Valsblaðið - 11.05.1961, Side 84
82
VALSBLAÐIÐ
SigurSur Olafsson
Hinn sívakandi félagi, skyldurækinn,
athugull og athafnasamur. Hefur unn-
ið ómetanlegt starf í sambandi við
Hliðarenda. Snjall knattspyrnumaður,
landsliðsmaður, formaður Vals 1947,
fulltrúi Vals víða.
Hrólfur Benediktsson
Hinn öri áhugamaður um langan tíma.
Fylginn sér í leik og fylginn sér í öllu
starfi fyrir Val. Kröfuharður við yngri
mennina, eins og hann var við sjálfan
sig. Sterkur leikmaður á sínum tíma.
Sat í stjórn Vals um langt skeið, og
hefur unnið mörg störf fyrir félagið.
Sigurpáll Jónsson.
Einn af þeim leikmönnum, sem var
sterkari en hann sýndist, fylginn sér
í leik, laginn að skora mörk. Skildi
leikinn mörgum fremur. Góður félagi,
innan vallar sem utan, og er í ritstjórn
þessa blaðs.
á mótinu og- frekast var unnt og nú gátu þeir séð leikinn sér til mik
illar ánægju.
Gegnrýndu hvern annan fyrir leik.
Það er ástæða til að rifja það upp hér, hver síðasti undirbúningur
leikmanna Vals í meistaraflokki var, áður en lagt var útí leikinn við
Háskólann, sem vitað var að áttu mjög sterkt lið. Enginn þjálfari í
þess orðs merkingu var til, sem gat bent á veilumar og lagt „hern-
aðaráætlunina“ í leiknum. Leikmenn urðu því að treysta á sjálfa
sig og hvern annan. það var því tekið til bragðs að fara niður á
skrifstofu Sparisjóðs Reykjavíkur, þar sem Sveinn Zoéga vann þá,
og þar átti að ræða málið. Var samþykkt að þar skyldi hver gagnrýna
annan, og segja hvað honum fyndist að leik hvers og eins. Gefið var
jafnframt loforð um, að allir skyldu hlusta og ekki svara einu orði,
hvernig sem gagnrýnin yrði. Fundurinn ,,heppnaðist“ vel, og menn
hlustuðu og virtu skoðanir hvers annars og ef til vill hefur það átt
sinn drjúga þátt í því að Val tókst að sigra, í þessu fyrsta móti, jafn
sterkt lið og Háskólinn átti þá.
Með þessari þátttöku í fyrsta íslandsmótinu í handknattleik, hafði
handknattleikurinn numið endanlega land í Val og á íslandi, sem
skipulögð íþrótt.
Afmælisár — Valur 30 ára.
Stríðið, sem hófst um haustið 1939 og hernámið, vorið eftir, hafði
sín áhrif á allt íþróttalíf hér. Samskiptin við útlönd lögðust niður, en
þau voru að komast á fastan grundvöll, til mikils góðs fyrir félags-
lífið og íþróttina. Yfirfljótandi atvinna gerði líka sitt til þess, að
erfiðara varð um félagslegt starf og samheldni alla. Kostað var þó
kapps um að halda í horfinu, hvað hið íþróttalega starf snerti og voru
Valsmenn oftast sigursælir. Reynt var að halda stöðugt vakandi starf-
inu, fyrir unglingana og reyndist staða unglingaleiðtoga mjög þýðing-
armikil í félaginu.
Árið 1941 var að því leyti sögulegt fyrir Val, að þá varð félagið 30
ára gamalt. Var af því tilefni efnt til hátíðahalda, afmælisleikir fóru
fram, veglegt hóf var haldið, þar sem m. a. voru saman komnir for-
ustumenn íþróttamála. Við það tækifæri mælti Gunnar Thoroddsen
núverandi fjármálaráðherra, fyrir minni félagsins, en Guðbjörn Guð-
mundsson mælti fyrir minni íslands. Ávörp fluttu borgarstjórinn í
Reykjavík, forseti ÍSÍ og margir aðrir. Peningagjöf barst frá mörgum
Valsmönnum, sem skyldi verja til félagsheimilisins, einnig bárust fé-
laginu margar aðrar gjafir frá öðrum félögum og einstaklingum.
I tilefni af afmæli þessu hafði Valur 60 mín. þátt í Ríkisútvarpinu,
voru þar fluttar ræður og ávörp. Þar töluðu séra Bjarni Jónsson, Guð-
mundur Ásbjömsson, forseti bæjarstjórnar og formaður Vals. Sveinn
Zoéga. „Á milli erinda söng hinn vinsæli Valskór, nokkra velvalda
Valssöngva, sem hið vinsæla hirðskáld okkar, Guðmundur Sigurðsson,
hafði ort um ýmsar hetjur okkar og verndarvætti af ýmsum stærð-
um allt frá dálitlum dvergum, upp í hina rammefldustu risa, sem
berjast fyrir félag vort. -—“ eins og það er orðað á einum stað í skýrslu
um afmælishaldið. Stórt afmælisblað kom út undir ritstjóm Ólafs
Sigurðssonar, Hrólfs Benediktssonar og Einars Björnssonar.