Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 49
VALSBLAÐIÐ
47
Gestir Vals 1933: KFUM Boldklub frá Kaupmannahöfn. Fararstjórinn Paul K.
Jensen situr til hœgri í miðrö'S.
nokkrum dögum síðar, með þeim árangri að það vann Fram og Víking.
■— Um kvöldið (16. júní) kepptum við við Húsvíkinga og unnum 7:0.
17. júní tókum við þátt í allsherjarmóti Norðurlands, og varð árang-
ur góður, áttum 1. mann í þrem greinum.
18. júní kl. 12 á hádegi lögðum við af stað með Gullfossi áleiðis
heim. Á Siglufirði var ekki hægt að keppa aftur eins og við vonuðumst
eftir, vegna ýmsra ástæðna. Á ísafirði kepptum við 19. júní við meist-
araflokk Vestra, og endaði sá leikur með sigri okkar 3:2. Vegna þess
að skipið beið eftir okkur, urðum við að flýta okkur að kveðja, án
þess að fá aftur tækifæri til að sjá okkur um þar og njóta innilegrar
gestrisni ísfirðinga.
Að morgni 20. júní vorum við aftur staddir á Reykjavíkurhöfn. Þar
tók hópur Valsmanna á móti okkur og þökkuðu góða frammistöðu fyrir
norðan.“
Við ferðasögu þessa má bæta því, að þegar heim kom þótti þeim
eldri sem nokkur ,,gustur“ stæði af Norðuríörum. þeir höfðu skorað
á meistaraflokksmenn að mæta sér í keppni, en af einhverjum ástæð-
Um varð ekki úr þeirri viðureign. Víst er að 2. fl. menn voru ekki
myrkir í máli hverjar þessar ,,einhverjar“ ástæður voru!
Danir í heimsókn hjá Val.
Árið 1933 byrjaði ekki sérlega uppörfandi, hvað sneríi fjáraflanir,
sem þó alltaf voru rauður þráður í starfinu, ef eitthvað átti að ske eða
ef „forsvaranlega" átti að standa undir daglegri starfsemi.
Utilokað var að halda álfadans og brennu, þar sem stór hluti girð-
ingarinnar á „Vellinum“ hafði fokið í ofviðri, og ekki tiltök að gera
við hana fyrr en með vorinu.
Hlutaveltur voru, þá eins og nú, nærtæk fjáröflun og að þeim var
samhliða því sem Valui- og K.R. víg-
búast. Við skulum rétt líta á það.
Gamla bíó sýnir þetta kvöld mynd-
ina „Villt blóm“ með Gretu Garbó í
aðalhlutverki. Og í auglýsingu segir að
í þessari mynd nái Greta Garbó ,,há-
marki i list sinni“. Leikfélag Reykjavik-
ur, sem þetta sumar hefur haft hátiðar-
sýningu á Fjalla-Eyvindi sýnir hann
þetta kvöld og með aðalhlutverkin fara
Anna Borg og Gestur Pálsson. Aug-
lýstir eru kveðjuhljómleikar Gellin og
Borgström, sem hér hafa dvalizt þetta
sumar ásamt dansmærinni Broek Nil-
son.
Og svo vitum við ekkert rneir. Við
getum ekki fylgt þeim mannfjölda eftir
sem þetta júlíkvöld lagði leið sína
„suður á völl“. Við getum ekkert annað
en ílett „spjöldum sögunnar“ og við
skulum fletta um einn dag og nú er það
föstudagurinn 11. júli, sem blasir við
okkur.
Morgunblaðið segir þetta í dagbók:
„Úrslitaleikurinn í gærkvöldi fór þann-
ig, að Valur vann K.R. með 2 mörkum
gegn 1, og að auki nafnbótina „bezta
knattspyrnufélag Islands“.
Vísir segir þetta m. a. i bæjarfrétt-
um: „Og hlaut þar með íslandsbikar-
inn, 11 heiðurspeninga og að auki nafn-
bótina „bezta knattspyrnufélag íslands"
og eftir framkomu Valsmanna í þessu
móti virðist félagið vel að þessum vegs-
auka komið“.
Alþýðublaðið sagði m. a.: „Kappleik-
urinn var fjörugur mjög“.
Laugardaginn 12. júlí er svo í Morg-
unblaðinu grein eftir x, sem heitir
„Knattspyrnumót Islands“ og er hún
um þennan úrslitaleik. Við skulum nú
taka úr henni nokkrar glefsur.
„Leikurinn var frá upphafi áhrifa-
Einn af ungu mönnunum, sem 1930
brutu blað í sögu Vals. Góður félagi,
sanngjarn og viðfeldinn. Gerðist for-
maður Vals 1931.