Valsblaðið - 11.05.1961, Qupperneq 83
VALSBLAÐIÐ
81
í veg-gnum kemur hann strax aftur í leik. Skotin þurfa að koma neðar-
lega og óvænt, það þótti og góð leiktækni, að skjóta aftur fyrir sig
með lítilli handahreifingu, af línu. Ekki var hægt að hafa fleiri en 5
menn í liði, eða 4 úti og 1 í marki, í þessum litlu sölum og var þó
þröifgt.
Með komu íþróttahúss Jóns Þorsteinssonar þótti handknattleiks-
mönnum, sem mikið hefði áunnist fyrir handknattleikinn. Hægt var að
hafa 6 menn í liði og gólfrými mun stærra en áður þekktist.
ÍSÍ efnir til fyrsta Islandsmóts í handknattleik.
Val falið að sjá um mótið ásamt Víking. Valur gefur bikar.
í ársskýrslu Vals 1940 segir m. a.: — „Eins og allir hafa tekið eftir
hefur félagið undanfarin ár lagt stund á handknattleik og alltaf haft
hug á því, að þessi íþrótt gæti styrkt vetrarstarfsemina og haldið
mönnum í góðri þjálfun fyrir sumarið." — Ef til vill hefur stjórn I-
þröttasambands Islands haft það í huga, þegar hún fór þess á leit
við Val, að standa fyrir Islandsmóti í handknattleik, sem fara átti
fram í marz n. k. en beiðni þessi, var borin fram á stjórnarfundi hjá
Val 5. des. 1939. Er fallist á að verða við þessari beiðni, og á fundi
stjórnarinnar 19. febrúar er „upplesið skipunarbréf frá ÍSÍ um að
Val sé falið að sjá um Handknattleiksmót íslands ásamt Víking, —“
og ennfremur er bókað — „Sigurði ólafssyni og Grímari Jónssyni falið
að sjá um, að kapplið Vals verði í góðri þjálfun og að sjá um val á
mönnum í kappliðin. —“
I nefnd þessa, sem sá um mótið, voru tveir menn skipaðir frá hvoru
félagi, Val og Víking, en ÍSÍ tilnefndi Frímann Helgason sem formann
nefndarinnar.
Val hafði nokkrum árum áður verið gefinn veglegur bikar af Vá-
tryggingafélaginu „Nye danske“ og í tilefni af þessu nýja móti, gaf
Valur bikarinn til keppni í meistaraflokki (1. fl.).
Valur 'fyrsti íslandsmeistari í handknattleik í meistaraflokki og 2. fl.
Valur sendi 2 flokka til mótsins, meistaraflokk og 2. flokk karla.
Leikar fóru þannig að Valur varð Islandsmeistari í báðum flokkum.
Af því að um fyrsta mót er að ræða verður getið hér úrslita í leikjunum:
Valur—Haukar 26:2, ÍR 36:12, Fram 39:13, Víkingur 25:16, Háskólinn
14:13. Samtals skoraði Valur 140 möi'k en fékk 74.
Leikar annars flokks fóru þannig: Valur—ÍR 24:17, Fram 20:8.
Víkingur 16:12. Skoruðu Valsmenn samtals 60 mörk gegn 37.
Islandsmeistarar Vals í meistaraflokki voru: Grímar Jónsson, Anton
Erlendsson, Geir Guðmundsson, Frímann Helgason, Egill Kristbjörns-
son, Sigurður Ólafsson og Karl Jónsson, sem lék úrslitaleikinn, en 6
menn voru í liði eins og fyrr segir.
I öðrum flokki voru þessir meistarar Vals í fyrsta mótinu: Geir Guð-
mundsson, Anton Erlendsson, Sveinn Sveinsson, Ámi Kjartansson,
Ólafur Jensen, Ingólfur Steinsson og Snorri Jónsson.
Vafalaust getur Valur þakkað þetta hinum bjartsýnu handknatt-
leiksmönnum, sem í nær 10 ár höfðu æft og leikið handknattleikinn
„utan garðs“ ef svo mætti segja. Þessi nýi sigur í þessari nýju íþrótta-
grein hafði vakið mikla athygli á félaginu, og mót þetta hafði einnig
í heild vakið athygli á handknattleiknum. Áhorfendur voru eins mai'gir
Andréas Bergmann
Kom í Val nokkuð við aldur, án þess
að njóta ánægjunnar af leiknum með
beinni þátttöku. Mikill áhugamaður um
félagsmál Vals, og hefur látið sig allt
það varða, sem Valur hefur tekið sér
fyrir hendur. Höfundur skíðaskála Vals
og nefndannaður þar og lengst sem
formaður. Hefur gegnt margþættum
störfum fyrir Val.
Magnús Bergsteinsson
,,Humoristinn“, sem fékk liðið oft til
að brosa, og hinn leikni og snjalli út-
herji í leik. Starfsmaðurinn góði, eftir
að skórnir fóru á hilluna, bæði við
Skíðaskálann og síðar á Hlíðarenda.
Áhugamaðurinn einlægi fyrir velferð
Vals.
Baldur Steingrímsson
Kom sem áhugamaður í Val, eltki til
að taka þátt í leik, en aðeins til að taka
á sig störf. Hann hefur verið lengst
allra í stjórn Vals eða yfir 20 ár, og
þá sem gjaldkeri.