Valsblaðið - 11.05.1961, Page 32
30
VALSBLAÐIÐ
Axel Gunnarsson
Maðurinn, sem tók forustuna á tímum
erfiðleikanna og braut félaginu nýja
braut til frama. Keppandi, stjórnar-
meðlimur, formaður um margra ára
skeið. Einn af heiðursfélögum Vals.
GuÍSmundur Kr. GuSjónsson
Stofnandinn, leiðbeinandinn og formað-
urinn á tímum erfiðleikanna. Enn í
starfi fyrir Val og hefur unnið síðustu
árin mest að skíðamálum félagsins. A
því 50 ára starfsafmæli hjá Val, einn
allra.
P
„Þér, ungu menn, sem standið nú í
röðum reiðubúnir að ganga inn á hið
nýja svæði til leiks, sýnið, að þér getið
leikið með kappi og fjöri og þó sem
göfugir ungir menn, sem fullkomlega
hafið vald yfir yður“.
Sr. Fr. Fr.
stunda baráttu við keppinautinn, sem var KR.“ og enn segir þar: „kapp-
leikir 2. fl. vöktu, bæði vor og haust, sérstaka athygli og bar tvennt
til þess, hve félögin voru jöfn og því fjörugir leikir og hve vel dreng-
irnir léku.“ Síðasta knattspyrnumót þessa viðburðaríka árs fyrir Val,
var í 3. fl. og þar skipaði Valur einnig 2. sætið. Sem sagt Valur var
þetta ár í úrslitum í öllum flokkum. Sigraði í 2. fl. mótunum, en varð
annar í röðinni í 1. fl. og 3. fl. mótunum. Þetta ár gengu nær 70 manns
í félagið.
Á aðalfundinum 1928 óskaði Axel Gunnarsson eindregið eftir því að
hverfa frá formennsku í félaginu. Mælti hann eindregið með Jóni Sig-
urðssyni í sinn stað og var hann kjörinn formaður. Hafði Axel þá setið
samfleytt í stjórn frá 1922 og þar af formaður í fimm ár. Á fundi
þessum ræddi formaðurinn nokkuð tillögu þá, sem samþykkt hafði
verið á aðalfundinum 1927 um athugun á æfingasvæði fyrir félagið
og afsakaði það, að nefnd sú, sem kjörin hefði verið í málið hefði lítt
aðhafst, lagði hann til að ný nefnd yrði skipuð og var það samþykkt
og hún skipuð þeim: Jón Sigurðssyni, Pétri Kristinssyni og ólafi Sig-
urðssyni. Þá var einnig samþykkt samkvæmt tillögu formanns að eftir-
leiðis skyldi ritari skrá nöfn allra keppenda félagsins í hverju móti,
sem það tæki þátt í, í ársskýrslu þess. Hin nýkjörna stjórn undir for-
ystu Jóns Sigurðssonar var þannig skipuð: Ámundi Sigurðsson ritari,
Pétur Kristinsson féhirðir, Friðjón Guðbjörnsson og Þorkell Ingvars-
son meðstjórnendur. Stjórnin hóf þegar að undirbúa æfingarnar og
ráða menn til að stjórna þeim. Fékk hún Guðmund H. Pétursson sem
þjálfara 1. og 2. fl. og Friðjón Guðbjömsson til að taka að sér þjálf-
un 3. fl. svo sem verið hafði árið áður. Samþykkt var að hafa þá
tilhögun á æfingum 1. og 2. fl. að þessir flokkar æfðu sameiginlega
fyrst um sinn. Til aðstoðar Friðjóni voru þeir Bjarni Guðbjömsson
og Jóhann Jóhannesson, enda kom það á daginn að full nauðsyn var
til að hafa þessa aðstoðarmenn, þar sem æfingasókn jókst mjög í 3. fl.
svo að skifta varð flokknum, þannig að félagar 10 ára og yngri urðu
að fá séræfingatíma. Skömmu eftir að æfingar hófust varð Guðmundur
Pétursson að fara úr bænum og tók þá formaðurinn, Jón Sigurðsson,
við þjálfun flokkanna. Æfingasókn 1. fl. var mjög góð á þessu ári, vel
og stundvíslega mætt, enda tók flokkurinn áberandi miklum og góðum
framförum, bæði að því er tók til einstakra leikmanna og samleiksins
yfirleitt.
Á þessu ári varð Valur sigurvegari í báðum mótum 2. fl. og vann
bikar vormótsins til eignar. Var þetta annar bikar, sem 2. fl. færði
félaginu til eignar, sá fyrsti vannst árið 1922 eins og fyrr er getið. I
haustmótinu tók þátt, auk Reykjavíkurfélaganna, félagið Magni, sem
þá starfaði í Hafnarfirði. Keppt var um „Knattspyrnumanninn“, fagur-
lega gjörða styttu og vann Valur hana þá í annað sinn.
Á árinu var sú nýbreytni tekin upp varðandi Reykjavíkurmótið, að
leyfa félagi að senda fleiri en eitt lið, ef það væri þess umkomið. Var
þetta gjört til þess að gefa hinum mörgu ágætu leikmönnum, sem æfðu
að staðaldri og stóðu tiltölulega lítið að baki hinum 11 útvöldu, kost
á að keppa opinberlega. Aðeins Valur og KR sáu sér fært að senda
tvö lið hvort. Seint á árínu háði Valur tvo kappleiki við utanbæjar-
félög, annars vegar Hafnfirðinga og hins vegar Akurnesinga og hafði
sigur yfir báðum. Dagana 8.—20. júlí þetta ár kom flokkur knatt-
spyrnumanna í heimsókn til Reykjavíkur frá Glasgow University Club.
Komu Skotarnir á vegum allra félaganna hér. Af hálfu Vals, í mót-
tökunefndina voru kjömir Axel Gunnarsson og Ólafur Jónsson, en