Valsblaðið - 11.05.1961, Page 68
66
VALSBLAÐIÐ
við ættum ekki að vera samtaka í því,
að láta þá yngri, sem nú eru að koma
fram á sjónarsviðið og þá, sem fram-
tiðin elur, ekki fara á mis við það, sem
við fundum mest til á unglingsárum
okkar í félaginu. Eg hefi þá trú, að ef
allir væru samtaka í þessu, þá mundu
margar misfellur félagslífsins lagast,
sem alltaf við og við eru að reka upp
koliinn. (Ur 40 ára afmælisblaðinu).
□
Undirbúningsnefnd 25. ára afmælisins.
Bergmann, Frímann, Sveinn. Allir í
starfi enn fyrir Val.
□
Jón Sigurðsson:
fthattJpiffHa
Dómarinn flautar og leikurinn hefst.
Knettinum er spyrnt frá manni til
manns, kappliði til kappliðs, af öðrum
vallarhelmingnum á hinn, fram og aft-
ur, langt og skammt, í lofti og með
jörðu, hratt, fast, samt létt og lipurt,
ákveðið og öruggt, og nú áfram, áfram
og enn fram, fram, og — í mark.
Gleði. Vonbrigði. — Nokkur augna-
blik, og knattspyrnumennirnir hlaupa
hver á sinn stað og bíða þess að leik-
ur hefjist á ný.
Þeir raða sér niður, ekki af tilviljun,
heldur skipulega og með ákveðnu milli-
bili. Hver hefur síns staðar að gæta og
sitt ákveðna hlutverk að leysa af hendi.
Fimm framherjar í beinni sóknarlínu
vel borgið í hans höndum. Vann Grímar þar mikið og gott starf, og
lét þau mál sig miklu skipta um margra ára skeið og gerir raunar
enn, þó hann hafi, aðallega af heilsufai'sástæðum, orðið að draga af sér.
Jafntefli við Þjóðverja.
Um sumarið kom hingað þýzkur knattspyrnuflokkur, sem var mjög
sterkur, skipaður úrvalsleikmönnum úr mörgum félögum.
Valur lék sem íslandsmeistari við gestina og vann sér það til ágætis,
að gera jafntefli við þetta sterka lið, 1:1. Þóttu það miklar framfarir
frá því 1935 er Valur tapaði fyrir svipuðu liði með 7:0. Var talið að
þetta hefði verið bezti leikur íslenzks liðs, sem leikinn hafði verið
til þessa.
Um haustið hvarf Murdo Mac Dougall héðan til Skotlands aftur. Var
hann kvaddur með samsæti í KFUM, og honum þökkuð störfin og af-
hentur bikar til minja um dvölina hér. Ennfremur gáfu nokkrir af
yngri félögunum honum styttu af tennisleikara, en Murdo var góður
tennisleikari.
Itætt um kaup á Lögbergi.
Snemma á þessu ári kom Axel Gunnarsson að máli við stjórn félagsins
og skýrði hugmynd sína um að Valur kaupi jörðina Lögberg, i ná-
grenni Reykjavíkur. Bjóst hann við að skilmálar allir yrðu mjög að-
gengilegir og lofaði að fá allar nánari upplýsingar viðvíkjandi máli
þessu. Kvaðst hann reiðubúinn að fara með stjórnina upp að Lögbergi
og sýna henni landið og húsin.
Sagðist Axel viss um, að með þessu væri hægt að efla félagslífið
íslandsmeistarar Vals 1938. ---- Aftari röS: Egill JCristbjörnsson, Gísli Kærne-
sted, Hrólfur Benediktsson, Bolli Gunnarsson, Jóhannes Bergsteinsson, Björg-
úlfur Baldursson, Murdo þjálfari. Fremri röS: Ellert Sölvason, Grímar Jónsson,
Hermann Hermannsson, Frímann Helgason, GuSmundur SigurSsson. 1