
Vafalaust hefur þessi samstillti hópur talið að þeir gætu sýnt sæmi-
lega knattspyrnu og undir niðri viljað reyna sig við Fram, sem þá
var talið sterkasta knattspyrnuliðið. þó var ekki keppt um íslands-
meistara titilinn 1913 og 1914, en Fram var eina liðið, sem gaf sig
fram til keppni í íslandsmóti þau ár, og virðist sem íslandsmeistar-
arnir frá 1912 hafi ekki kært sig um að lenda í þeim, þó ekki sé með
vissu vitað um ástæður.
Leikur þessi fór síðan fram samkvæmt áætlun, og var þetta fyrsta
kapplið Vals þannig skipað, að því er stofnendur telja: Ástráður
Jónsson, Árni B. Björnsson (látinn), Filippus Guðmundsson, Guðbjörn
Guðmundsson, Guðmundur Guðjónsson, Þorbergur Erlendsson, Hallur
Þorleifsson, Sveinn Þorkelsson (látinn), Loftur Guðmundsson (látinn),
Stefán Ólafsson (látinn), Jón Guðmundsson (látinn).
Leik þessum lauk með því að Fram vann með aðeins eins marks mun
eða 3:2. Bendir þetta til að kapplið Vals hafi verið komið lengra en
búast hefði mátt við eftir aldri þeirra og leikreynslu, sem var engin
nema æfingarnar.
Þess má líka geta að Fram varð íslandsmeistari árið eftir, sem
hefur staðfest þá skoðun að Fram hafi verið sterkasta liðið á þessum
árum.
Leika sem „gestir“ í íslandsmótinu 1915.
þó ekki sé um það getið í bókum félagsins, að Valur hafi tekið þátt
í íslandsmótinu 1915, þá virðist sem þeir hafi verið meðal keppenda
þar. I gömlum skýrslum frá því móti er þess getið að Valur hafi verið
með og fengið 0 stig. Leikurinn við Fram árið áður hefur að öllum
líkindum orðið til þess að stappa stálinu í Valsmennina, að spreyta
sig á stærri verkefnum.
Félagið var ekki í íþróttasambandinu og hefur því orðið að fá leyfi
til þátttöku þar, sem „gestur“. Eftir úrslitum í leikjum Vals í þessu
fyrsta íslandsmóti, sem félagið tekur þátt í, virðist sem ekki hafi geng-
ið eins vel og í leiknum við Fram árið áður. Leikimir fóru þannig
að Valur tapaði þeim báðum fyrir KR og Fram.
Yngri Valur.
Á aðalfundinum í apríl 1916, er kjörinn formaður, Jón Guðmundsson,
sem verið hafði ritari árin á undan með mikilli prýði en inn í stjóm-
ina kemur Guðbjörn Guðmundsson, sem tekur við ritarastörfum og
reynist sérlega góður í því embætti. Stefán ólafsson er gjaldkeri áfram.
Á þessum fundi er mikið rætt um að stofna deild fyrir yngri félaga
í Val. Upplýstist að á aðalfundinum árið áður hefði verið skipuð nefnd
til þess að athuga það mál, og það talið æskilegt að nefnd sú „gæti
gefið skýrslu á gerðum sínum, því að jafn áríðandi málefni mætti ekki
lognast útaf í deyfð og áhugaleysi.“