Valsblaðið - 11.05.1961, Qupperneq 33
VALSBLAÐIÐ
31
ólafur varð að fara úr bænum skömmu fyrir komu gestanna, og tók
Jón Sigurðsson þá sæti hans í nefndinni. Skotarnir báru ægihjálm yfir
landanum, svo sem við var búist, enda var þessi heimsókn fyrst og
fremst gjörð til þess að læra af gestunum og einnig að sjá „hvar við
stæðum í íþróttinni“ eins og segir í skýrslu um heimsókn þessa í
skjölum Vals. Val sigruðu Skotarnir með 6 mörkum gegn 1. Eftir
kappleikinn bauð stjórnin báðum flokkunum og móttökunefndinni til
kaffidi'ykkju á Skjaldbreið. Hafði formaður Vals, Jón Sigurðsson þar
orð fyrir Valsmönnum og flutti allítarlega ræðu um gengi knattspyrnu-
íþróttarinnar hér á landi, jafnframt því sem hann þakkaði gestunum
frábæran leik og glæsilega kennslustund í þessari gagnmerku íþrótt,
sem ætti hugi manna um allan heim, ýmist sem þátttakenda eða áhorf-
enda. Fararstjóri Skotanna, Nickolson, svaraði með skemmtilegri ræðu,
þar sem hann m. a. þakkaði hinar hlýlegu móttökur, jafnframt því,
sem hann lagði áherzlu á hversu mjög hann og félagar hans hefðu
hlakkað til íslandsferðarinnar. Kvaðst Nickolson vonast til, að för þeirra
út hingað, yrði íslenzkri knattspyrnu að eins miklu gagni eins og
þeir hefðu mikla ánægju af að koma hingað og kynnast, fyrst og
fremst íþróttamönnunum hér og svo landi og þjóð eftir því sem að-
staða til slíks leyfði á svo stuttum tíma sem hér væri um að ræða.
Ef slíkt mætti verða, væri vel.
Ekki leikur það á tveim tungum að koma Skotanna og frábær leikni
þeirra, sem var ævintýri líkust, hefði mikil og varanleg áhrif á leik-
menn hér og knattspymuíþróttina í heild. Flokkurinn í heild, að því
er tók til samleiks og skipulags og leikni einstaklinga, margra hverra,
var frábær á þeirra tíma mælikvarða. Keppni við slíka snillinga var
sannarlega góð kennslustund. Enda reyndist það svo.
Á þessu ári hafði stjómin ýms járn í eldinum til eflingar félags-
lífinu. Má þar geta þess, að skemmtinefnd var skipuð í fyrsta sinni,
Annar flokkur 1928, sem vann bæ'ði vor- og haustmót, og t:I eignar bikar, sem
þeir halda á, eftir harða baráttu vií K.R. -- í aftari röí f. v.: Björn Sigur’Ssson,
Kjartan Guðmundsson, Jón Eiríksson, Þórarinn Andrésson, Erlendur Jónsson,
borsteinn Jónsson. Premri röíS: Agnar BreiíSfjöríS, Jóhannes Bergsteinsson, Jon
Kfistbjörnsson, Hólmgeir Jónsson, Hrólfur Benediktsson.
Jón Sigurðsson
Annai' aðal forustumaður viðreisnar-
tímabilsins, áhugasamur, fylginn sér,
athugull og kunni að fá aðra til að
vinna. Maðurinn, sem lagði mikið upp
úr hinni félagslegu uppbyggingu Vals
og skildi þá hlið starfsins flestum betur.
□
frá Önnu Þórðardóttur
Kveðja sú, er hér birtist sendi frú
Anna Þórðardóttir félaginu á 30 ára
afmælinu, en hefur ekki komið fram
opinberlega fyrr. Frú Anna var gift
Halldóri Árnasyni, hinum ágæta og á-
hugasama félaga Vals, er lézt af slys-
förum í byrjun stríðsins.
Heill þér, Valur, þitt vorsins merki,
þú varSir með drengskap í orSi og verki,
því brauztu álaga ís og stál
með eld í hjarta og gull í sál.
Nú skín vi?S hátind þinn fáni fagur,
viS finnum öll þaS er merkis-dagur.
Er kleyfst þú þrítugan hamarinn,
óx hróður Islands viS sigur þinn.
Þér hljómi þakkir á þúsund strengi.
Eg þekki félagsins góðu drengi,
sem reyndust sannir á raunastund
meS rausn, er einkennir kærleiks-lund.
ísland hylli þig alla daga,
því aldrei gleymist þín frægSar-saga.
Vöku elda meS æsku þrótt
enginn getur meS vopnum sótt.
Heill þér, Valur, þú lifi lengi.
Lifsins faSir þitt stySji gengi
og kveiki loga um lönd og sæ,
er leysa fjötrana af Ingólfsbæ.
V. s.
Kærar kveSjur.
Anna ÞórSardóttir.