Valsblaðið - 11.05.1961, Side 92
90
VALSBLAÐIÐ
Stjórnir Knattspyrnudeildar
1959—1960.
Ægir Ferdinandsson, form., Her-
mann Hermannsson, varaform., Jón
Þór Jóliannsson, gjaldkeri, Páll Ar-
onsson, ritari, Elías Hergeirsson,
spjaldskrárritari.
ingar væri að ræða. Til umræðu á félagsfundum kemur þetta ekki
nema á aðalfundinum 1941 þar sem rödd kom fram um það að ekki
hefði verið nógu vel athugaðir möguleikar á vallargerð á landinu og
eins, að hús væru ekki í eins góðu ásigkomulagi og ætlað hefði verið.
Að umræðum loknum var einróma samþykkt tillaga um að „athuga
verðmæti eignarinnar og framtíðarmöguleika hennar“. 1 seinni tíð hefur
verið gert heldur mikið úr þessari gagnrýni, og meira en efni standa til.
1960—1961.
Ægir Ferdinandsson, form., Sig-
nrður Marelsson, varaform., Páll Ar-
onsson, ritari, Friðjón Friðjónsson,
gjaldkeri, Elías Hergeirsson, spjald-
skrárritari.
#
Stjórnir hnadknattleiksdoildar
1959— 1960.
Jón Kristjánsson, formaður, Jón
Þórarinsson, varaform., Áslaug Bene-
diktsdóttir, ritari, Sigurður Guð-
mundsson, gjaldkeri, Sveinn Krist-
jánsson, meðstjórnandi.
1960— 1961.
Þórður Þorkelsson, form., Jón
Kristjánsson, varaform., Áslaug
Benediktsson, ritari, Gvlfi Hjálm-
arsson, gjaldkeri, Sveinn Kristjáns-
son, fjármálaritari.
#
Stjórn Skuiadeildar
1959— 1960.
Guðm. Ingimundarson, formaður,
Stefán Hallgrímsson, varaformaður,
Sigurður Marelsson, ritari, Guðm.
Guðjónsson, gjaldkeri, Guðm. Ás-
mundsson, meðstjórnandi.
1960— 1961.
Guðm. Ingimundarson, formaður,
Stefán Hallgrímsson, varaform.aður,
Guðm. Guðjónsson, gjaldkeri, Jón
Guðmundsson, ritari, ICarl Jónsson,
meðstjórnandi.
#
Stjórnir Fulltrúará&sins
1956—1957.
Sveinn Zoegað form., Ólafur Sig-
urðsson, varaform., Frímann Helga-
son, ritari.
Framkvæmdir hefjast.
Með hinni auknu peningaveltu stríðsáranna, opnuðust Val eins og
svo mörgum möguleikar að afla fjár og hefja framkvæmdir í stærri stíl
en nokkurn óraði fyrir á kreppuárunum fyrir 1940.
Þetta verður til þess, að leigusamningnum er sagt upp 1944 og það
ár, er fengið leyfi stjómarinnar til þess að stofna til bílhappdrættis
og hlutaveltu, og gaf það um 100 þúsund krónur.
Landinu fylgdi auk íbúðarhúss, stórt fjós og hlaða. Var fljótlega gerð
athugun á því hvern bezt væri að breyta húsum þessum þannig að
þar mætti koma fyrir viðunandi búningsklefum og félagsheimili. Var
horfið að því ráði, að gera búningsklefa í þeim hluta, sem fjósið var,
en hlaðan gerð fyrir sal eða félagsheimili. Var hún stækkuð nokkuð,
en látin að öðru leyti halda lögun sinni. Var mikið unnið í sjálfboða-
vinnu, að breytingunni. Til að byrja með sóttist starfið heldur seint.
Var við ýmsa örðugleika að etja, erfitt um útvegun á efni á þeim
árum, og svo var ekki um styrki að ræða til framkvæmdanna fyrr en
síðar. Verulegur skriður komst á framkvæmdir snemma á árinu 1947,
og kom þar, að byggingin var vígð 1. júlí 1948. Ilafði vel til tekizt um
breytinguna og vistarverur allar smekklega gerðar. Salurinn var mjög
vistlegur með mahogni-klæðningu hátt á veggjum og í salinn sett
snotur húsgögn. Samið var við Hitaveitu Reykjavíkur um upphitun
húsanna svo og vatn í böðin.
Með kaupum þessum var brotið blað í sögu Vals. Hinn langþráði
draumur hafði ræzt, að fá eigið félagsheimili til fundahalda og ann-
arar félagsstarfsemi, eigin böð, heit og köld fyrir leikmenn, sem
stunduðu æfingar. Margur Valsmaður mun hafa látið hugann reika aft-
ur í tímann til þeirra daga, er aðeins var kalt vatn til baða á íþrótta-
vellinum eftir æfingar og leiki, minnast þeirrar byltingar, þegar komið
var fyrir gas-„apparati“ á Iþróttavellinum, þar sem menn gátu sett 25
eyring í sjálfsala og fengið heitt vatn, og með nokkurri sparsemi gátu
fjórir notað skammtinn, sem 25 aurarnir gáfu!
Síðan kom heita vatnið. Það leyndi sér ekki að hið nýja heimili kom
í miklar og góðar þarfir.
Lagt til atlögu við byggingu malarvallar.
Það mun mörgum minnisstætt, þegar á fulltrúaráðsfundi var rætt
um áframhaldandi framkvæmdir að Hlíðarenda, þegar Úlfar Þórðar-
son lagði sínar áætlanir.
Þetta er allt í lagi sagði Úlfar, við fáum bráðum styrkinn út á
félagsheimilið, hann notum við til þess að hefjast handa um byggingu
malarvallarins, og þegar því er lokið og við höfum unnið töluvert í
sjálfboðavinnu og safnað nokkru fé auk þess, þá förum við í að byggja
grasvöllinn fyrir styrkina út á malarvöllinn, þegar styrkurinn út á