Valsblaðið - 11.05.1961, Side 17

Valsblaðið - 11.05.1961, Side 17
VALSBLAÐIÐ 15 Guðbjörn Guðmundsson gaf skýrslu og taldi ekkert því til fyrir- stöðu að stofna Yngri deild í Val, og vissi nefndin af mörgum, sem vildu þegar ganga í „Yngri Val“, og var kosin nefnd í málið, en í henni voru Jóhannes Sigurðsson, Páll Sigurðsson og Hallur Þorleifsson. Enn- fremur var ákveðið að leita samstarfs við Væringja, sem var deild í KFTJM og því eðlilegt að drengir þaðan gengju í Val. Vann nefndin ötullega að málinu og í ágúst var deildin, „Yngri Valur“ stofnuð með 13 ungum drengjum úr KFUM, eins og það er orðað. „Hafði hún 2 æfingar í viku með góðum árangri og virtist hún geta orðið góð upp- eldisstofnun fyrir unga drengi í knattsparki, og mundi gefa Val góðar rentur af því sem hann leggur henni til framfæns." Er ekki ósennilegt að þetta skref, sem tekið var með að stofna „Yngri Val“ á þessu augnabliki, hafi bjargað því að félagið lognaðist ekki útaf um 1920, en þá átti félagið í miklum erfiðleikum þar sem þeir eldri nær allir voru horfnir sem keppendur. Það var því mikið heillaspor sem stigið var, og sannar áþreifanlega að aldrei má gleyma því að maður verður að koma manns í stað, ef framtíðin á að vera trygg. Þetta skynjuðu þessir ágætu brautryðjendur og höguðu sér samkvæmt því. Valur gengur í Iþróttasambandið. Það má telja nokkurnvegin víst að leikurinn við Fram 1914, og þátt- takan í íslandsmótinu sem „gestir“ 1915 hafi haft sín áhrif á það, að þessum ungu mönnum hafi þótt heldur þröngt um sig, að geta ekki, þegar tækifæri var, tekið þátt í mótum, sem efnt var til í Reykjavík. Frammistaða þeirra í leikjum gaf þeim líka vonir um að þeir gætu staðið sig forsvaranlega í leikjum og mótum. Á aðalfundinum 1916 ræðir Jón Guðmundsson það hvort ekki sé rétt að ganga í samtök íþróttamanna, og gerir fyrirspurn til fundarins um það hvort vilji sé fyrir hendi að ganga í íþróttasamband íslands, og hvort fundurinn vilji gefa stjórninni heimild til, að leita inngöngu í það og íþróttasamband Reykjavíkur. Var þetta borið undir atkvæði og var það samþykkt. Eitt af fyrstu verkum stjórnarinnar var að fara á fund séra Bjarna Jónssonar, sem þá var framkvæmdastjóri KFUM (í fjarveru séra Frið- riks Friðrikssonar) „til þess að ráðgast við hann um ýmsar fram- kvæmdir viðvíkjandi flokknum. Taldi hann sig ekki sjá neitt við það að athuga, þó félagið gengi í ÍSÍ, þar sem kvaðir væru litlar eða engar, en dálítil hlunnindi ,en réði oss hinsvegar frá því, ef hægt væri, að ganga í íþróttasamband Reykjavíkur, þar sem það gæti orðið félaginu fjárhagslega erfitt vegna íþróttavallarins. Einnig leyfði hann að fé- lagið mætti taka þátt í kappleikjum þeim, sem vér æsktum á komandi sumri.“ Þannig voru úr gildi numin hin munnlegu ákvæði, að Valur skyldi ekki leika við félög utan KFUM eins og séra F'riðrik hafði hugsað sér. Var þetta ekki óeðlilegt skref hjá ungum mönnum, sem svo mjög óskuðu að reyna krafta sína og getu við önnur félög bæjar- ins. Það mun líka hafa farið svo að hugmyndin um leiki við Hvat, hefur ekki orðið eins raunveruleg og séra Friðrik hafði gert ráð fyrir, og vonað, hvernig sem á því hefur staðið. Þetta sumar leikur Valur fyrsta leik sinn á hátíðisdegi kvenna 19. júní og þá við KR. Leikar fóru þannig að jafntefli varð 2:2. Aðeins 5 dögum síðar tekur Valur þátt í íslandsmótinu, sem fullgildur aðili og er fyrsti leikurinn við Fram, og tapaði honum með aðeins eins Jón GuSjónsson. formaíSur K.R.R. þrautseigju og við hin erfiðustu skilyrði lagt út í byggingarframkvæmdir vand- aðra íþróttamannvirkja og leitt þau til farsælla lykta. Þá verður varla komizt hjá því, á þessum miklu tímamótum félagsins, að minnast á þátttöku þess í uppbyggingu og skipulagningu knattspyrnumálanna. Á níunda aldursári sínu beitti Valur sér, ásamt þrem bræðrafélögum sínum hér í bæ, fyrir stofnun Knattspyrnuráðs Reykjavíkur, og hefur æ síðan verið ein af styrkustu máttarstoðum þessara samtaka. Fyrir allt þetta þrotlausa starf vill stjórn K. R. R. þakka Val. Hún sendir hugheilar kveðjur öllum fulltrúum félagsins í ráðinu, lifandi og látnum, og ekki sízt formanni félagsins Sveini Zoega, sem annast hefur for- mennsku fyrir ráðið lengur en nokkur annai-. Stjórn K. R. R. sendir félaginu og forystumönnum þess hamingjuóskir í tilefni afmælisins og biður félaginu heilla í framtíðinni. F. h. Knattspyrnuráðs Reykjavíkur. Jón GuSjónsson. □ Skíðaráð Reykjavíkur sendir skíða- deild Vals beztu kveðjur á þessum merku tímamótum. Fulltrúar Vals í skíðaráði Reykjavík- ur hafa verið frá fyrstu tið stoð og stytta í ráðinu og nú síðustu árin hefur fulltrúi Vals, Ingi Eyvinds, séð um fjár- mál skíðaráðsins, sem er eitt hið vanda- samasta verkið innan ráðsins. Ingi Eyvinds hefur með sínum mikla
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.