Valsblaðið - 11.05.1961, Qupperneq 89
VALSBLAÐIÐ
87
skipulagt, sem íþróttahverfi og gerðar þar grunnteikningar. Var það
ætlun bæjarins að ræsa fram landið og afhenda síðan félögunum til
frekari framkvæmda.
Nokkuð mun menn hafa greint á um það, í hvaða ástandi landið
skyldi vera, þegar bærinn afhenti það einstökum félögum, og varð
af þessu meiri dráttur, en æskilegt var. Gerði stjórn Vals þá áætl-
anir um land það, sem hvert starfandi félag þyrfti að hafa og sótti
síðan um til bæjarráðs, að félaginu yrði afhent svæði í samræmi við
það. Þessari málaleitan var ekki svarað. Aftur var beiðni þessi endur-
nýjuð, hálfu ári síðar. Það hafði líka gerzt að hin félögin höfðu gert
svo miklar kröfur til bæjarins, um það hvernig skila skyldi landinu
í hendur þeirra, að bærinn sá sér ekki fært að sinna málinu frekar.
Síðar kom líka fram sú skoðun, að heppilegra væri að dreifa íþrótta-
svæðum, um bæinn, en ekki að setja þau öll á sama stað.
Allt þetta varð til þess að Valur fór að grennslast eftir landi fyrir
starfsemina, því það var alltaf efst í huga félagsmanna, að vera sér
sjálfum nógir.
Hlíðarendakaupin gerð.
Á stjórnarfundi 8. apríl 1939 skýrir formaður félagsins Ólafur Sig-
urðsson frá því — “að boðizt hefði til kaups land fyrir knattspyrnu-
velli, fyrir Val, „grasvelli". Land þetta er Illíðarendi við öskjuhlíð.
Talsverðar umræður urðu um mál þetta, en engin ákvörðun tekin
í málinu.“ — Þannig hljóðar hin fyrsta bókun um þetta merkilega mál
félagsins.
Kemur þetta síðan fyrir 3 næstu stjórnarfundi og á fundinum 8.
maí er endanlega gengið frá málinu, sem markaði svo stórkostleg
tímamót í sögu félagsins. Þar segir orðrétt: „Fyrir fundinum lá kaup-
samningur um kaup á landinu Hlíðarenda við öskjuhlíð. Var það sam-
þykkt, að samningurinn skyldi undirskrifaður á morgun 9. maí 1939“.
Mestur hluti lands þessa var tún, en allt landið var 5,1 ha. að stærð.
Kaupverðið var 30.000 kr. og skyldi borga út 5000 kr. í þá daga voru
þetta miklar upphæðir, fyrir fátækt félag með nærri tóman sjóð. Til
þess að standa í skilum með útborgunina var horfið að því að gefa út
50 króna skuldabréf, og bjargaðist það, en þó tókst ekki að greiða
stimpilgjöld fyrr en nokkru síðar!
Eins og leigumála var háttað af eignum þessum stóð hún undir
sér, en hús og land var leigt til næstu 5 ára, enda ekkert fé til frekari
framkvæmda, fyrst um sinn. Þegar samið var um leiguna, var undan-
skilinn um 1 ha. til æfinga fyrir félagsmenn og kom sér vel, því æf-
ingasvæðið við Öskjuhlíð varð brátt ónothæft, vegna flugvallarins.
Kaupsamninga gerði félagið við frú Jóneyju Guðmundsdóttur, en
annar aðili mun hafa sótt eftir landinu, á sama tíma. Um þetta segir
Ólafur Sigurðsson í grein um Hlíðarenda 20 ára. „Hafði frú Jóney
tekið miklu ástfóstri við staðinn þau ár sem hún bjó þar með manni
sínum, fyrrverandi alþingismanni Guðjóni Guðlaugssyni og fjölskyldu
þeirra. Vildi hún því heldur selja Val eignina í þeirri trú að Valur
mundi hlú að staðnum, rækta hann og prýða, frekar en eigandi er ræki
þar bú. Skuldum vér Valsmenn minningu þessarar mætu konu, að
koma þessari hugsjón hennar í framkvæmd hið fyrsta.“
Um það leyti, sem kaupin voru gerð kom fram nokkur gagnrýni á
því að ekki skyldi boðað til almenns fundar, til að ræða þetta stóra
mál, en stjómin ákvæði það ein, þar sem um svo háar fjárskuldbind-
°9
S)tjórn
/riítmfft
armenn
ÓL
fínó/u 5
círin
Stjórnir Vals
1956—1957.
Gunnar Vagnsson, form., Björg-
vin Torfason, varaform., Baldur
Steingrímsson, gjaldkeri, Friðjón
Friðjónsson, féhirðir, Valur Bene-
diktsson, ritari, Guðmundur Ingi-
mundarson, bréfritari, Einar Björns-
son, unglingaleiðtogi.
1957- 1958.
Sveinn Zoiiga, form., Gunnar
Vagnsson, varaform., Einar Björns-
son, ritari, Baldur Steingrímsson,
gjaldkeri, Guðm. Ingimundarson,
féhirðir, Valgeir Ársælsson, bréfrit-
ari, Sigurður Marelsson, unglinga-
leiðtogi.
1958— 1959.
Sveinn Zoega, formaður, Gunnar
Vagnsson, varaform., Einar Björns-
son, ritari, Baldur Steingrímsson,
gjaldkeri, Guðm. Ingimundarson,
bréfritari, Valgeir Ársælsson, bréf-
ritari, Sigurður Marelsson, unglinga-
leiðtogi.
1959— 1960.
Sveinn Zoega, formaður, Friðjón
Friðjónsson, varaform., Einar Björns-
son, ritari, Baldur Steingrímsson,
gjaldkeri, Valgeir Ársælsson, bréf-
ritari.
1960— 1961.
Sveinn Zoega, formaður, Gunnar
Vagnsson, varaform., Einar Björns-
son, ritari, Valgeir Ársælsson, bréf-
ritari, Páll Guðnason, gjaldkeri.