Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 40
38
VALSBLAÐIÐ
en þeir fara að taka þátt í opinþerum
mótum. Og við skulum byrja að fletta
þurrum og gulnuðum blöðunum, frá
1916.
Árið 1916 gerist Valur aðili að ÍSÍ
og tekur þá í fyrsta sinn þátt í Islands-
mótinu, sem fullgildur aðili.
Hvernig er svo umhorfs árið 1916?
Heimurinn á í styrjöld við sjálfan
sig og jörðin er böðuð í blóði. Heims-
styrjöldin fyrri er í algleymingi.
Af erlendum vettvangi eru þvi blöð-
in nær eingöngu með stríðsfréttir. Það
er því ekki nema von að menn séu meö
þungar áhyggjur yfir hvar þetta endi.
En hér heima gengur allt sinn vana
gang. Menn horfa á ógnir styrjaldar-
innar úr fjarlægð og umheimurinn er
fjarlægur.
f Morgunblaðinu 16. apríl 1916 er
þessi auglýsing ásamt fleirum frá
KFUM.
,,AUir þeir félagar KFUM, sem ætla
að ganga í Knattspyrnufélagið Valur
mæti í dag kl. 4 í KFUM“.
Starf ársins 1916 virðist sem sé haf-
ið og það hafa sjálfsgt verið glaðir og
reifir piltar, sem þá gengu til starfa.
Trúaðir á lífið og framtíðina og ógnir
stríðandi heims verið þeim fjarlæg-
ar. Og þó er stríð fyrir höndum, ekki
þó með vopnum og mnnvígum, en þó
stríð engu að síður. í því striði nota
menn sínar eigin fætur (og stundum
annarra) og knetti er spyrnt og stund-
um hafnar sá knöttur í marki andstæð-
inganna og þá er tilgangi stríðsins náð
að nokkru.
Ekki er skýrt frá því í blöðum hversu
margir félagar KFUM hafa þennan dag
gengið í Val en þeir hafa sjálfsagt ver-
ið einhverjir. Og svo líður vorið 1916
og þeir sem kunna að hafa rekið aug-
un í auglýsingu þeirra Valsfélaga hafa
sjálfsagt verið búnir að gleyma henni
fyrir fullt og allt, þegar sú næsta kem-
ur.
Það er í Morgunblaðinu 12. maí, þá
kemur þetta:
„KFUM. Knattspyrnufélagið Valur.
Æfing í kvöld kl. 8. Mætið stundvís-
lega.“
Þetta hefur sennilega ekki verið
fyrsta æfingin, þó þetta sé fyrsta til-
kynnjngin um æfipgu. ÍÉg læt mér
detta það í hug vegna þess að ég heyrði
eitt sinn á tal tveggja roskinna Vals-
manna og annar sagði: „Mikið anssk. ..
byrja strákarnir alltaf seint að æfa á
vorin. Manstu, þegar við vorum að
þessu, alltaf komnir í gang í apríl“. En
það var á sunnudagsmorgni seint í marz
i hitteðfyrra, sem ég heyrði þetta. Við
skulum því segja að þessi auglýsing hafi
verið sett í blöðin til að minna félagana
íslandsmeistarar Vals í 1. fl. (B-liS) 1930. Aftasta röð: Óskar
Jónsson, Axel Jónsson, Torfi Guðbjörnsson, Sæmundur SigurSsson,
Bjarni Guðbjörnsson. MiðröS: Þórarinn Andrésson, Þorkell Ingvarsson,
Kristjón Isaksson. Fremsta röS: Sveinn Zoega, Einar Björnsson, Gunn-
ar Theodórsson (látinn).
þetta ennfremur hve vel hefur verið að unnið, á umliðnum árum og
félagið haft á að skipa mörgum góðum knattspyrnumönnum, þá þegar.
Afmælisár og utanför.
Velgengnin í knattspymunni þjóðhátíðarárið hafði ýtt mjög undir
athafnir félagsmanna og trúna á framgang félagsins. Þá kemur fram
hugmyndin um að athuga þann möguleika að fara utan næsta ár, eða
1931 og um leið að halda uppá 20 ára afmælið. Var haft samband við
KFUM í Danmörku, sem hafði og hefur knattspyrnu innan sinna vé-
banda, með þátttöku í almennum mótum þar í landi. Þessu er vel
tekið og ekki sízt þegar það ræðst, að síra Friðrik verði aðalfarar-
stjóri, en hann var dáður maður í Danmörku ekki síður en á íslandi.
Aðalskipulagningin að ferðalaginu var í höndum Jóns Sigurðssonar
og var það skemmtilegur tími, sem nú fór í hönd. Hann dreifði verk-
efnunum á vissar nefndir innan flokksins og á kaffifundunum, sem
haldnir voru til skiptis heima hjá félagsmönnum, gáfu nefndirnar svo
skýrslu um gang málanna.
Ráðist var í það að gefa út Keppinauta eftir síra Friðrik, en hann gaf
Val handritið, og söfnuðu félagarnir áskrifendum og fékk ferðasjóður-
inn drjúgan skilding í farareyri, fyrir sölu bókarinnar.
Mánaðargjald (kr. 10), var innheimt hjá hverjum þátttakanda all-
an veturinn og dugði það langdrægt fyrir fargjaldinu að viðbættu því,
sem aflaðist á annan hátt.