Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 61

Valsblaðið - 11.05.1961, Síða 61
VALSBLAÐIÐ 59 ferðinni féllst Valur á það að leika við KR til ágóða fyrir för úrvals- ins til Þýzkalands, gegn vilyrði um að úrvalið léki við Norðurlandafara Vals á eftir og til ágóða fyrir ferð Vals. Var ekki laust við að nokkrar viðsjár væru meðal manna og nokkur alvara í málum, því hver vildi halda sínu og sínum knattspyrnulega heiðri. Þessi mikið umræddi leikur, KR og Vals, fór svo fram 29. sept. og þótti báðum mikið í mun að vinna. Leikar fóru þannig að Valur vann 2:1 eftir vægast sagt mjög ,,spennandi“ leik. Var leikurinn fjörugur og léku Valsmenn vel í fyrri hálfleik sérstaklega. Gísli Kærnested skor- aði bæði mörk Vals. Næsta sunnudag átti svo leikur Vals og úrvalsins að fara fram, en þegar til kom neituðu þeir, sem áttu að leika í úrvalinu að keppa við Val. VallarmáliS' leysist og 4. flokkur verður til. Allt frá því að Valur missti völl sinn undir Melavöllinn var það draumur forráðamanna Vals að fá nýtt svæði til að hafa æfingar á og það útaf fyrir sig. Á þessu sumri rættist úr með þetta, þannig, að Valur fékk útmælt svæði suður við öskjuhlíð, við býlið Haukaland. Var það allgott vallarstæði, en stórgrýtt og þurfti mikið við það að gera svo að það yrði nothæft til æfinga. Fyrstu handtökin við völlinn voru unnin sunnudaginn 22. september, og komu um 30 manns með haka, skóflur og járnkarla. Haldið var svo áfram næsta vor. En hann var ekki stór flöturinn, sem ruddur hafði verið, þegar farið var að nota svæðið til æfinga, en hann stækkaði smátt og smátt, því unnið var á hverjum sunnudegi og stundum á kvöldin og oft tóku drengirnir sig til og unnu að því að ryðja, áður en sjálf æfingin byrjaði. Þessi litli og ófullkomni völlur opnaði nú möguleikana fyrir því, að gera meira fyrir yngstu drengina og var nú hafizt handa um það, Stórgrýtið boriíS burt. — Frá v.: SigurSur !Ólafsson og Grímar Jónsson meS grjót á börum, Frímann meS stein í fangi og Björgúlfur Baldursson og Magnús Bergsteinsson metS stein á börum. af er sama blikið í augum þeirra, þeg- ar knattspynan er fyrir þeim. Aðdáun og hrifning! Smátt og smátt hafa þeir komizt í kynni við knattspyrnuna. Nú eru það ekki lengur óskir og vonir að- eins, að fá að vera með. Þeir þurfa ekki lengur að „þykjast" vera þessi eða hinn. Þeir eru aðeins þeir sjálfir. I búningi síns félags, fulltrúar þess, hetjur þess og merkisberar. Draumur- inn er að rætast, draumur allra ungra drengja, sem knattspyrnan hefur með töfravaldi sínu seitt að sér. IV. flokkur, III. flokkur, II. flokkur, allt eru þetta áfangar á langri leið. Hver áfangi hefur gefið aukna reynslu, meiri þroska, nán- ari vináttu. Allt þetta hefur treyst og bundið meir og þéttar saman þá sjálfa og knattspyrnuna. Loks hefur takmarkinu verið náð. Þeir eru orðnir þátttakendur í meistara- liði félagsins. Þeir iðka íþrótt sína með kostgæfni. Þeir sigra. Þeir tapa með sæmd. Þeir feta í fótspor forfeðranna, halda í víkingaferðir til fjarlægra landa. Heyja þar orustur af karl- mennsku og vígfúsir. Koma heim aftur lærðari í íþrótt sinni, fróðari um hag samherjanna úti þar, um lönd og þeirra fólk. Vinfleiri og bjartsýnni á knatt- spyrnuna sem íþrótt, og þann þroska, sem hún hafði veitt þeim persónulega. Félagsstörfin, leikirnir og ferðalögin geymast í hugum þeirra. Það verða fjölmörg, ógleymanleg ævintýri, sem fá nýjan og skírari tilgang þegar lengra líður frá. Þessi tími nemur heldur ekki staðar. Hann líður eins og fagur draumur. Þeir haf borið merki félags síns sér til gleði og persónulegs þroska, alla þessa á- fanga. Nýir menn hafa leitað eftir í sama tilgangi með sömu hugsunum. Þetta skeið er lika á enda runnið. Þeir sitja saman meðal áhorfenda. Þeir láta engan leik fram hjá sér fara. Hver nýr leikmaður verður kunningi þeirra, þó þeir hafi aldrei talast við. Hver leikur verður þeim umræðuefni í vina- hópnum við daglegu störfin. Leikirnir halda áfram að vera hluti af þeim sjálf- um. Skapbrigði æskunnar eru svo að segja horfin. Þeir dáðst að því, sem vel er gert, hver sem það gerir. Hin
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.