Valsblaðið - 11.05.1961, Page 18
16
VALSBLAÐIÐ
Ellen Sighvatsson,
form. SkícSaráos Reykjavíkur.
dugnaði komið fjármálum skíðaróðsins
á fastan grundvöll, og allir fulltrúar
ráðsins bera mikla virðingu fyrir þess-
um dugmikla starfskrafti, sem skíða-
deild Vals hefur látið skíðaráðinu í té.
Á þessu starfsári hélt skiðadeild
Vals afmælismót í Hamragili og var
þetta mót mjög vel sótt og allar fram-
kvæmdir í sambandi við mótið til mik-
ils sóma, fyrir skíðadeild Vals.
Með íþróttakveðju.
f. h. Skíðaráðs Reykjavíkur
Ellen Sighvatsson,
form.
□
Árni B. Björnsson
Mikill áhugamaður og ötull formaður.
Harðsnúinn í keppni og íljótur að
hlaupa. Hann tók við af fyrsta for-
manni félagsins og í hans formannstíð
var fyrsti „stórleikurinn“ í sögu Vals
leikinn.
marks mun eða 3:2. Leikurinn við KR í sama móti var hinn fjörug'-
asti og- var mikið af mörkum skorað, en leikurinn varð jafntefli, 5:5.
Þar með hafði Valur náð 1 stigi á fyrsta mótinu sem hann tók þátt í,
og- sannaði raunar að hann hafði náð þroska til þess „að vera með“.
Það voru aðeins þessi þrjú lið, sem tóku þátt í Islandsmótinu 1916.
Kærumál.
Leilcur Vals og Fram í Reykjavíkurmótinu hafði nokkur eftirköst,
cn þeim leik sem fór fram 12. júlí, tapaði Valur með 3:1.
Leik þennan kærðu Valsmenn, þar sem í liði Fram voru 2 menn sem
fram að rnótinu höfðu verið í Víkingi, og formaður Víkings gefið þá
yfirlýsingu að þeir hefðu þá fyrr um daginn gengið úr Víking. Enn-
fremur gaf formaður Fram þá yfirlýsingu að þeir hefðu fáum klukku-
tímum fyrir leikinn gengið í Fram.
Með bréfi dags. 14. sept. 1916 tilkynnir stjórn ISÍ, knattspyrnufélag-
inu Val dóm sinn. I því segir m. a.: „Ofangreind kæra hefur verið
ccnd stjórn knattspyrnufélagsins Fram til umsagnar, en þótt henni
hafi verið gefinn viku frestur til að verja mál sitt hefur hún ekki
andmælt kærunni. Verður því að leggja frásögn kæranda í öllum grein-
um til grundvallar úrskurði í málinu. — Því úrskurðast: „— Annar
kappleikur Knattspyrnumóts Reykjavíkur 1916, sem háður var af
knattspyrnufélögunum Fram og Val 12. júlí sl., skal ógildur og ber að
láta þessi félög þreyta að nýju áður en mótinu lýkur.“
Leikur þessi fór svo fram 10. okt. um haustið og lauk þannig að
Valur sigraði með 3:2, og mun það hafa verið óvænt því Fram var
íslandsmeistarinn það ár. KR vann Val 5:4 í móti þessu og vann mótið,
en Fram fékk ekkert stig.
Egill Jakobsen gefur Val grip til tekjuöflunar.
Það er auðsjéð að stjórn félagsins nýtur vinsælda á aðalfundi 1917,
því fundarmenn endurkusu hana með lófataki, en liún vildi ekki taka
við því og óskaði leynilegra kosninga, en það breytti engu, Jón Guð-
mundsson var kjörinn formaður, Stefán ólafsson gjaldkeri og Guðbjörn
Guðmundsson ritari.
Urðu miklar umræður um félagsmál, en þó mest um yngri deild
félagsins. Var ákveðið að hún skyldi ekki þurfa að borga árstillög,
þar sem útgjöld við hana verða ekki meiri en svo að þeir eldri gætu
vel staðizt það.
Þá var ennfremur fallizt á það, að í deildinni skyldi vera sérstök
stjórn skipuð þrem drengjum úr þeirra flokki, er svo ynnu í samráði
við stjórnina í Val sem væri nokkurskonar tilsjónarráð deildarinnar.
Á fundi þessum ávarpar séra Friðrik Friðriksson félagsmenn, þá
sennilega nýkominn heim frá Vesturheimi. óskaði hann Val allra heilla
í framtíðinni og bað hann fyrst og fremst að keppa eftir hinum æðri
sigurlaunum. — Kvað hann Val eiga vin í sér og að hann vildi styrkja
liann í starfinu það er hann gæti.
Um sumarið tók félagið þátt í íslandsmótinu og lék fyrsta leik sinn
við Fram 20. júní sem lauk með sigri Fram 3:2, og leiknum við KR
töpuðu Valsmenn einnig 2:1, eða aðeins eins marks mun í hvorum leik.
Verður það að teljast vel af sér vikið. I Reykjavíkurmótinu fóru leik-
ar þannig, að Fram vann Val með 4:1 og KR vann einnig með 4:3.
Á þessum árum var sá háttur á hafður að hvert félag hafði sitt mót
og hafði þá tekjur af því fyrir sig. Þannig hafði Fram gefið íslands-
bikarinn, og KR hafði gefið grip til að keppa um á Reykjavíkurmótum,