Valsblaðið - 11.05.1961, Qupperneq 45
VALSBLAÐIÐ
43
um heimildum að 10 ára afmælisins hafi verið minnst. Þá var, eins og
áður er sagt, deyfð yfir starfinu, þeir eldri að hverfa og því eðlilegt
að það félli niður.
Á 15 ára afmælinu, tóku menn upp fyrri aðgerðir: fóru í skemmti-
ferð suður í Kaldársel, ,,og náði ferðin fullkomlega tilgangi sínum“,
eins og segir í skýrslu.
Nú var félagið orðið Islandsmeistari í knattspyrnu, hafði tekizt að
sigra hina snjöllu og um margra ára bil, ósigrandi KR-inga, og því
skyldi hátíðlegt halda 20 ára afmælið. Var hóf mikið haldið í húsi
KFUM, og þar saman komnir margir félagsmenn, fyrirmenn félaga
og sambanda og auk þess stjórn KFUM.
Við þetta tækifæri voru þeir séra Friðrik Friðriksson og Guðbjörn
Guðmundsson kjörnir heiðursfélagar Vals.
Voru margar ræður fluttar og talaði séra Friðrik fyrir minni knatt-
spyrnuíþróttarinnar, en fyrir minni Vals talaði Guðbjörn Guðmunds-
son og rakti sögu félagsins. Var þetta hinn bezti fagnaður.
Velgengni. Samstilltir menn.
Þessi ár og árin næstu á eftir, er yfirleitt velgengni í knattspyrn-
unni í Val og það í öllum flokkum. í meistaraflokki er KR eini veru-
legi keppinauturinn og skiptast þessi félög um að sigra eða vera í öðru
sæti.
Lið Vals hefur á mörgum undanförnum árum, fengið herzlu í hörðum
leikjum við mótherjana en þó helzt KR. þetta hefur haft þau áhrif
á Valsmenn, að þeir hafa harðnað við hverja raun. Það hefur valizt
saman samstilltur hópur, sem að eðlisfari er yfirleitt viljasterkur,
félagslyndur og hefur fulla félagsmeðvitund. Þeir eru kröfuharðir við
sjálfa sig og aðra. Þeir gera sér mikið far um að skilja knattspyrn-
una og reyna að láta það kom? fram í leiknum. Þetta tekst undravel
keykjavíkurmeistarar 1932. ---- Aftari röS frá v.: Agnar BreiSfjörS, Hrólfur
Benediktsson, Pétur Kristinsson, Jón Eiríksson. Olafur SigurSsson, Frímann
Helgason, Óskar Jónsson, Gísli Kærnested. Fremri röíS: Kristjón ísaksson, Hólm-
Beir Jónsson, Jón Kristbjörnsson, Jóhannes Bergsteinsson og Björn SigurSsson.
en þegar tekið er með í reikninginn að
,,aðeins þetta eina kvöld“ sýni Gamla
bíó „hina stórkostlegu mynd Syndugu
konuna“ er þetta kannski skiljanlegt.
Þegar Danirnir mættu Fram stuttu
síðar höfðu Framarar styrkt lið sitt
með þrem láns mönnum. Stefán Ólafs-
son markvörður Vals var í þessu liði.
En allt kom fyrir ekki. Þeir dönsku
virtust ósigrandi og leikurinn tapaðist
5:0. Ekki voru menn nú allskostar á-
nægðir með frammistöðuna, en sögðu
þetta þó bezta leikinn til þessa. Um
Stefán Ólafsson sagði Morgunblaðið, að
hann virtist nokkuð mistækur, en hann
átti eftir að segja sitt síðasta orð.
Þá er komið að þeim leik þessarar
heimsóknar. sem sögufrægastur varð.
Það er leikurinn við úi’val ,.úr öllum
félöo-unum í Reykjavik“. Daginn áður
hafði verið farið með gestiua í útreið-
artúr suður fvrir Hafnarfiörð. Lvsing-
in á beim eftir þessa för er heldur
svakaleg. Þannig er st.uttlega sagt frá
bví: ,.og í fyrrakvöld. þegar h°ir komu
úr Firðinum voru beir allir liðamóta-
lausir um hnén, og hað sem snert ha^ði
hnakkinn. eins og glóandi eldhaf“. F.r
skemmst, frá því að segja að úrva'ið
vinnur A. B. með fjórum mörkum gegn
einu. Eru menn mjög ánæaðir með
þessi úrslit og segja íslenzku knatt-
suyrnumennina ekki hafa leikið betur
í annan tíma. Stefán Ólafsson mark-
vörður úr Val fær líka góða umsögn
eftir þennan leik. ,.Og Stefán mark-
vörður gerði mörg tákn og stórmerki
og mnn óefað hafa aflað sér vinsælda
allra viðstaddra".
En Danir áttu eftir að segja sitt
síðasta orð og nokkru síðar vinna þeir
betta sama lið með 7:2. Og þannig lauk
þessai'i fyrstu erlendu heimsókn.
Nú er komið árið 1930, það ár er
íslendingnr héldu hátiðlegt að Þing-
völlum þúsund ára afmæli alþingis.
Þessi hátíð var landi og þjóð til sóma
og mun vera talin einn af merkari við-
burðum Is'andssögunnar. Þetta ár sótti
landið heim fleiri erlendir gestir en
nokkru sinni áður og þeir virtust hverf a
héðan á brott með ógleymanlegar minn-
ingar.
Og svo sem við er að búast er það
þessi þúsund ára hátíð alþingis sem
setur mestan svip sinn á árið. Undir-
búningur hennar hafði' staðið yfir
næstu fjögur ár á undan og menn voru
ákveðnir í að gera hana eins glæsilega
úr garði og unnt væri og ógleymanlega
þeim, er hana yrðu viðstaddir. Og það
tókst. En það eru fleiri viðburðir þetta
ár merkir en Alþingishátiðin. íslend-
ingar eignast sitt fyrsta „lúxus“ hótel.
í janúar þetta ár hefur Hótel Borg